Endurskoðun lánskjaravísitölu
Mánudaginn 28. nóvember 1988

     Flm. (Guðmundur G. Þórarinsson):
    Hæstv. forseti. Ég þakka þær að mörgu leyti athyglisverðu umræður sem hér hafa farið fram um þessa þáltill. Ég held að þessar umræður sýni að málið er ofarlega í huga margra þingmanna og er eðlilegt og æskilegt að ræða hér á þinginu. Ég er hins vegar dálítið undrandi á því hve mikill misskilningur hefur komið fram í máli sumra þingmanna.
    Hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson taldi lýsingar á víxlverkun lánskjaravísitölunnar broslegar. Það kann að vera að þær lýsingar sem ég var með hér, hvernig Einbjörn togar í Tvíbjörn og Tvíbjörn í Þríbjörn, hvernig framfærsluvísitalan hækkar lánskjaravísitöluna sem aftur hækkar framfærsluvísitöluna, sem aftur hækkar lánskjaravísitöluna o.s.frv., virki broslega þegar frá því er sagt. En ég get fullvissað þingmanninn um og ég veit að hann skilur það að afleiðingarnar eru ekki broslegar fyrir þá sem eiga að greiða. ( EKJ: Sammála.) Sammála. Þarna er um að ræða mjög alvarlegt atriði í sjálfgengi þess mælikvarða sem við notum. Það er auðvitað engin ástæða til annars en að lagfæra það og endurskoða. Lagfæring er hins vegar mjög flókið og erfitt mál og þess vegna er lagt til að nefnd sé skipuð.
    Mér fannst gæta nokkurs misskilnings líka hjá fulltrúum Borgfl. sem hér töluðu. Mér fannst þeir báðir tala fyrir því að það ætti að afnema lánskjaravísitöluna beint og þess vegna væri tillaga sem þessi óþörf. Það kann að vera að þar komi að lánskjaravísitalan verði afnumin. Það vil ég vona að verði. En mér er tjáð af ýmsum lögfróðum mönnum að það muni verða erfitt að afnema hana á fjárskuldbindingar sem þegar eru bundnar lánskjaravísitölu. Þá bendi ég enn á að margar fjárskuldbindingar eru tengdar lánskjaravísitölu áratugi fram í tímann. Fyrir þá aðila er hér um að ræða mjög erfitt mál. Þess vegna er mjög mikilvægt að stjórnvöld reyni að finna sem réttlátasta lausn á þessum mælikvarða með tilliti til þeirra gífurlegu hagsmuna bæði einstaklinga og atvinnulífs sem þarna eru í húfi.
    Ég verð að játa að ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með málflutning margra sjálfstæðismanna í þessari umræðu. Sumir þeir sem hér hafa talað hef ég nú reyndar talið að væru bæði gætnir og athugulir menn. Sérstaklega verð ég að segja að ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum með mál hv. 1. þm. Suðurl., fyrrv. forsrh. Þorsteins Pálssonar. Mér fannst hann vilja nota þetta mál til þess að hefja einhverja sérstaka sókn gegn framsóknarmönnum. Það kann vel að vera að hann sé bitur í garð framsóknarmanna og Framsfl. eftir þá atburðarás sem á undan hefur gengið. Hins vegar er hér um miklu, miklu alvarlegra mál að ræða en svo að ástæða sé til að hefja hér sérstaklega pólitískar skylmingar í því sambandi. Raunar skil ég ekki þingmanninn þegar hann talar um að það sé nánast óhæfa að flytja hér mál sem heyri beint undir ráðherra sem eigi að fjalla um það. Ég held stjórnskipun Íslands sé þannig að öll mál heyri undir einhvern ráðherra. Ef menn reyndu að draga ályktanir í beinu framhaldi af þessari ræðu hv. 1. þm. Suðurl.

ættu menn alls ekki að flytja nein mál heldur treysta ráðherrunum sem fara með öll mál og alla málaflokka.
    Ég þykist vita að þannig hafi þingmaðurinn ekki meint þessi undarlegu orð sem hann lét falla. En ég verð að játa að ég lít á það sem starfssvið og vettvang Alþingis að fjalla um ýmsa þætti þjóðmála. Ég tel eðlilegt að Alþingi ræði mál sem þetta og geri um það tillögur og fjalli um jafnvel þó framkvæmdarvald sé í landinu. Þarna held ég að við séum í grundvallaratriðum ósammála, nema hv. 1. þm. Suðurl. hafi sérstaklega hagað orðum sínum á þennan hátt úr ræðustól til að snúa út úr og reyna að koma höggi á --- ja, framsóknarmenn í þessu sambandi.
    Mér finnst ekki þurfa að vera neinn misskilningur í þessu máli. Það er alveg ljóst að ríkisstjórnin hefur ákveðið að breyta lánskjaravísitölunni. Það veit hv. 1. þm. Suðurl. Það er líka ljóst að hún hefur gefið yfirlýsingar um að lánskjaravísitala verði afnumin þegar verðbólga hafi farið niður fyrir eitthvert ákveðið stig einhvern tíma. Það breytir ekki því að eðli þessa máls er þannig að nauðsynlegt er að endurskoða þessa lánskjaravísitölu að mati flm. Sú lánskjaravísitala sem á að taka gildi um áramót og viðskrh. lýsti er að mínu mati ákveðin í nokkurri skyndingu. Það þarf ekki að koma neinum á óvart og kannski allra síst hv. 1. þm. Suðurl. sem veit hvernig kaupin gerast á eyrinni og hvernig ákvarðanir eru nú oft teknar. Þarna var gripið inn í til þess að breyta þeirri lánskjaravísitölu sem í gildi er, er mjög umdeild og hefur skekkt marga hluti, bæði í lífi einstaklinga og atvinnulífs. Það breytir ekki því að sú ákvörðun þarf endurskoðunar við.
    Ég gerði mér ekki grein fyrir því og veit ekki hvort það er rétt sem hv. þm. Karl Steinar sagði áðan að samkvæmt útreikningum sem hann hefði í höndum hefði þessi nýja lánskjaravísitala, ef hún hefði verið í gildi á síðasta ári, aukið greiðslubyrði einstaklinga um 3%. Ég geri mér ekki grein fyrir því. Þessi yfirlýsing hv. þm. sýnir okkur hins vegar við hvað er að fást, hversu einfaldar ákvarðanir geta haft gífurleg áhrif á líf einstaklinga og rekstur og afkomu atvinnufyrirtækja.
    Ég verð líka að játa að ný lánskjaravísitala sem byggir að 70% á launum
kann að valda launþegum nokkrum erfiðleikum í kjarabaráttu vegna þess að launagreiðendur eru þá ekki bara að samþykkja launahækkanir, heldur líka hækkanir á sínum fjármagnskostnaði. Það er líka spurning, ef launþegar eiga að taka slíka hækkun á sínar skuldbindingar, hvort þeir eiga ekki í meira mæli að njóta, við skulum segja aukins hagvaxtar og aukinnar útflutningsframleiðslu, ef þess gætir, þannig að það sé ekki tekið þá beint aftur í lánskjörunum. Ég held að þarna séu menn að fjalla um glettilega flókin mál, en ég veit að tíminn líður og ekki er tími til að fara mjög ítarlega ofan í það hér.
    Hæstv. viðskrh. taldi að hér væri fyrst og fremst um að ræða mælingavandamál. Ég vil taka undir margt í hans ræðu sem var athyglisvert og viturlega mælt að vanda þó að ég sé ekki tilbúinn að gefa

honum jafnsterka traustsyfirlýsingu og hv. þm. Albert Guðmundsson gerði áðan, að við ættum engan hæfari mann ef ég skildi orð hans rétt. Mælikvarðavandamál getur verið mikið vandamál og menn verða að gá að því að mælikvarðinn passi við það sem þeir eru að mæla. Siðferðisvitund manna verður til að mynda aldrei mæld með metramælikvarða, og þannig mætti lengi telja. Og mælikvarði má ekki verða venslaður því sem hann á að mæla.
    Hæstv. ráðherra minntist sérstaklega á gengisviðmiðun. Við tölum í greinargerð líka um viðmiðun við viðskiptakjör, útflutningsframleiðslu eða hagvöxt og að athugað sé hvort lánskjaravísitala eigi að vera háð beinum ákvörðunum stjórnvalda eins og til að mynda ákveðnum sköttum, niðurgreiðslum og öðru slíku.
    Virðulegur forseti. Í mínum huga er um mjög alvarlegt mál að ræða. Ég held að umræður hafi að mörgu leyti verið gagnlegar þó að ég harmi á hvern hátt sjálfstæðismenn sem hér hafa talað hafa tekið á þessu máli að undanteknum hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni. Ég er ekki í neinum vafa um að fagleg athugun, fagleg endurskoðun á grunni lánskjaravísitölunnar er mikið nauðsynjamál.