Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Miðvikudaginn 30. nóvember 1988

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegur forseti. Þetta var ágætur endurflutningur á þeirri ræðu sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson flutti hér í gær, því að sú ræða sem hann flutti nú var svona 80% endurtekning á þeirri ræðu sem hann flutti hér í gær. Öllum þeim spurningum sem hann beindi til mín, nema einni, var svarað hér í gær þegar ég tók til umfjöllunar þær spurningar sem hann og hv. þm. Friðrik Sophusson og aðrir fulltrúar Sjálfstfl., Geir H. Haarde og Matthías Bjarnason töluðu bæði um það í umræðum um það frv. sem fyrr var á dagskrá í gær og það frv. sem er á dagskrá hér og nú.
    Það er svo sem hægt að fara að taka upp þau vinnubrögð hér á Alþingi að menn endurflytji ræður sínar og við endurflytjum þá svörin. En mér finnst það ekki vera skynsamlegt. Kannski er skýringin sú að þessi mikli ræðuflutningur hv. þm. Þorsteins Pálssonar fór algjörlega fram hjá Ríkissjónvarpinu í gær, að hann sé að endurflytja ræðuna hér og nú í því skyni, því að sjónvarpið flutti eingöngu frásögn af ágætri ræðu hv. þm. Kristínar Halldórsdóttur.
    Ég tel þess vegna að það sé algjör óþarfi að fara aftur í gegnum það sem ég sagði hér í gær varðandi nánast öll þau efnisatriði sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson vék að, nema eitt atriði sem ég skal koma að á eftir.
    Ég vil einnig vekja athygli á því að hv. þm. Þorsteini Pálssyni er tamt að tala fyrir hönd stjórnarandstöðunnar. Hann gerði það t.d. hér í síðustu viku. Kom upp og lýsti því yfir fyrir hönd stjórnarandstöðunnar að hún væri andvíg tilteknu máli. Það varð svo til þess að ágæt forustukona Kvennalistans kom upp og lýsti því yfir fyrir hönd stjórnarandstöðunnar að hún væri með viðkomandi máli, hv. þm. Þorsteini Pálssyni til háðungar. Það má einnig geta þess að á fyrstu vikum þingsins hafði þetta þó náð þeim árangri að fréttaritari útvarpsins sagði að umræða í þinginu hefði sýnt það að hv. þm. Þorsteinn Pálsson væri leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Þorsteinn Pálsson, virðulegur þingmaður, er formaður Sjálfstfl. og það ber auðvitað að sýna honum fulla virðingu sem slíkum. Sjálfstfl. er hins vegar aðeins einn af þeim flokkum hér á Alþingi sem ekki eru í þessari ríkisstjórn. Ég vil gera það alveg skýrt hér að ég hef ávallt og mun áfram fylgja þeirri reglu að þeir flokkar, sem ekki eru í viðkomandi ríkisstjórn á Íslandi, mynda sjálfstæðar einingar hver fyrir sig og ber að koma fram við þá sem slíka. Þar eru forustumenn hvers flokks fyrir sig jafnréttháir hver öðrum. Og enginn þeirra er með forgang fram yfir aðra eða situr þar í æðri sessi.
    Þetta held ég að sé alveg nauðsynlegt að komi fram vegna þess að í þeirri ræðu sem hér var að ljúka reyndi hv. þm. Þorsteinn Pálsson enn á ný að tala fyrir hönd stjórnarandstöðunnar, lýsti því m.a. yfir að stjórnarandstaðan væri reiðubúin að mæta ríkisstjórninni á miðri leið --- ef þetta og ef hitt.
    Þá er aðeins eitt atriði sem er eftir og það er það eina sem hafði gerst frá ræðu hv. þingmanns í gær sem ítarlega var svarað í umræðunum í gær. Það er

viðtalið við hæstv. forsrh. í Þjóðviljanum í dag. Þar segir hæstv. forsrh. að rætt verði við stjórnarandstöðuna um þau mál sem ríkisstjórnin er hér með. Það er sjálfsagt og eðlilegt sjónarmið. Það kom fram í umræðunum í gær að allir flokkar sem ekki styðja ríkisstjórnina lýstu yfir samþykki sínu við frestun gildistöku virðisaukaskattsins sem er ígildi 1200 millj. kr. tekjubreytingar fyrir ríkissjóð. Ég fagnaði þeim viðbrögðum, þannig að þessi samskipti hafa nú þegar að þessu leyti skilað þeim árangri að samstaða hefur náðst með öllum flokkum um þessar 1200 millj. sem þarna var rætt um, þó að ég hafi að vísu getið þess að það var ekki höfuðástæðan. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Pálssyni fyrir ágætan árangur af þeim viðræðum okkar í gær.
    Annað held ég að sé ekki um þetta að segja. Eins og ég sagði í gær, og vænti þess að hv. þm. hafi heyrt, munu tekjuöflunarfrv. koma fram hér næstu daga og þá gefst þingmönnum tækifæri til þess að ræða þau hvert og eitt.