Eiturefni og hættuleg efni
Miðvikudaginn 30. nóvember 1988

     Frsm. heilbr.- og trn. (Valgerður Sverrisdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 155 um eiturefni og hættuleg efni. Heilbr.- og trn. hv. deildar hefur fjallað um frv. og mælir með að það verði samþykkt.
    Undir nál. rita Valgerður Sverrisdóttir, Karl Steinar Guðnason, Guðrún Agnarsdóttir og Stefán Guðmundsson. Aðrir nefndarmenn voru fjarstaddir afgreiðslu málsins.