Þorsteinn Pálsson:
Frú forseti. Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa óskað eftir því að hér færi fram umræða utan dagskrár um vanda sjávarútvegsins. Ég þakka forseta og hæstv. sjútvrh. fyrir að ljá máls á því að taka þátt í þessari umræðu hér í dag.
Það fer ekki milli mála og hefur verið ljóst um alllangt skeið að íslenskur sjávarútvegur hefur búið við mikinn vanda sem er erfiður úrlausnar. Hann er af margþættum toga spunninn og við honum eru engar einfaldar lausnir. En mál eru sannarlega kominn í þann farveg að lengur verður ekki beðið með aðgerðir, lengur verður ekki við það unað að biðleikir einir séu leiknir. Afkoma íslensku þjóðarinnar er sannarlega undir því komin að rekstur sjávarútvegsins gangi skaplega og því er nauðsyn á því að hér fari fram umræða um þessi efni og hæstv. ríkisstjórn geri grein fyrir nauðsynlegum aðgerðum til úrbóta í rekstri sjávarútvegsins.
Það er að sönnu mikilvægt mál sem tekið var á dagskrá fyrr á þessum fundi, en það má öllum vera ljóst að skipasmíðaiðnaður á Íslandi á allt undir því að rekstur sjávarútvegsins gangi og það er haldlítið að flytja hér tillögur eða langt mál um nauðsyn aðgerða til að styrkja skipasmíðaiðnaðinn ef ekki hafa áður verið teknar ákvarðanir sem tryggja rekstur sjávarútvegsins, útgerðar og fiskvinnslu í landinu.
Þessi vandi er ekki nýr af nálinni og orsakir hans eru margþættar. Á þessu ári hafa í tvígang verið gerðar ráðstafanir til að mæta vandanum fyrst og fremst vegna breyttra ytri ástæðna. Í septembermánuði varð hins vegar svo alvarlegur ágreiningur um nauðsynlegar aðgerðir að þáverandi ríkisstjórn þurfti að slíta samvistum og mynduð var ný ríkisstjórn. Það hefur verið upplýst hér á hinu háa Alþingi af talsmönnum stjórnarflokkanna að hún hafi ekki gert aðgerðir í þágu sjávarútvegsins heldur leikið í því efni ,,biðleik`` eins og það var orðað. Um þetta varð ágreiningur í september. Það var ágreiningur um þetta sem leiddi til stjórnarslita.
Í sumar sem leið gengu yfirlýsingar manna þó á þann veg að ekki fór milli mála að bæði Sjálfstfl. og Framsfl. töldu að lengur yrði ekki dregið að gera raunverulegar ráðstafanir en til loka ágústmánaðar eða byrjunar septembermánaðar, en nú situr Framsfl. í forustu fyrir nýrri ríkisstjórn sem leikið hefur einvörðungu biðleiki í þessu efni eins og hv. 10. þm. Reykv. hefur lýst aðgerðum stjórnarinnar.
Nýlega hafa verið birtar nýjar tölur um afkomu í sjávarútvegi, bæði frá Þjóðhagsstofnun og endurskoðendum sjávarútvegsfyrirtækja. Þessar tölur sýna að vandi sjávarútvegsins er miklum mun meiri en talsmenn núverandi ríkisstjórnar töldu eftir að þeir höfðu kynnt þær aðgerðir sem nú eru kallaðar biðleikur, en þá var talið, eftir að biðleiknum var leikið, að botnfiskveiðar og vinnsla væru reknar með 1% halla, veiðarnar með 3% halla, frystingin með 1 / 2 % hagnaði og söltun með 3% hagnaði. Þess er þó að geta að inni í þessum tölum er framlag ríkissjóðs í Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins eins og hæstv.
sjútvrh. hefur skilgreint þá ráðstöfun.
Nú gerir Þjóðhagsstofnun hins vegar ráð fyrir því að botnfiskveiðar og vinnsla í heild séu reknar með 4--5% tapi, veiðarnar með 4--5% tapi, frystingin með 4--5% tapi og söltunin með 2% hagnaði. Tölur sem samtök atvinnufyrirtækjanna sjálf og endurskoðendur hafa gefið út benda til meiri tapreksturs. Það er út af fyrir sig ekki nýtt af nálinni að mismunur hafi verið á milli talna um afkomu í sjávarútvegi frá Þjóðhagsstofnun og hins vegar forustumönnum samtaka í sjávarútvegi. Sá mismunur skiptir ekki höfuðmáli í þessu efni. Aðalatriðið er að það er ljóst að hallarekstur í sjávarútvegi í heild er nú svo mikill að ekki verður við unað.
Það hefur komið fram í skjölum Þjóðhagsstofnunar að sá mismunur sem er á afkomutölum frá því að biðleikur núv. ríkisstjórnar var kynntur og þar til nýjar tölur voru birtar fyrir nokkrum dögum eigi fyrst og fremst rætur að rekja til þess að í biðleiknum var áformuð lækkun á raforkuverði og 3% lækkun raunvaxta. Jafnframt tekur Þjóðhagsstofnun fram að gengi bandaríkjadals hafi lækkað um 5% miðað við septembertölur og nú sé reiknað með heldur meiri aflasamdrætti en þá var gert ráð fyrir. Jafnframt liggur ljóst fyrir að sjávarútvegurinn á ekki hér einn í hlut. Vandi annarra atvinnugreina er mjög mikill einnig, ekki síst útflutnings- og samkeppnisiðnaðar sem er undir svipaða sök seldur.
Það hefur komið fram af hálfu hæstv. sjútvrh. og hæstv. forsrh. að undanförnu að nauðsynlegt væri að grípa til raunhæfra aðgerða. Engin svör hafa þó fengist við spurningum um það í hverju þær aðgerðir eru fólgnar né hvenær þær eiga að koma fram. Af hálfu talsmanna Alþb. í ríkisstjórn verður hins vegar ekki annað ráðið en að biðleikurinn einn eigi að duga og með öllu hefur því verið hafnað að breyta gengi krónunnar. Þó liggur fyrir í yfirlýsingum hæstv. forsrh. að raungengi krónunnar sé nú allt of hátt, en samt verði það ekki leiðrétt fyrr en síðar og enginn fær skýringu á því hvenær þetta ,,síðar`` er, hvort það er síðar í þessari viku, síðar í þessum mánuði, hvort það er með vori komanda eða kannski ekki fyrr en á nýrri öld.
Hæstv. sjútvrh. hefur nú lýst því yfir að af þessum sökum verði að lækka laun og er þá tekin upp á ný umræða um svokallaða niðurfærslu. Samt liggur hér fyrir þinginu frv. frá hæstv. ríkisstjórn til staðfestingar á bráðabirgðalögum sem felur í sér lögbundna hækkun á launum þegar gildistími launastöðvunar er úti um miðjan febrúar. Yfirlýsingar ganga því hér í tvær áttir, annars vegar um nauðsyn launalækkunar, sem hlýtur þá að fara fram með lögum, og hins vegar yfirlýsing um að laun eigi að hækka með lögum þegar launafrystingu lýkur. Úr því þarf auðvitað að fást skorið í hvora áttina ríkisstjórnin stefnir.
Vandi sjávarútvegsins er af mörgum rótum runninn. Fyrir um það bil ári byrjaði bandaríkjadalur að lækka. Síðan kom verðfall á erlendum mörkuðum. Það hefur orðið samdráttur í afla og enn á sá vandi eftir að aukast á næsta ári. Sjávarútvegurinn er enn að kljást
við þann vanda sem hlaust af misgengi í hagkerfinu þegar í góðæri, við verðum að játa það, fjármunir soguðust frá útflutningsframleiðslunni yfir til neyslunnar í þjóðfélaginu með þeim afleiðingum að ofneysla varð í hagkerfinu og umframeftirspurn eftir vinnuafli. Með aðgerðum tókst að draga úr þessari umframeftirspurn og hún var komin í jafnvægi í septembermánuði sl. Nú horfir hins vegar í þá átt með þeirri efnahagsstefnu sem enn er fylgt, með skattahækkunum og þeirri stefnu að framfylgja skráningu á gengi krónunnar sem er algerlega óraunhæf, að atvinnulífið smám saman lamist og í stað þess að við hefðum náð jafnvægi á vinnumarkaðnum í september stefnir nú í atvinnuleysi ef ekkert verður að gert, atvinnuleysi sem gæti orðið 4--5% þegar líður á þennan vetur.
Frystingin á svo auðvitað við sérstakan vanda að etja umfram þann almenna vanda sem hér er til umræðu. Auk minni afla hefur ferskfiskútflutningur aukist og sjófrysting orðið meiri. Allt eru þetta sérstakar aðstæður.
Ég er þeirrar skoðunar að það sé engin allsherjarlausn til og sú krafa verður auðvitað ekki borin hér fram til hæstv. ríkisstjórnar að hún leysi allan vanda sjávarútvegsins í einu vetfangi. Hann er miklu alvarlegri en svo og þær ytri aðstæður sem hér hafa breyst og uppbygging atvinnugreinarinnar eru með þeim hætti að slíkar kröfur verða ekki með sanngirni bornar fram ef umræða um þetta á að vera málefnaleg. Það eru engar almennar aðgerðir sem geta í einu vetfangi bjargað öllum atvinnufyrirtækjum í þessari grein. Ég tek undir það sjónarmið, sem komið hefur fram hjá hæstv. forsrh., að slíkar ráðstafanir eru ekki til sem bjarga öllum fyrirtækjum í þessari atvinnugrein og gagnrýni hann ekki fyrir þau ummæli. Ég tek líka undir það að raunhæfar ráðstafanir hljóta að fela í sér kaupmáttarrýrnun við þessar aðstæður og raunhæfar ráðstafanir hljóta líka að fela í sér mikið aðhald eða samdrátt í ríkisbúskapnum og fráhvarf frá þeirri skattastefnu sem nú er fylgt og leggst með mjög miklum þunga á atvinnulífið í landinu.
Hæstv. ríkisstjórn þarf ekki að óttast að hún fái gagnrýni á sig fyrir ráðstafanir þó að þær hafi þessar afleiðingar. Þvert á móti hljóta menn í málefnalegri umræðu um þetta að gera sér fulla grein fyrir því að vandinn er mikill og að hann hlýtur að deilast niður á þjóðina alla. Það er ekki hægt að koma fram ráðstöfunum nema deila byrðunum réttlátlega niður á alla í þjóðfélaginu. Það er af þeim sökum ástæðulaust fyrir hæstv. ríkisstjórn að draga það að taka ákvarðanir í þessu efni ef hún óttast gagnrýni af þessum sökum.
Umræðan af hálfu hæstv. ríkisstjórnar bendir hins vegar til þess að sumir aðilar innan hennar telji nauðsyn á aðgerðum en fái engu um þokað, en aðrir telji nægjanlegt að leika þann biðleik sem ríkisstjórnin gerði við myndun hennar. Það væri mjög nauðsynlegt að fá upplýsingar um það frá hæstv. sjútvrh. hvort sú tilfinning sem allur almenningur hefur af þessari stöðu sé rétt því auðvitað er það áhyggjuefni ef það viðhorf
er innan stjórnarinnar og einkanlega hefur verið lýst af hálfu ráðherra Alþb. að ekki þurfi að gera neinar ráðstafanir. Ég trúi því a.m.k. að hæstv. sjútvrh. sé þeirrar skoðunar að það þurfi að gera ráðstafanir og hann sé þeirrar skoðunar að það sé ástæðulaust og beinlínis hættulegt að draga ákvarðanir þar um.
Eðli biðleiksins sem svo hefur verið nefndur felst í því að veita lán til sjávarútvegsfyrirtækjanna til þess að fjármagna tapið. Í því felst ekki nein lausn, fyrst og fremst gálgafrestur. Það sjónarmið hefur verið sett fram af hálfu fiskvinnslufyrirtækja að slíka lánafyrirgreiðslu ætti að veita eftir framleiðslumagni hvers og eins fyrirtækis en ekki eftir geðþóttaákvörðunum kommissarastjórnar sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa skipað. Síðan kemur sú spurning upp: Á að veita þessi lán fyrst og fremst til þeirra fyrirtækja sem verst eru stödd eins og ýmislegt bendir til þegar umræður eru hafnar um að ekki eigi að taka veð fyrir þeim lánum sem veitt eru og þegar fréttir berast af því frá ríkissjóði að ríkissjóður sé að leggja fram fjármuni til þess að bjarga rekstri ákveðinna fyrirtækja?
Nú er það svo að ég hef fullan skilning á aðstöðu manna í Súgandafirði. Þar ber eitt fyrirtæki uppi allt atvinnulíf í byggðarlaginu og alveg augljóst að fullkomlega eðlilegt er að horfa til þess vanda sem þar er fyrir hendi. En hitt hlýtur að vekja upp mjög margar spurningar þegar það er gert með þeim
hætti að veita fjármunum úr ríkissjóði eins og tilkynningar hafa verið gefnar um. Spurningar hljóta að vakna um hvort þetta á að vera aðferðin við að bjarga fyrirtækjunum í landinu. Á að velta því yfir á skattborgana með þessum hætti? Á að skilja best reknu og vel reknu fyrirtækin eftir? Kjarni málsins er einfaldlega sá að langflest fyrirtæki í sjávarútvegi eru vel rekin, en auðvitað eru þar innan um hús sem eru ekki eins vel rekin. Þar eru líka fyrirtæki sem hafa verið óheppin í fjárfestingum og þar fram eftir götum. En meginþorri fyrirtækja í sjávarútvegi er vel rekinn. Þessi fyrirtæki eru komin á vonarvöl. Ef hér á með biðleikjum einungis að lána fyrirtækjum og veita þeim fyrirtækjum sem allra verst eru sett gjafafé með framlögum úr ríkissjóði er verið að koma vel reknu fyrirtækjunum, flestum fyrirtækjum í sjávarútvegi, á kné því að þau njóta í engu ráðstafana af þessu tagi. En auðvitað er fyrst og fremst þörf á því að gera ráðstafanir sem tryggja hagsmuni vel rekinna fyrirtækja. Almennar ráðstafanir í efnahagsmálum hljóta að miða að því. Þær fréttir sem borist hafa af ákvörðunum hæstv. ríkisstjórnar benda því miður til hins, að það eigi að láta vel reknu fyrirtækin halda áfram að sökkva enn dýpra þangað til þau eru komin í sömu stöðu og verst reknu fyrirtækin í dag og það eru ekki svo margar vikur þangað til að því kemur.
Síðan berast fréttir af því að það eigi að senda sérstaka erindreka ríkisstjórnarinnar út um landsbyggðina til að endurskipuleggja fyrirtækin. Það kann vel að vera að það sé sums staðar þannig ástatt um stjórn fyrirtækja í sjávarútvegi að stjórnendurnir þurfi aðstoðar við. En í flestum tilvikum eru
stjórnendurnir ekki bara fullfærir um að stjórna fyrirtækjunum, endurskipuleggja þau og hagræða heldur miklu betur færir um það en nokkrir kommissarar ríkisstjórnarflokkanna. Og hættan sem í því felst ef taka á einstök fyrirtæki sem í reynd eru gjaldþrota og færa þeim fjármuni úr ríkissjóði er að þá sé í raun verið að stefna að því að þjóðnýta sjávarútveginn. Ég er ekki viss um að þetta sé markmið hæstv. ríkisstjórnar og er nánast sannfærður um að það er ekki markmið hæstv. sjútvrh., en ég gæti vel trúað því að ráðherrar Alþb. mundu ekki gráta það að ná því fram að koma sjávarútveginum svo á kné að það verði gripið til þess ráðs að ausa fjármunum úr ríkissjóði inn í fyrirtækin og koma þannig yfirráðum ríkisins yfir sjávarútveginn í landinu. Það er vafalaust til í hugskoti ráðherra Alþb. að fara þá leið, en ég trúi því ekki að óreyndu að þetta sé markmið hæstv. sjútvrh. Þess vegna er óhjákvæmilegt að hæstv. ríkisstjórn geri nú þegar grein fyrir þeim ráðstöfunum sem gera á.
Ég beini því til hæstv. sjútvrh., sem eðli máls samkvæmt ber ábyrgð á þessum málaflokki og hefur frumkvæðisskyldu um nauðsynlegar aðgerðir, hvort bjarga eigi fleiri fyrirtækjum með beinni aðstoð úr ríkissjóði, hvort það sé á döfinni að beita þeirri aðferð í fleiri tilvikum. Og í annan stað vil ég inna eftir því ef svo er hvort þær ákvarðanir byggjast á einhverjum almennum reglum sem ríkisstjórnin hefur sett eða heimildum sem ríkisstjórnin hefur aflað sér.
Í annan stað vil ég inna hæstv. ráðherra eftir því hvort veita eigi Atvinnutryggingarsjóði sérstakar heimildir til að lána án veðtrygginga og jafnframt spyrja í því tilviki hverjir það séu sem þá koma til með að bera ábyrgð á slíkum lánveitingum með sérstöku tilliti til þess að ekki fyrir löngu hafa menn verið kallaðir einmitt til ábyrgðar vegna þess að veð sem tiltekin bankastofnun tók rýrnuðu í verði. Höfuðspurningin er hins vegar sú: Til hvaða ráðstafana mun ríkisstjórnin grípa til þess að tryggja rekstur sjávarútvegsins? og í öðru lagi: Má treysta því að slíkar ráðstafanir verði kynntar þegar í þessari viku?