Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til breytinga á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Svo sem hv. alþm. er kunnugt munu að öðru óbreyttu lögin nr. 50 frá 1988, um virðisaukaskatt, sem samþykkt voru s.l. vor, koma til framkvæmda 1. júlí 1989. Frá sama tíma mundu lög um söluskatt falla niður.
Eins og fram kemur í stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórnar hefur verið ákveðið að fresta gildistöku virðisaukaskattsins um hálft ár eða til 1. janúar 1990. Því er þetta frv. lagt fram, en það felur í sér breytingu á gildistökuákvæðum laganna til samræmis við þessa ákvörðun stjórnarflokkanna. Ástæður að baki þessarar ákvörðunar eru margvíslegar. Þeirra mikilvægust er að í ljós hefur komið að mun lengri tíma þarf til undirbúnings þessarar kerfisbreytingar en gert var ráð fyrir í upphafi. Það er alveg ljóst að það hefur verið vanmetið, bæði af hv. alþm. og þeim embættismönnum og sérfræðingum sem um þetta mál hafa fjallað, hve víðtækur undirbúningur þyrfti að eiga sér stað til þess að tryggt væri að framkvæmd virðisaukaskattsins færi ekki úr böndum. Í því sambandi er rétt að vekja athygli á því að bæði á yfirstandandi ári og næsta ári er ákveðinn tilraunatími víðtækra breytinga í skattamálum og það er almennt álit þeirra sem að þeim málum starfa að því séu ákveðin takmörk sett hvað okkar tiltölulega fámenna embættis- og starfsmannakerfi á sviði skattamála geti tekið á sig af nýjum víðtækum breytingum á sama tíma, og finnst þó sjálfsagt mörgum ærinn starfsmannafjöldi vera á því sviði.
Rétt er að minna á einnig að undirbúningur virðisaukaskattsins snertir verksvið fjölmargra stofnana sem þarf að samhæfa og tryggja þarf fyrir fram að ekki verði neinir óeðlilegir árekstrar við framkvæmdina. Hér er um að ræða fjölmarga verkþætti og má t.d. á þessu stigi nefna sérstaklega hönnun mjög viðamikils tölvukerfis. Þetta tölvukerfi á að taka bæði til álagningar skattsins, innheimtu hans, endurgreiðslu og síðast en ekki síst vera grundvöllur að mjög öflugu eftirlitskerfi. Ýmsir sérfræðingar hafa unnið að hönnun þessa tölvukerfis á undanförnum mánuðum, en það er alveg ljóst að allmikil vinna er enn óunnin á því sviði. Í raun og veru má segja að vinnan við þetta viðamikla tölvukerfi sé enn á frumstigi. Ég held að það sé eitt af þeim atriðum sem hafa verið vanmetin þegar menn voru að gera sér í hugarlund hvað framkvæmd virðisaukaskattsins hefði í för með sér, menn hafi ekki gert sér nægilega grein fyrir því hvað það er tímafrekt og yfirgripsmikið verkefni, miðað við þann sérfræðingahóp sem við eigum völ á í okkar landi, að tryggja að tölvukerfið verði nægilega tryggt, ítarlegt og öruggt.
Auk þessara atriða sem ég hef hér nefnt er mjög víðtæk reglugerðarsmíð þessu samfara, í því sambandi samning framkvæmdareglna af ýmsu tagi og svo einnig mjög viðamikil handbókargerð til að tryggja það að þeir ótrúlega mörgu aðilar sem koma að
framkvæmd virðisaukaskattsins fái strax í upphafi glöggan og ítarlegan skilning á því hvað hún felur í sér. Þessu til viðbótar er svo einnig þjálfun starfsmanna og síðan undirbúningur að kynningarstarfi, bæði gagnvart fyrirtækjum og framkvæmdaraðilum en ekki síður gagnvart öllum almenningi í landinu.
Ég veit að þegar hv. alþm. líta yfir öll þessi verkefni sjá menn að það er jafnvel hættuspil að ætla sér að tryggja að þeim verði öllum lokið á þeim fáeinu mánuðum sem eru til stefnu ef tryggja á að skattkerfisbreytingin geti komið til framkvæmda á upphaflegri dagsetningu. Það er að vísu hugsanlegt að þessu verki mætti hraða með því að ráða allmikinn fjölda nýrra starfsmanna inn á þetta svið, en bæði dreg ég nú í efa að slíkt sé skynsamlegt á þeim aðhaldstímum sem við nú lifum og einnig efast ég um að slík starfsmannaaukning mundi skila miklu vegna þess að hér þarf fyrst og fremst að reiða sig á kunnáttumenn, fagmenn og sérfræðinga sem langa reynslu og yfirgripsmikla þekkingu hafa á þessu sviði.
Einnig er rétt að hafa það í huga að mörg atriði, sem þarf að skýra nánar og e.t.v. eru meira pólitísks eðlis en tæknilegs, sérfræðilegs og embættislegs, þurfa nánari umfjöllun. Þá má í því sambandi benda á það að meiri hluti fjh.- og viðskn. beggja deilda vakti á sínum tíma athygli á fjölmörgum slíkum atriðum sem þyrftu nánari skoðunar og ákvörðunar ef og þegar skatturinn kæmi til framkvæmda. Þessi atriði eru, eins og ég sagði áðan, meira pólitísks eðlis en fagleg og tæknileg.
Einnig er rétt að vekja athygli á því að við nánari skoðun hafa margir talið að fyrst í júlí eða um mitt ár sé ekki alveg heppilegur tími til þess að hrinda í framkvæmd breytingu af þessu tagi. Eðlilegra væri að miða við áramót og þá væri hægt að taka mið af tímasetningu í bókhaldsuppgjöri fyrirtækja og hjá öðrum skattskyldum aðilum. Ef framkvæma ætti slíka breytingu um mitt ár mundi það óhjákvæmilega hafa í för með sér aukauppgjör í bókhaldi hjá fyrirtækjum og öðrum rekstraraðilum sem væri bæði kostnaðarsamt, fyrirhafnarmikið og hjá ærið mörgum tilefni til verulegra óþæginda.
Ég vék að því áðan að á yfirstandandi ári hefði verið að koma til framkvæmda veigamikil breyting í skattkerfi okkar og átti ég þar fyrst og
fremst við nýja staðgreiðslukerfið. Fjölmargir forsvarsmenn skattkerfisins í landinu hafa tjáð mér að það hafi verið ótrúlegt álag á starfsmenn skattstofa og skattinnheimtunnar að tryggja það að staðgreiðslukerfisframkvæmdin yrði örugg og traust. Það hafi hins vegar nokkurn veginn tekist, en þó sé enn þá nauðsynlegt að hafa rúman tíma til þess að festa þá framkvæmd í sessi og geti þá verið hættuspil að leggja gífurlega mikið nýtt vinnuálag á þessa sömu starfskrafta.
Ég ítreka í því sambandi það sem ég sagði áðan að þótt mörgum kunni að finnast margt fólk starfa við skattinnheimtu og á skattstofum í okkar landi er það engu að síður svo að mikill fjöldi þessa fólks starfar undir miklu vinnuálagi og mjög mikið er í húfi fyrir
ríkið og opinber stjórnvöld önnur að þau störf séu trygg.
Auk þessa, virðulegi forseti, er rétt að vekja athygli á því, eins og hv. alþm. er kunnugt, að efnahagserfiðleikar okkar eru mjög miklir um þessar mundir og ég held að flestir séu sammála því að þótt reynt hafi verið og verði reynt að takmarka útgjöld eftir fremsta megni geti verið hæpið að framkvæma á slíkum tímum aðgerð sem hafi í för með sér verulega tekjuskerðingu fyrir ríkissjóð. Það er alveg ljóst að ef ætti að halda sig við upphafleg áform mundu tekjur ríkisins minnka um 1200 millj. kr. á næsta ári og það er auðvitað allveruleg upphæð. Ég hugsa að ýmsir kunni kannski að halda að frv. sem hér er flutt, um frestun gildistöku virðisaukaskattsins, sé e.t.v. fyrst og fremst til komið vegna tekjuþarfa ríkissjóðs, og það er ekkert óeðlilegt að menn haldi það. Svo er hins vegar ekki. Jafnvel þótt ríkissjóður stæði vel, jafnvel þótt ekki þyrfti að taka neitt tillit til þessara tekjuþátta, þá er ég sannfærður um það, eftir þá athugun sem ég hef framkvæmt á þeim tíma sem ég hef gegnt embætti fjmrh., að þegar um slíka grundvallarbreytingu í skattkerfi okkar Íslendinga er að ræða og miðað við það hve undirbúningurinn hefur tekið miklu lengri tíma og felur í sér miklu fleiri þætti en nokkurn óraði fyrir væri það mikið hættuspil að framkvæma slíka breytingu á upphaflega áætluðum tíma. Það er deginum ljósara að þegar verið er að hrinda í framkvæmd veigamiklum breytingum á skattkerfi landsins þarf að tryggja það að þeir tugir þúsunda fyrirtækja og rekstraraðila sem þurfa að framkvæma þessa breytingu, svo að ekki sé nú minnst á allan almenning í landinu, skilji hana og sjálft skatteftirlitskerfið og álagningarkerfið, og til þess verks þarf því miður miklu lengri tíma. Þess vegna vildi ég sérstaklega vekja athygli á þessum þáttum. En ég veit af fenginni reynslu, og kannski er það eðlilegt, að menn halda að aðgerðir fjmrh. taki nánast eingöngu mið af tekjuþörfum eða útgjaldasjónarmiðum ríkissjóðs og því minni ég á að þótt þær séu vissulega þáttur í þessu máli er það ekki höfuðástæðan. Hún er fyrst og fremst sú að þegar farið væri í að framkvæma þessa skattkerfisbreytingu, sem búin er að vera til umræðu líklegast í nærri 20 ár og hér til umfjöllunar á Alþingi um áraraðir, væru það mikil mistök ef ekki væri tekinn nægilegur tími til að tryggja að allur undirbúningurinn gæti verið með eðlilegum og réttum hætti svo að bæði þjóðin og kannski ekki síst þeir aðilar í atvinnulífinu sem lengi hafa óskað eftir því að fá þennan skatt hafi tryggingu fyrir því að hið opinbera hafi vandað svo vel til verksins að sjálf framkvæmdin fari ekki úr böndunum í upphafi.
Þess vegna, virðulegi forseti, er þetta frv. lagt fram og ég legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn.