Þorsteinn Pálsson:
Frú forseti. Aðeins örstutt athugasemd. Það kom glöggt fram í máli hæstv. viðskrh. að hann hefur ekki trú á þeirri verðbólguhjöðnun sem nú hefur orðið. Staðreynd er að bankarnir hafa verið að þráast við að lækka vexti í samræmi við þá lækkun verðbólgu sem nú er skráð vegna þess að þeir hafa ekki trú á því að þetta sé varanlegt ástand. Og nú staðfestir hæstv. viðskrh. það að þetta sé rétt mat hjá bönkunum þegar krafan er sú, meira að segja af hálfu hæstv. ríkisstjórnar, að tekið sé tillit til skráðrar verðbólgulækkunar við vaxtaákvarðanir. Það er athyglisvert að þessi staðfesting skuli koma fram af hálfu hæstv. viðskrh.
Hitt er svo annað að ég tel nauðsynlegt, frú forseti, að hæstv. ráðherra verði gefið hér tækifæri til að svara því, sem hann hefur í tvígang færst undan að svara, hvort framkvæma eigi með tvennum hætti endurskoðun á vísitölugrundvellinum, gera fyrst breytingu um áramót, taka svo til við í sérstakri nefnd endurskoðunina, sem hv. þm. Framsfl. eru að fara fram á að gerð verði, og hvenær sú breyting eigi síðan að koma til framkvæmda. Það er nauðsynlegt að menn fái skýr svör við því hvernig eigi að standa að þessum málum fyrst ekki er unnt á það að fallast að tengja þessa endurskoðun saman þannig að sú endurskoðun sem stjórnarþm. eru að fara fram á, þar sem einn hópurinn segir: Við viljum þessa breytingu, hún á að koma fram um áramótin. Aðrir segja að það sé hringlandi og rugl að gera þá breytingu um áramótin og heimta endurskoðun í sérstakri nefnd. Það verður að koma alveg skýrt fram hvort þetta á að gerast með tvennum hætti, hvort báðir hóparnir eiga að fá sitt fram og hvenær síðari hópurinn á þá að fá sitt fram.