Áfengiskaup handhafa forsetavalds
Mánudaginn 05. desember 1988

     Þorv. Garðar Kristjánsson:
    Hæstv. forseti. Það er raunar svo augljóst hvað ég þarf að segja núna, að ég vil aðeins endurtaka það, sem ég sagði áðan, að það hefðu verið mistök, sem hafa sjálfsagt verið mér að kenna, að það var hægt að misskilja viðtal mitt í Sjónvarpinu. Ég sagði að þegar ég hefði komist að þessu hefði ég gert ráðstafanir til þess að þetta væri leiðrétt og það var leiðrétt. Ég læt mér nægja að segja hv. 2. þm. Vestf. þetta tvisvar. Hann má svo eiga sitt álit í þessu efni.