Virðisaukaskattur
Þriðjudaginn 29. nóvember 1988

     Albert Guðmundsson:
    Virðulegur forseti. Ég hef um þó nokkurn tíma, langan tíma má segja, haft áhyggjur af því ástandi sem smám saman er eins og þoka að læðast yfir land og þjóð. Þá á ég við það ástand, sem er nú að skapast í þjóðfélaginu, að fyrirtæki og einstaklingar eru gjaldþrota og vinnumarkaðurinn þrengist. Þess vegna kom það mér til að standa upp og tala svolítið öðruvísi en ég hafði ætlað mér að gera undir þessum dagskrárlið þar sem ég hélt mig að því frv. sem er á dagskrá, en umræðan hefur farið vítt og breitt um svið fjármála og vinnumarkaðarins.
    Ég hafði miklar áhyggjur af ummælum hæstv. fjmrh. þegar hann gaf til kynna að atvinnuástandið á Íslandi væri svo tryggt að það gæti aldrei orðið sambærilegt við það sem er annars staðar, tók sem dæmi hvernig atvinnuástand væri í ýmsum Evrópulöndum sem hann telur til fyrirmyndar af því að þau eru leidd af íhaldsöflum. Það varð til þess að ég kallaði fram í fyrir ráðherra hvort hann stefndi að því að hér kæmi þá hreinræktuð íhaldsstjórn, sem hann hafnaði að sjálfsögðu.
    En ég hef áhyggjur af þessu svari vegna þess að nú er vitað að í þeim löndum sem hann vitnaði til er mikið atvinnuleysi, en atvinnuleysi í þeim flestum hefur minnkað verulega mikið undanfarin ár, bæði í Englandi, Frakklandi, Þýskalandi og annars staðar þar sem atvinnuleysi hefur farið allt upp í 10--15% af vinnufæru fólki sem hefur verið atvinnulaust. Ég fylgist með fréttum frá þessum löndum á hverjum einasta degi gegnum sjónvarp þannig að staðreyndirnar blasa við.
    Hjá okkur er því svolítið öðruvísi farið. Við höfum fulla ástæðu til þess að óttast að við séum að komast inn í tímabil atvinnuleysis. Við erum með fjárlög sem hlupu verulega upp hjá síðasta hæstv. ráðherra fjármála og í ár hækka fjárlögin frá 65 og upp í 76 milljarða. Frv. segir ekki allt. Fjvn. og Alþingi á eftir að fjalla um það þannig að það gæti farið upp í 80--85 milljarða. Það kæmi engum á óvart að það gæti hækkað, ekki síður en hallinn hefur hækkað. Þetta þýðir að skattheimta mun aukast, eins og hæstv. fjmrh. hefur margendurtekið, og við það að skattheimta eykst minnka náttúrlega tekjur fyrirtækja og fyrirtækjum heldur áfram að fækka því að við vitum öll að fyrirtækjum hefur fækkað verulega. Það gerir að verkum að fleiri og fleiri fjölskyldur komast í erfiðleika eins og við höfum verið áhorfendur að. Þetta hefur skapað aukið atvinnuleysi og gert það að verkum að kaupgeta almennings sem heildar hefur minnkað gríðarlega mikið. Þó að enn þá sé stærri hópur sem hefur sæmilega kaupgetu sem betur fer hefur kaupgeta minnkað svo verulega að tekjur ríkissjóðs eru minni. Ég hef heyrt um það getið að minnkandi tekjur ríkissjóðs séu áhyggjuefni hæstv. fjmrh. og ríkisstjórnarinnar. A.m.k. tel ég mig hafa þessar upplýsingar frá áreiðanlegum heimildum og að þarna sé um verulegar áhyggjur að ræða.
    Við það að tekjur ríkissjóðs dragast saman verður að minnka umsvifin. Ég veit um ríkisstofnanir sem

hafa sagt upp fólki undanfarið af brýnni nauðsyn vegna þess að það hafa ekki verið til peningar til að fjármagna þau verkefni sem þegar voru ákveðin. T.d. má taka þá stofnun sem ég er með efst í huga núna, Iðntæknistofnun. Þar hefur mönnum verið sagt upp undanfarið vegna þess að verkefni sem átti að framkvæma fengu ekki fyrirhugaðar fjárveitingar. Þannig stækkar sá hópur sem hefur minnkandi kaupgetu og verður að ganga á hugsanlegt sparifé þannig að í farveginum eru verulegar áhyggjur af sívaxandi atvinnuleysi.
    Síðan hefur hæstv. fjmrh. látið hafa eftir sér, sem ég tel áhyggjuefni, kannski eitt það stærsta í okkar þjóðfélagi, að Samband ísl. samvinnufélaga, miðað við sama ástand, eigi eftir svona tíu mánuði ólifað, við skulum segja eitt ár, og stríði við vanda, vanda sem gæti kannski riðið Sambandi ísl. samvinnufélaga að fullu. Nú er það staðreynd, hvort sem við erum með eða móti samvinnuhreyfingunni, með eða móti Sambandi ísl. samvinnufélaga eða ekki, að Samband ísl. samvinnufélaga hefur vaxið samhliða íslensku lýðveldi, íslenskri þjóð og Samband ísl. samvinnufélaga hefur verið undirstaða vinnumarkaðarins um land allt. Nú vitum við að frystihús og stórir vinnustaðir Sambandsins víðs vegar um land eru í miklum vandræðum. Sumir hafa þegar lokað. Þetta skapar atvinnuleysi og ef það reynist rétt, sem hæstv. fjmrh. hefur látið hafa eftir sér, að Sambandið eigi lífdaga sem taldir eru í mánuðum eftir miðað við sama áframhald, blasir við gríðarlegt atvinnuleysi og í miklu stærra mæli og ríkara mæli í prósentutölu en í nokkru því Evrópuríki sem hann vitnaði til áðan. Þetta atvinnuleysi virðist vera samkvæmt ummælum hæstv. ráðherra á næsta leiti.
    Ég er þeirrar skoðunar og hef áður talað um það úr þessum ræðustól að hæstv. ríkisstjórn --- ekki bara þessi ríkisstjórn heldur allar ríkisstjórnir --- hafi farið öfugt að í skattamálum. Við höfum farið öfugt að í hugsunarhætti. Ég held að það sé athygli vert sem er að ske nú í Svíþjóð. Af því að hæstv. fjmrh. vitnaði til Bandaríkjanna og Reagans kemur mér í hug að Svíar telja sig vera að taka upp einhvern hluta a.m.k. af skattakerfi þeirrar íhaldsstjórnar sem ég hélt að væri síst til fyrirmyndar fyrir núv. ríkisstjórn
á Íslandi. Það er ósköp einfaldlega að sjá til þess að fyrirtæki og fólkið í landinu haldi sem allra mestu eftir af sínum sjálfsöflunartekjum, að kaupmátturinn verði eins mikill og mögulegt er til þess að fólkið eyði peningum, til þess að ríkið fái tekjur af eðlilegri eyðslu en ekki af því að ríki taki peningana af fólki áður en fólk getur notað sjálfsaflaféð. Þetta er það sem er að ske í Svíþjóð núna og þetta er það sem ég held að sé eðlilegur gangur mála, að hver fái sitt en ekkert meira, að ríkið taki ekki af fólki og fyrirtækjum sjálfsaflafé áður en viðkomandi aðili fær að njóta afraksturs erfiðis síns. Þess vegna hefði ég gjarnan viljað sjá ríkisstjórnina, þó að ég sé ekki beint stuðningsmaður hennar, það er langt frá því, fara inn á einhverjar slíkar brautir.
    Fram að síðasta ári bjuggu bæði ríkisstjórn

Steingríms Hermannssonar og ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar við vandamál sjávarútvegsins, vandamál í íslensku efnahagskerfi sem að verulegu leyti voru sögð byggjast á tvennu: Á verðbólguþróuninni og mjög háu hráefnisverði. Þegar olíutunnan var komin upp í 25 dollara var það sagt valdur að allri okkar ógæfa. Nú er verðbólgan, hæstv. fjmrh., komin niður í núll og nú er olíutunnan komin niður í 10--14 dollara. En vandinn sem við höfum við að glíma er nákvæmlega sá sami þó að þessi rök séu ekki lengur til staðar. Það þýðir ekki að segja: Dollarinn hefur lækkað. Vegna þess að verð á dollaranum er enn hærra en frá 1983 til 1987.
    Þessi verðbólga og vandamál í efnahag þjóðarinnar virðast nú vera meira heimatilbúin en nokkru sinni áður og engin skýring hefur komið fram hvers vegna. Ástæðan er að sjálfsögðu sú að ríkið er farið að eyða langt, langt umfram það sem fólkið í landinu þolir í álagningu og það er þess vegna sem fiskvinnslufyrirtæki loka og að búist er við að 10--20 verslanir á einum stað í Reykjavík loki upp úr áramótunum. Það er talið að þjónustu- og verslunarfyrirtæki í Reykjavík bíði aðeins eftir þeim eina mánuði á árinu sem gefur þeim veltu sem samsvarar að jafnaði veltu hinna 11 mánaðanna til þess að loka. Þess vegna á ég svo erfitt með að skilja þegar hæstv. fjmrh. hefur engar áhyggjur af vinnumarkaðinum og að hér geti verið atvinnuleysi á næsta leiti. Ég ber þennan ótta í brjósti og ég er reiðubúinn til að taka þátt í hvaða skynsamlegum lausnum sem hæstv. ríkisstjórn eða aðrir --- virðulegur forseti, ég ætlaði að fara að segja aðrir hér inni og ég geri það. Ég veit að þeir sem eru hér inni eru þeir sem hafa mestar áhyggjur af ástandinu í þjóðfélaginu. Hinir sem ekki telja sig þurfa að vera viðstadda þegar svona umræður fara fram hafa náttúrlega engar áhyggjur af stöðu mála.
    Gengisbreyting var og er miklu áhrifameiri hér og miklu meiri sveiflur eru í efnahag okkar litlu þjóðar heldur en í þeim löndum sem við erum að miða okkur við. Ég var t.d. í Bandaríkjunum skömmu eftir gengisbreytingu dollarans, þegar hann átti að hafa fallið meira en okkar veikburða efnahagur átti að þola. Þegar ég kom til Bandaríkjanna og bjó þar í hálfan mánuð til þrjár vikur spurði ég fólk úr viðskiptalífinu og einstaklinga hvort gengisfellingin hefði komið þungt niður á fólkið í landinu, hvort minni kaupmáttur dollarans hefði gert því erfiðara fyrir. En fólkið heima fyrir hafði bara enga hugmynd um gengislækkun. Verð hafði ekki breyst á neinu. Það hafði ekkert breyst innan lands þó að sveiflurnar í dollaraverði hér hefðu komið mjög illa við íslenskt efnahagskerfi og þjóðfélag. Það má því ekki ske að hæstv. fjmrh. noti sveiflur á erlendum gjaldeyri innan lands hjá okkur til þess að kenna vanda í öðrum löndum um okkar ógæfu. Ég endurtek þess vegna: Vandinn hér er heimatilbúinn. Þess vegna getum við sjálf lagað hann og ég tek undir margt af því sem kom fram hjá hv. 1. þm. Suðurl. í þessum efnum.
    Ég sé ekki ástæðu til að tefja þessa umræðu mikið

lengur. Það liggur við að maður kunni það vel við sig þegar svo margir eru fjarverandi að maður vilji standa hérna miklu lengur. Það eru margir sem hafa saknað ríkisstjórnarinnar úr þingsölum en ég sakna hennar aldrei.
    En ég tek undir það sem hv. 1. þm. Suðurl. sagði um væntanlega keðju skattahækkana til þess að mæta hinum gríðarlegu auknu útgjöldum í krónutölu á næsta ári. Ég óttast því þennan heimatilbúna vanda sem er tilkominn vegna þess að útgjaldaaukning fjárlaga er meiri en fólkið í landinu þolir, því að jafna þarf útgjaldaaukninguna með nýjum og nýjum skattheimtum. Það yrðu skattheimtur þar sem fólk og fyrirtæki yrðu að láta af hendi sjálfsöflunarfé áður en þau hafa komist til þess að velta fénu. Það er þannig ekki eðlileg prósenta af veltu eða tekjum heldur er verið að taka af fólki 100% af óskiptum tekjum og það gengur ekki. Það er hægt að taka skatta af ágóða en það er ekki hægt að ganga á höfuðstól allan tímann. Með því að gera það erum við að skapa það atvinnuleysi sem hæstv. fjmrh. óttast ekki en ég sé að er á leiðinni, sérstaklega ef þær fullyrðingar sem hann hefur látið frá sér fara eru réttar, og hann er í aðstöðu til að fullyrða slíkt en ég ekki til að gera athugasemdir þar við, að eitt stærsta og öflugasta fyrirtæki þjóðarinnar sem er vinnuveitandi á borð við ríkið sjálft, þ.e. samvinnuhreyfingin, sé að fara á hausinn á næstu 10--12 mánuðum.