Bætt samkeppnisstaða innlends skipaiðnaðar
Mánudaginn 05. desember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill upplýsa að vegna eindreginnar beiðni hv. 3. þm. Norðurl. v. og með tilliti til þeirra tilheyrenda sem hann átti von á varð forseti við því að hann fengi orðið í upphafi fundar. Það er ákaflega erfitt að gera öllum til hæfis, en forseti vill leitast við í lengstu lög að sýna liðlegheit þegar um er beðið. En það er erfitt mörgum herrum að þjóna. Ég hef einungis ákveðið að fresta þessari umræðu, hún fer fram síðar í dag, þannig að ég held að það sé engin hætta á öðru en að hv. 1. þm. Reykv. komi sínu máli að.