Kjararannsóknir
Fimmtudaginn 24. nóvember 1988

     Flm. (Kristín Einarsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. á þskj. 50 um að efla kjararannsóknir. Flm. eru ásamt mér hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir, Guðmundur H. Garðarsson, Hjörleifur Guttormsson og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir. Ályktunin hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að sjá til þess að kjararannsóknir verði gerðar áreiðanlegri en nú er. Í því skyni verði launamiðar og skattagögn þannig úr garði gerð að fram komi á launamiðum áreiðanlegar upplýsingar um fjölda vinnustunda að baki dagvinnulaunum, yfirvinnulaunum og öðrum launagreiðslum. Jafnframt verði starfsheiti skilgreind og samræmd og þau tilgreind á launamiðum og skattframtali. Enn fremur verði settar reglur sem tryggi skil á launamiðum og réttum upplýsingum.``
    Þessi till. til þál. var lögð fram í lok 110. löggjafarþings og var þá tekin á dagskrá en kom ekki til umræðu. Því er tillagan endurflutt óbreytt. Efni tillögunnar er enn jafnbrýnt og áður.
    Í mörg ár hafa margir aðilar gert kannanir á kjörum fólks á vinnumarkaði hér á landi. Rannsóknir hafa byggst á svörum einstakra launamanna svo sem í könnunum einstakra stéttarfélaga og Félagsvísindastofnunar, svörum fyrirtækja eins og t.d. kjararannsóknarnefnd gerir eða á skattframtölum eins og Framkvæmdastofnun og Þjóðhagsstofnun gera. Hagstofan byggir einnig á skattframtölum í sínum könnunum.
    Kjararannsóknir byggja að sjálfsögðu á þeim upplýsingum sem hægt er að ná til. Skattagögn eru mikilvæg, sérstaklega ef upplýsingar á þeim væru ítarlegri og áreiðanlegri. Ef gögnin eru illa unnin getur það leitt til þess að upplýsingar um kjör heilla starfshópa koma ekki fram. Því er haldið fram af mörgum að mikill misbrestur sé á því að upplýsingar sem unnið sé úr séu áreiðanlegar. Mjög oft vantar á launamiðana þær upplýsingar sem þar er beðið um og nánast lítið annað útfyllt en heildarupphæð launa auk nafns og þess háttar. Ef upplýsingar eru ekki réttar er sú mynd sem kemur fram í könnuninni ekki rétt.
    Launamiðar eru nú þannig að á þeim eiga að koma fram ýmsar upplýsingar um laun, hlunnindi, stéttarfélag, lífeyrissjóð og fleira og eru þær án efa misgóðar. Hingað til hefur ekkert verið gert til tryggja að þær upplýsingar sem nú er beðið um komi fram. Það þarf því að sjá til þess að þessar upplýsingar séu samræmdar og áreiðanlegar. Í því skyni getur verið nauðsynlegt að setja viðurlög við því ef ekki koma réttar og fullnægjandi upplýsingar fram á launamiðum. Nú þarf að skila launamiðum fyrir ákveðinn tíma, en engin nýtanleg ákvæði eru til varðandi upplýsingar á launamiðum.
    Á síðasta þingi var flutt till. til þál. þar sem gert var ráð fyrir að rannsaka m.a. tekjumyndun og tekjuskiptingu á Íslandi. 1. flm. þeirrar till. var hv. þm. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir. Í umsögn Þjóðhagsstofnunar um tillöguna segir m.a., með leyfi forseta: ,,Engum blöðum er um að fletta að

nauðsynlegt er að efla upplýsingaöflun um laun, tekjur og lífskjör til þess að fá traustar tölur á líðandi stundu. Lögð skal áhersla á það hér að öflun traustra frumupplýsinga er meginvandamálið hvað þetta talnaefni varðar.``
    Við samanburð á niðurstöðum kjararannsókna hefur skort á alla samræmingu í notkun hugtaka, t.d. er ekki hægt að bera saman tiltekin starfsheiti úr könnunum frá ýmsum aðilum. Þannig notar kjararannsóknarnefnd eitt kerfi og Framkvæmdastofnun annað. Þetta skapar rugling og ónákvæmni. Þess vegna gerir till. ráð fyrir að starfsheiti verði skilgreind og samræmd, bæði til hagræðis þeim sem skrifa launamiða og þeim sem eru að gera kannanir á launum mismunandi stétta.
    Í Hagtíðindum frá því í mars á þessu ári er fjallað um vinnuaflsnotkun á Íslandi á árinu 1986. Segir þar m.a., með leyfi forseta: ,,Sé upplýsingum á launamiðum frá launagreiðendum um starfsgrein launþega ábótavant, en það kemur oft fyrir, ákveður starfsfólk skattstofanna atvinnugreinamerkingu eftir líkum. Í þessum tilvikum gætir tilhneigingar til þess að atvinnugreinamerking ráðist eingöngu af aðalrekstri fyrirtækis og ekki sé skeytt um frekari atvinnugreinaskiptingu fyrirtækisins. Í þessu sambandi má einnig geta þess að sé vinnutíma á launamiðum einstaklinga ekki getið áætlar skattstofan vikukaup viðkomandi launþega og deilir þeirri upphæð í framtaldar tekjur hans og er þar með fengin áætluð lengd vinnutímans.``
    Undanfarin ár hafa orðið verulegar breytingar á launakerfinu í landinu. Í meginatriðum er hægt að segja að um tvö launakerfi sé að ræða. Launakerfi opinberra starfsmanna er nánast hreint taxtakerfi, en launakerfi á almennum vinnumarkaði er taxtakerfi í grunninn en ofan á er byggt kerfi með bónus, yfirborgunum og uppmælingum. Taxtar á almennum markaði sýna því lágmarkslaun á hverjum tíma. Allmargar stéttir, einkum kvennastéttir, taka eingöngu laun samkvæmt töxtum en stór hluti launafólks fær aukagreiðslur af ýmsu tagi. Margir fá þessar greiðslur fyrir mikla vinnu, en þó er töluvert um að samið sé beint við vinnuveitanda um hærri laun en taxtar kveða á um. Hugtök eins og ómæld yfirvinna og jafnvel óunnin heyrast gjarnan í umræðum um launamál og
þykir orðið sjálfsagt að semja um slíkar greiðslur ef mögulegt er. Þetta á við um einstakar stéttir í opinberri þjónustu, en aðallega á þetta við um almenna vinnumarkaðinn.
    Í mörgum tilvikum eru taxtalaun aðeins fjarlæg viðmið við yfirborganir og ýmis hlunnindi. Yfirborganir og aukagreiðslur sýna svo að ekki verður um villst getu atvinnuveganna til að greiða hærri laun en taxtar segja til um. Yfirvinna af ýmsu tagi verður stöðugt stærri hluti af þeim launum sem fólk fær úr launaumslaginu. Það er því mikilvægt að auðvelt sé að gera sér grein fyrir hve stór hluti af launagreiðslum er annað en grunn- og taxtalaun.
    Till. sem hér er mælt fyrir felur í sér að skráðar verði á einfaldan hátt upplýsingar til að auðvelda og bæta kjararannsóknir. Með því verður hægt að átta sig

betur á því fyrir hvers konar vinnuframlag laun eru greidd, svo sem dagvinnu og yfirvinnu. Einnig gerir till. ráð fyrir að samræma og skilgreina starfsheiti betur en nú er gert. Kannanir sem gerðar eru á launum fólks verða síðan að vera aðgengilegar, bæði fyrir launafólk og atvinnurekendur. Efldar og nákvæmar kjararannsóknir auka líkur á að unnt sé að gera launakerfin auðskiljanlegri. Um leið og upplýsingar af því tagi, sem hér er lagt til, liggja fyrir aukast líkurnar á því að launakerfin verði jafnframt aðgengilegri og með því er stigið eitt skref í þá átt að skapa réttlátari tekjuskiptingu í þjóðfélaginu.
    Virðulegur forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að tillögunni verði vísað til félmn.