Flm. (Ingi Björn Albertsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga á þskj. 101 um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987. Frv. er svohljóðandi:
,,1. gr.: Við 81. gr. laganna bætist ný málsgrein er verður 1. mgr. og orðast svo:
Þjóðvegur með vegnúmeri 1 skal vera aðalbraut og hvarvetna hafa forgang gagnvart annarri umferð.
2. gr.: Lög þessi öðlast gildi 1. október 1989.``
Í greinargerð segir eftirfarandi: ,,Flestir álíta að hringvegurinn, þjóðvegur númer 1, sé alls staðar aðalbraut. Svo er hins vegar ekki. Þessi misskilningur veldur verulegri slysahættu og ljóst er að til hans má rekja orsakir allmargra slysa sem orðið hafa í umferðinni. Sem viðleitni til frekara umferðaröryggis er frumvarp þetta flutt.``
Grg. með frv. er mjög stutt enda málið augljóst og sjálfsagt í mínum huga að ekki á að þurfa að hafa um það langt mál, enda er það ekki meining mín. Ég vil þó að það komi fram hér í umræðunum að ég reyndi að hafa samband við vegamálastjóra vegna málsins, en hann var því miður erlendis. Í hans stað hafði ég samband við umdæmisverkfræðing Vegagerðarinnar í Borgarnesi, Birgi Guðmundsson. Tók hann undir það að fyllilega væri orðið tímabært að taka á málinu þar sem óbreytt fyrirkomulag skapaði verulega slysahættu vegna þess að ökumenn álitu sig vera að aka á aðalbraut er þeir ækju þjóðveg númer 1.
Þá setti ég mig einnig í samband við Óla H. Þórðarson hjá Umferðarráði og lýsti hann yfir stuðningi sínum við frv. en benti jafnframt á að um nokkur vafasöm gatnamót væri að ræða þar sem umferð væri meiri á viðkomandi vegi en á þjóðvegi 1 en að á því yrði að taka sérstaklega og jafnvel að breyta þeim gatnamótum.
Þá hef ég einnig undir höndum afrit af bréfi frá sýslumanninum í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, dags. 19. ágúst 1985, til Umferðarráðs um einmitt þetta málefni, en það hljóðar svo með leyfi forseta:
,,Sendi yður hér með til athugunar samþykkt sem gerð var á síðasta aðalfundi sýslunefndar Borgarfjarðarsýslu, mál nr. 41/2.``
Þetta er undirritað af Rúnari Guðjónssyni.
Samþykktin er svohljóðandi:
2. Aðalfundur sýslunefndar Borgarfjarðarsýslu 1985 telur að stefna beri að því að gera hringveginn, þ.e. þjóðveg númer 1 að aðalbraut og felur sýslumanni að vinna að framgangi málsins.
Samþykkt samhljóða.
Bréf þetta var sent Umferðarráði og afrit send dómsmrn. og Vegagerð ríkisins.
Þá hef ég einnig undir höndum afrit af bréfi frá Umferðarráði, dags. 28. jan. 1986, þar sem fram kemur á hvern hátt Umferðarráð tók á bréfi sýslumannsins í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, en bréfið er svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,Sýslumaðurinn í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Á fundum Umferðarráðs 23. okt. og 11. des. 1985 var samþykkt sýslunefndar Borgarfjarðarsýslu, mál nr. 41.2 um þjóðveg nr. 1, til umræðu. Eftirfarandi
ályktun var gerð:
,,Fundur í Umferðarráði 11. des. 1985 beinir því til dómsmrn. og Vegagerðar ríkisins að þessir aðilar móti reglur um það hvaða þjóðvegir skuli teljast aðalbraut og verði þjóðvegur 1 sérstaklega hafður í huga í þessu sambandi. Jafnframt verði kannaðir aðrir valkostir.``
Ályktun þessi hefur verið send dóms- og kirkjumálaráðuneyti og Vegagerð ríkisins til umfjöllunar.
Þetta tilkynnist hér með.``
Undir bréfið ritar Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs.
Hæstv. forseti. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að því fylgir nokkur kostnaður að framkvæma það sem hér er farið fram á. Kostnaður er vegna skiltagerðar og uppsetningar, svo eitthvað sé nefnt. Hins vegar er ég ekki í nokkrum vafa um að þeim fjármunum er vel varið því að ekki þarf að verða mikil fækkun á slysum í umferðinni vegna núverandi ástands til þess að samþykkt þessa frv. borgi sig.
Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.