Virðisaukaskattur
Þriðjudaginn 29. nóvember 1988

     Kristín Halldórsdóttir:
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að vera margorð við þessa umræðu um það þingmál sem hér er á dagskrá. Við kvennalistakonur styðjum að gildistöku þessara laga sé frestað og þó lengur væri. Við höfum mikla efasemdir um að kerfið nái tilætluðum árangri og hefur sú afstaða margsinnis komið fram í sölum Alþingis og annars staðar. Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka allt sem áður er sagt um það, enda gefur þetta frv. ekki beint tilefni til þess þar sem hér er eingöngu um að ræða frestun á gildistöku laganna um virðisaukaskatt en engar vísbendingar að hafa um að aðrar breytingar séu fyrirhugaðar á þeim lögum.
    Nú hafa aðrir ræðumenn á undan mér rifjað upp andstöðu flokkssystkina hæstv. núv. fjmrh. og skal ég ekki endurtaka þá upprifjun þótt fróðleg sé, en ég vil taka eindregið undir þær fyrirspurnir sem hér hafa komið fram til hæstv. ráðherra um það hvort hann og samflokksmenn hans hyggist ekki reyna að ná fram umbótum á þessum lögum svo sem hvað varðar matarskattinn illræmda og menningarskattinn sem einnig var illræmdur og sem alþýðubandalagsmenn börðust gegn við afgreiðslu málsins á síðasta þingi. Það gerðum við kvennalistakonur einnig og eigum töluvert bágt með að skilja þann snarsnúning í hverju málinu af öðru sem alþýðubandalagsmenn stunda þegar þeir stökkva yfir borðið. Það er hreint með ólíkindum og allt að því aumkunarvert.
    Við kvennalistakonur höfum legið undir ámæli fyrir að vilja ekki og sumir segja þora ekki að axla ráðherraskinn þegar þau hafa verið hrist framan í okkur. Við höfum hins vegar kosið að standa fast við ákveðin grundvallaratriði í okkar stefnu og hafna stjórnarþátttöku sem væri keypt því verði að þurfa að bregðast þeim þótt við gerum okkur vitaskuld fyllilega grein fyrir því að málamiðlanir eru nauðsynlegar í einhverjum mæli. En fyrr má nú aldeilis fyrr vera eins og þekktur skemmtikraftur hefur orðað það.
    Alþýðubandalagsmenn börðust ákaflega hart í stjórnarandstöðu, voru stórorðir, ekki síst um það mál sem hér er á dagskrá, og feikilega aðgangsharðir og maður hlýtur að spyrja hvort það sé ekkert atriði að standa við stóru orðin. Því hlýt ég að taka undir með fyrri ræðumönnum og lýsa eftir hugmyndum hæstv. fjmrh. um frekari athugun á þessum lagabálki sem samflokksmenn hans börðust svo hart gegn ásamt okkur hinum sem þá voru í stjórnarandstöðu. Það er kannski ekki að undra þótt manni komi í hug orðin fleygu: ,,Þetta sem helst hann varast vann/ varð þó að koma yfir hann.``
    Þótt það feli í sér hættu og kannski hugsanlegan kostnað að kalla hæstv. fjmrh. upp í ræðustól hljótum við nú að gera það vegna þessarar umræðu. Það væri vissulega fróðlegt að fá svör við þeim spurningum sem hv. síðasti ræðumaður t.d. lagði fram og ég tek undir þær, en ég legg áherslu á tvennt: Ég lýsi fyrst og fremst eftir afstöðu hæstv. fjmrh. gagnvart matarskattinum og skattlagningu á menningarstarfsemi. Ég tel slíka eftirgrennslan fyllilega réttmæta þrátt fyrir orð hv. 5. þm. Reykv. sem mér heyrðust fela í sér

nokkurs konar álas á þá sem áður töluðu vegna þess að þeir hefðu farið út fyrir efni þess frv. sem hér er á dagskrá, en ég tel það fyllilega gefa tilefni til þess að kalla eftir afstöðu hæstv. ráðherra og hugmyndum í þessu efni.