Áfengiskaup handhafa forsetavalds
Mánudaginn 05. desember 1988

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Ég sé ástæðu til að þakka Ríkisendurskoðun fyrir afskipti hennar af þessu máli. Ég sé einnig ástæðu til að þakka hæstv. fjmrh. fyrir þau afskipti sem hann hefur haft. Og ég sé einnig ástæðu til að þakka hæstv. forseta sameinaðs þings fyrir hógværa yfirlýsingu sem forsetaembætti sameinaðs þings gaf til blaða varðandi þetta mál. En ég harma að hafa orðið vitni að því að fyrrv. forseti sameinaðs þings fór ekki rétt með tölur um sín áfengiskaup.