Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Það er hárrétt sem hæstv. fjmrh. sagði að frv. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði var fyrst lagt fram á árinu 1979 og síðan hafa þessi lög verið endurnýjuð árlega. Sá veldur hins vegar miklu sem upphafinu veldur og það hefur viljað bera við í okkar þjóðfélagi, þegar einhverjir skattar hafa verið teknir upp, að það hefur ekki gengið eins greiðlega að losa sig við þessa skattaófreskju aftur. Þó voru gerðar á þessu nokkrar breytingar. Þegar sjálfstæðismenn komu næst til áhrifa að stjórn landsins var þessi skattur lækkaður og var ætlunin að hann yrði látinn hverfa á nokkrum árum því það er alltaf erfitt að finna nýja skattstofna og því er erfitt þegar eitthvað hefur einu sinni komist á, þó að ranglátt sé, að halda því stöðugt áfram.
En nú þykir mér keyra um þverbak. Nú er ekki verið að framlengja þennan skatt, heldur er verið að tvöfalda skattaprósentuna auk þess sem hækkun verður á fasteignamati. Hér er því um verulegan skatt að ræða fyrir þá sem hafa greitt hann og þá skulum við taka nokkuð mið af því ástandi sem nú er í landinu. Það er verðstöðvun ríkjandi í þessu landi og ríkisstjórnin ætlar að lemja verðbólguna niður og segist hafa gert það og verðbólgan sé nú komin niður í núll. Í stað þess að vera trúr sinni stefnu og halda verðbólgunni á núllinu er ríkisstjórnin núna með þessu fyrsta frv. sínu að hækka þennan skatt að krónutölu um töluvert á annað hundrað prósent. Þá skulum við einnig líta á fleira í því sambandi. Hvernig er ástand og horfur í þeirri atvinnugrein, sem og öðrum atvinnugreinum, sem á að greiða þennan skatt? Er þetta sanngjarn skattur? Er þetta eðlilegt við verðstöðvun að taka upp svona gífurlega hækkun á þessum skatti og raunar að taka upp hækkun á honum hvort sem hún væri mikil eða lítil?
Dreifbýlisverslun er núna á undanhaldi. Þar eru þessar fasteignir fyrir. Þær hækka að fasteignamati og hæstv. fjmrh. ætlar að hækka þennan skatt á dreifbýlisversluninni um töluvert á annað hundrað prósent. Núna alveg nýverið var einn af höfuðstólpum Framsfl., sem er kaupfélagsstjóri stærsta kaupfélags landsins, KEA, Valur Arnþórsson, verðandi bankastjóri í Landsbankanum núna um áramótin, í útvarpi að viðra þá hugmynd að nauðsynlegt væri að setja á sérstaka styrkaðstöðu fyrir dreifbýlisverslunina vegna þess hve illa væri fyrir henni komið. Ég efast ekki um að þessi mikli ráðamaður í samvinnuhreyfingunni og í Framsfl. hafi ekki farið að hlaupa með þessa hugmynd í útvarp nema hafa um það náið samráð við forustu Framsfl. og þá flokksforingja sinn, hæstv. forsrh. Því tel ég að það sé nauðsynlegt, herra forseti, að hæstv. forsrh., formaður Framsfl., skýri fyrir þingheimi hvað sé á bak við þessa hugmynd Vals Arnþórssonar til þess að styrkja strjálbýlisverslunina. Er Framsfl. virkilega kominn á þá skoðun að hækka þurfi skattana á kaupfélögunum í landinu og þessari litlu einkaverslun sem eftir er úti á landi um á annað hundrað prósent eins og í þessu tilfelli? Á sama tíma er talað um að styrkja þessa atvinnugrein. Hefur ekki
hæstv. fjmrh. gert sér grein fyrir því að verslunin er að færast af landsbyggðinni og hingað til Reykjavíkur til stórmarkaðanna? Stórmarkaðirnir eru að taka við mikilli verslun sem áður var úti á landsbyggðinni. Þetta er sú breyting sem er að verða á verslun sem ekkert er hægt um að segja annað en það að verslunin víða úti á landi hefur farið halloka og hún er víðast hvar að fara á hausinn. Þá kemur þessi félagshyggjustjórn, hæstv. ríkisstjórn, og segir: Hvað varðar okkur um það þó að verslanir í heilu landshlutunum séu að fara á hausinn? Við ætlum að hækka skatta á henni um á annað hundrað prósent. Við ætlum hins vegar líka að halda niðri verðbólgunni. Hver borgar þennan skatt? Hver borgar þessa skatta? Hvað hefur gerst hér á undanförnum árum? Það sem hefur gerst er það að hér á höfuðborgarsvæðinu þar sem verslunin er mest hefur auðvitað tekist að færa þessa skattlagningu að verulegu leyti út í verðlagið. Það vitum við. Það hefur gengið svona fram til þessa, en hvort það gengur lengur er annað mál.
En það sem hefur gerst líka er að þar sem samdráttur hefur orðið verulegur í verslun hafa þessi fyrirtæki orðið að standa uppi með þennan skatt. Það segir okkur saga margra kaupfélaga úti á landsbyggðinni, saga margra annarra verslana þar.
Stórmarkaðurinn og verslunin hér í Reykjavík og næsta nágrenni Reykjavíkur tók við og jók umfang sitt um tíma, en er það ekki líka að verða liðin tíð? Hvað er svo að gerast núna í þróun mála á þessu sviði? Það sem er að gerast er að verslunin er að færast í ríkari mæli úr landinu. Hvað er að gerast núna í verðstöðvuninni? Fólk er að fara unnvörpum til útlanda og versla í stórverslunum í nágrannalöndum okkar. Nú er tekin upp sú nýbreytni í ferðalögum að menn fara í innkaupaferðir eldsnemma að morgni og koma seint að kvöldi þreyttir heim með fangið fullt af bögglum. Það er talið borga sig að fara í eins dags innkaupaferðir og það eru fleiri hundruð manns sem stunda núna þessa verslun, fyrir utan allt annað. Hvað ætli ríkissjóður missi í tekjur af því að færa verslunina með þessum hætti út úr landinu? Svo fær fólk gjaldeyrinn með afslætti, 20% afslætti má segja. Hæstv. forsrh. hefur talað um
15%, og alltaf heldur hjól ógæfunnar áfram að snúast. Valur Arnþórsson, sem ég vitnaði í áðan, viðhafði sömu ummæli á flokksfundi eða landsfundi Framsfl. þar sem þeir féllust í faðma, formaður Alþfl. og formaður Framsfl. Hann viðhafði þau ummæli að gengisbreyting væri nauðsynleg og væri fram undan.
Fólkið heldur áfram, það eykur á eyðsluna. Þegar það heyrir að frammámenn þjóðfélagsins, og vinsælustu menn þjóðarinnar og sennilega vinsælustu menn a.m.k. norðan Alpafjalla, eru sama sinnis er ósköp eðlilegt að fólkið haldi áfram: Ja, við verðum að flýta okkur að eyða. Við verðum að kaupa fyrir þær krónur sem við höfum á milli handanna og eiga nógu mikið og eyða nógu miklu því að þetta ástand getur ekki varað lengi. Ég er nú ekki verri maður en það að ég ann vel núv. hæstv. fjmrh. þess að fá með
réttu fleiri krónur í ríkiskassann en þá er þetta ekki leiðin til þess, að ráðast á þá sem eru farnir á hausinn og selja gjaldeyri til eyðslu með afslætti.
Fjmrh. á hverjum tíma á auðvitað að stuðla að því að öllu sé haldið til skila en það er ekki gert með þessu heldur þveröfugt. Tekjutap ríkissjóðs er upp á fleiri hundruð milljóna. Hvað er svo að gerast í framhaldi af þessari gjaldeyrissölu með afslætti? Það sem er auðvitað að gerast er að útflutningsatvinnuvegirnir eru látnir bera skaðann. Þeir fá ekki nægilega og eðlilega margar krónur fyrir sínar afurðir sem þeir flytja úr landi. Þeir sem eru að flytja inn, hvort sem það eru nauðsynlegar eða ónauðsynlegar vörur, eru að kaupa þær á niðursettu verði. Þeir eru að kaupa þær á tombóluprís og þetta er búið að ganga núna svo til í fleiri mánuði og þessar sífelldu yfirlýsingar um að gengisbreytingin sé í raun og veru nauðsynleg og hún sé orðin. Svo koma menn og berja sér á brjóst og segja að það komi ekki til greina að breyta gengi krónunnar. Það lækni ekki nokkurn skapaðan hlut. Sjávarútvegurinn sé orðinn svo skuldugur, hann fái ekkert meira þó að gengið sé skráð réttu verði, alls ekkert meira. En hvað skeður? Sjávarútvegurinn er ekki einn um þetta. Það sem við þurfum að gera er að þótt við réttum ekki af rekstrarstöðu eða efnahagsstöðu einhverra ákveðinna fyrirtækja erum við um leið að segja þjóðinni: þetta er hlutur sem er orðinn. Þetta er ekki til þess að ráðast að rótum efnahagsmeinsins. Þetta er viðurkenning á því sem er þegar orðið og við komumst ekki hjá því að viðurkenna það. Við getum ekki boðið neinni grein útflutningsfyrirtækja okkar að búa við þetta lengur. Við getum heldur ekki boðið samkeppnisiðnaðinum þetta sama. En að flytja svo inn það sem erlend fyrirtæki hafa fullunnið, á undirverði, er leiðin inn í kreppuna. Þetta er leiðin til atvinnuleysis eins og allir hljóta að skilja.
Ég held því að hæstv. fjmrh. sé að fara alranga leið með framlagningu frv. og ég verð að segja það að meðan fyrrv. ríkisstjórn var við völd var alltaf sagt: Það gerist ekki neitt. Það er ekki komist fyrir rætur meinsins. Ástæðan var sú að samstarfsflokkar Sjálfstfl. í þeirri ríkisstjórn voru aldrei tilbúnir að fara í aðgerðir. Svo koma þeir hlaupandi út úr Stjórnarráðinu, formaður Framsfl. og formaður Alþfl., og slíta þeirri stjórnarsamvinnu á Stöð 2 og það er sennilega eina ríkisstjórnin í veröldinni sem hefur verið slitið í sjónvarpi. Flokkurinn sem hafði forustu í ríkisstjórninni fékk fréttina á sjónvarpsskerminum á Stöð 2. Þetta er ekki traustvekjandi fyrir íslenska stjórnmálamenn og stjórn þessa þjóðfélags. Þeir sögðu báðir: Allt er þetta Sjálfstfl. að kenna og sér í lagi Þorsteini Pálssyni sem lagði fram tillögur og vildi fá afgreiðslu mála. Allt er þetta honum að kenna. Nú spyr ég: Nú er Þorsteinn Pálsson ekki lengur í ríkisstjórn, nú er Sjálfstfl. ekki lengur í ríkisstjórn, nú er Alþb. komið í ríkisstjórn með þessum tveimur flokkum sem voru einnig í fyrri ríkisstjórn. Hún er búin að sitja í tvo mánuði og það hefur ekkert gerst, ekki nokkur skapaður hlutur. Þeir höfðu allt á
hraðbergi. Það þyrfti bara að mynda nýja ríkisstjórn, þá væri björninn unninn, þá væri búið að koma öllu í besta lag. Ég vil alls ekki trúa því að þetta sé Alþb. einu að kenna. Það hlýtur að eiga sína aðild að þessu. En af hverju koma ekki þessar ráðstafanir, að rétta af framleiðsluatvinnuvegina, hvort sem það er í sjávarútvegi eða hinumn ýmsu greinum samkeppnisiðnaðarins? Þetta er alröng leið að fara við þær aðstæður sem núna eru í þjóðfélaginu.
Það er ekki hægt að segja að margmenni sé á fundi hæstv. Nd. en mér finnst nú rétt, af því að það er ekki orðið svo áliðið dags því klukkuna vantar fimmtán mínútur í sex, að taka fram að fjmrh. er eini ráðherrann viðstaddur, og ég er ekkert að þakka honum það alveg sérstaklega af því að hann er að mæla hér fyrir frv. sem heyra undir hans ráðuneyti, og eini stjórnarliðinn sem sést í deildinni er hæstv. forseti Nd. og það skilja nú allir af hverju hann er hérna. Þeir fáu sem eftir eru eru stjórnarandstæðingar. Þetta er nú áhugi stjórnarliðsins á skattamálum og fyrsta skattafrv. sem ríkisstjórnin ber fram. Hvað verður þá þegar skattafrv. verða orðin fleiri? Verða ekki bæði fjmrh. og forseti deildarinnar bara orðnir örþreyttir og nenna ekki lengur að standa í þessu. (Gripið fram í.) Ég spyr hæstv. fjmrh.: Finnst honum ekki rétt að hæstv. forsrh. skýri stefnu Framsfl. og þessa hugdettu verðandi landsbankastjóra? ( Fjmrh.: Frv. er stefna Framsfl.) Er þetta virkilega hún? Þó ég vilji ekki segja hæstv. fjmrh. segja ósatt er ég svo tortrygginn að ég vil
fá að heyra hæstv. forsrh. staðfesta þetta og gefa frekari skýringu. ( Fjmrh.: Já.) Það þýðir ekkert að vera að tala alltaf svona. Það er auðvitað voðalega gott og ég er alveg undrandi á því að maður sem er jafnfljótur að hugsa og hæstv. fjmrh. skyldi ekki, þegar var verið að lýsa skoðunum hans flokks, bæði hans og fyrrv. formanns þingflokksins, núv. hæstv. samg.- og landbrh., nota þessa einu setningu sem er hægt að afgreiða andstæðinginn á, að þetta hafi verið svona þá, þetta var okkar skoðun þá eins og á virðisaukaskattinum. Auðvitað mega menn skipta um skoðun. Það mega það fleiri en hæstv. núv. forsrh. En ég fer að halda, ef Alþb. ætlar að halda áfram að snúa svona gjörsamlega við blaðinu í öllum málum frá því sem það hefur áður haldið fram, að þeir séu alætur.
Alþfl. hefur verið á móti frv. og talið að það komi ekki til greina, en það er enginn sjáanlegur nema hæstv. forseti sem getur vegna síns virðulega embættis alls ekki staðið í því að verja Alþfl., nema með því að ná sér í varaforseta, annan hvorn. Alþfl. veit ekki orðið sitt rjúkandi ráð. Það er kannski skýringin á því að það finnst enginn þm. fyrir Alþfl., að þeir séu að leita að kúrsinum sem Alþýðublaðið hefur verið að kvarta um að væri týndur. Kannski kúrsinn hafi farið út í heim með formanninum. ( Gripið fram í: Og átt sér bróður að baki.) Ja, það er kominn tími til þess að a.m.k. einhver af þessum þremur stjórnarflokkum finni kúrsinn, nema kúrsinn sé hjá Stefáni Valgeirssyni. Það má vel vera. Það er kannski besti kúrsinn sem þeir
geta fengið.
Ég furða mig á því að ríkisstjórnin skuli leggja hér til á sama tíma og hún er að krefjast þess af almenningi í landinu að hann sýni skilning og gæti hófs í kröfugerð --- á sama tíma og hér er verðstöðvun í landinu er komið með skattahækkun sem er í raun og veru um á annað hundrað prósent. Ég skil alls ekki þessa afstöðu ríkisstjórnarinnar og ég sé ekki annað en að þessi ríkisstjórn ætli ekki að ná nokkrum tökum á þeim vanda sem fram undan er. Það er ekki nóg að tala alltaf um vandann og ganga svo aldrei hreint til verks um að leysa vandann og finna hvar rætur meinsemdarinnar eru en halda ekki áfram svona glórulaust eins og með þessu frv. er verið að leggja til.
Ef einhvern tímann hefur verið réttlætanlegt að leggja fram frv. sem þetta er það alls ekki á þessu ári. Við sjáum fram undan fleiri tugi gjaldþrota í verslun og viðskiptum. Ef hæstv. fjmrh. ætlar að koma í veg fyrir áframhaldandi fjárfestingu eins og nú standa sakir væri sönnu nær að gera það með þeim hætti að hamla á móti þeim sem ætla að fara að hefja byggingar nú, til þess að draga úr spennunni. Að vísu hefði það mátt koma miklu fyrr en það á ekki að hegna þeim sem á engan hátt mega við því að fá á sig aukinn kostnað og aukna skattheimtu. Þar nefni ég aftur strjálbýlisverslun í landinu sem er að verða að engu.
Það er víða vá fyrir dyrum, bæði í útflutningsatvinnuvegunum og annars staðar. Við þurfum að gera þær ráðstafanir sem gera það að verkum að við færum verslun og viðskipti og framkvæmdir inn í landið en kaupum þær ekki af erlendum þjóðum. Ef þessi ríkisstjórn ætlar að koma í veg fyrir vaxandi atvinnuleysi um allt land verður hún að taka upp aðra stefnu en þessa hérna.