Getraunir
Miðvikudaginn 30. nóvember 1988

     Frsm. allshn. (Jón Helgason):
    Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um 1. dagskrármál þessarar deildar, frv. til l. um breytingu á lögum um getraunir. Á fund nefndarinnar kom Jón Árm. Héðinsson, sem er stjórnarformaður Íslenskra getrauna, og skýrði hann fyrir nefndinni efni frv. svo og rekstur Íslenskra getrauna.
    Nefndarmenn voru sammála um að mæla með samþykkt frv. Eiður Guðnason skrifar þó undir nál. með fyrirvara, en Salome Þorkelsdóttir var fjarverandi afgreiðslu málsins.