Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Það er deginum ljósara að málflutningsyfirlýsing mín á flokksþingi Alþfl. hefur komið býsna nærri kjarna máls. Og hver er kjarni málsins? Hann er þessi: Það eru mikil tengsl á milli landbúnaðarstefnunnar og markaðsstefnunnar í landbúnaðarmálum annars vegar og gróðurverndar og landnýtingarstefnu í þessu landi hins vegar.
Ég vísa á bug fráleitum fullyrðingum manna sem hér hafa talað, eins og t.d. hv. 2. þm. Norðurl. e., að frá mér hafi andað köldu í garð bændastéttarinnar, að ég hafi haldið því fram að bændur vildu ekki græða landið. Svipuðu máli gegnir um yfirlýsingar hv. 1. þm. Norðurl. v. ( EgJ: Hvað stendur í ræðunni?) Ekkert um þetta sem hér var nefnt. Ég hef ekki hvatt til aðgerða gegn bændum. Ég hef hins vegar hvatt til aðgerða gegn gróðureyðingunni og úr því að menn töluðu hér um langlundargeð var það einmitt kjarni míns máls að draga kynni að því að fólk færi að segja einfaldlega: Við viljum ekki styðja þetta með okkar peningum.
En auðvitað eigum við á Alþingi fyrst að horfa í eigin barm sem eru afskipti ríkisins sjálfs af viðskiptum með landbúnaðarvörur. Það er ágætt að fá hérna yfirlýsingar um gróðurvernd og aðgerðir, en auðvitað væri líka gott að fá yfirlýsingar frá staðbundnum samtökum bænda um hvaða aðgerðir þeir hafa haft til að vernda gróður í sínum landshlutum. Og þótt orðaval hv. 1. þm. Norðurl. v. væri dálítið handahófskennt og líkt og þar talaði léttgeggjaður hlaupastrákur, svo ég velji orð úr hans orðasafni, þá lýsa þau samt, og það er gleðiefni eins og kom reyndar líka fram hjá málshefjanda, auknum skilningi á því að verja og friða þurfi afrétti í Norðurlandi vestra. Það er rétt að hrossabeit hefur verið takmörkuð á Auðkúluheiði, en mér skilst af fróðustu mönnum að hins vegar sé enn syðst á Eyvindarstaðaheiði hrossabeit á viðkvæmu landi. (Gripið fram í.) Ég fullyrði ekki um þetta, ég bara lýsi því sem mér miklu fróðari menn um þetta mál hafa fortalið mér.
Það er líka almennt viðurkennt að afréttarlönd, jafnvel heimalönd, á eldfjallasvæði landsins, skáhallt yfir landið frá suðvestri til norðausturs, séu víðast hvar í hættu. Á þetta þurfum við allt að horfa. Það er alveg óhugsandi annað en að tengja þetta við sjálfa landbúnaðarstefnuna. Það var tilgangur orða minna. Þau hafa greinilega haft rétt áhrif.