Hvalveiðistefna Íslendinga
Föstudaginn 25. nóvember 1988

     Flm. (Árni Gunnarsson):
    Virðulegi forseti. Það er einkum vegna orða hv. síðasta ræðumanns sem ég vil koma hér upp og segja nokkur orð. Hann ásakar íslenska fréttamenn hörðum orðum fyrir þeirra starf. Ég held að það sé algerlega rangt og úr lausu lofti gripið hjá honum að umræður í fjölmiðlum séu eitthvert vatn á myllu grænfriðunga. Grænfriðungar gera sínar áætlanir eitt ár fram í tímann þannig að umræður hér munu engu breyta um hvort þeir fara í aðgerðir í Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu, Hollandi, Bandaríkjunum og víðar eða ekki, breytir engu um það, ekki nokkrum sköpuðum hlut.
    Hér var sagt: Þeir snúast gegn okkur Íslendingum. Þeir eru með geypilegar aðgerðir í Japan og gegn Japönum. Þeir komast ekki upp með það hins vegar að vera með aðgerðir í Sovétríkjunum af mjög skiljanlegum ástæðum þannig að þetta er hinn mesti misskilningur.
    Að lokum þetta, virðulegi forseti: Mér finnst að í þessari umræðu, sem hefur verið bæði hógvær og skynsamleg að flestu leyti, hafi menn misst sjónar á meginþætti þessa máls, þættinum sem við ráðum ekki við sjálfir. Ég sagði í ræðu minni að þetta snerist ekki lengur um samninga á milli stjórnvalda, um samninga við fiskkaupendur. Nú erum við í stríði við almenning. Það stríð hygg ég að verði seint unnið.
    Mig langar aðeins vegna þeirra ummæla sem hér hafa komið fram að benda á að umhverfisverndarsamtök sem við höfum verið að ræða um hér áttu mestan þátt í því að stöðva kjarnorkutilraunir Frakka í andrúmsloftinu, mestan þátt í því að stöðva losun á geislavirkum úrgangsefnum í írska hafið, að stöðva losun á kemískum efnum í Norðursjó. Þeir börðust hatrammlega gegn brennslu hættulegra efna á Norðursjó þar sem samtökin höfðu fullan sigur. Þeir börðust gegn breskum stjórnvöldum og stöðvuðu losun á geislavirkum úrgangi á mörgum stöðum í Bretlandi. Og þeir hafa barist fyrir veigamiklum þáttum í því að koma í veg fyrir mengun Norður-Atlantshafsins. Við erum ekki að fást við neina aukvisa og þó að við séum konungborin þjóð og að við séum voldugir að margra mati, sem hér hafa talað, munum við ekki vinna þennan sigur --- og ég segi: því miður.