Vandi sjávarútvegsins
Mánudaginn 05. desember 1988

     Matthías Bjarnason:
    Virðulegi forseti. Það var að mörgu leyti dapurlegt að hlusta á ræðu hæstv. sjútvrh. sem nú hefur setið í því embætti í rúm fimm ár, eins og hv. síðasti ræðumaður greindi, og jafnframt því að í raun og veru liggur ekkert fyrir frá hendi ríkisstjórnarinnar. Það gekk nógu illa hjá fyrri ríkisstjórn en enn þá situr við það sama. Í fjárlagafrv. segir að fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar miði að því að rétta við stöðu útflutningsgreinanna, forðast atvinnuleysi, hemja verðbólgu. Meginaðgerðirnar voru þær að Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins verði gert kleift með lántöku að greiða allt að 5% verðuppbót á freðfisk. Verðstöðvun var framlengd til 28. febr. á næsta ári, en laun, almennt fiskverð og launaliður á verðlagsgrundvelli búvöru munu haldast óbreytt til 5. febr. á næsta ári. Til að bæta stöðu hinna verst settu var tekjutrygging elli- og örorkulífeyrisþega og heimilisuppbót hækkuð um 3% og 150 millj. kr. á að veita til að liðsinna húsbyggjendum og fjölskyldum þeirra í alvarlegum greiðsluerfiðleikum. Niðurgreiðslur voru auknar í október og ríkisstjórnin beitti sér fyrir lækkun bæði nafnvaxta og raunvaxta í upphafi október en þær aðgerðir voru framhald af því sem búið var að gera í fyrri ríkisstjórn.
    Þá segir í fjárlagafrv.: Laun haldast óbreytt til 15. febr. 1989 en hækka þá almennt um 1,25%. Lagaákvæði um takmörkun samningsréttar, er sett voru af fyrri ríkisstjórn í maí 1988 og áttu að gilda til 10. apríl, munu falla úr gildi 15. febr. Launaliður í verðlagsgrundvelli búvöru verður sömuleiðis óbreyttur til 15. febr. en hækkar þá um 1,25% og sama gildir um almennt fiskverð.
    Ríkisstjórnin beitti sér fyrir ýmsum aðgerðum til að milda áhrif launafrystingar á þá sem verst voru settir. Tekjutrygging elli- og örorkulífeyrisþega og heimilisuppbót hækkuðu um 3% 1. okt. Persónuafsláttur og barnabætur verða hækkaðar sérstaklega í tengslum við aðgerðir í skattamálum og gert er ráð fyrir 150 millj. kr. til skuldbreytinga húsbyggjenda.
    Allt kemur þetta fram hér í fjárlagafrv. Nú kemur hæstv. sjútvrh. og boðar að helsta áhyggjuefnið sé hvað launin séu há, að nú þurfi að lækka launin. Það er því skammt á milli fyrirheita þessarar hæstv. ríkisstjórnar þegar við berum saman rúmlega mánaðargamalt fjárlagafrv. og þá ræðu sem hæstv. sjútvrh. var að flytja hér áðan.
    Í lögum um Seðlabanka Íslands segir að ákvarðanir um gengi íslensku krónunnar skuli miðast við að halda sem stöðugustu gengi og ná jöfnuði í viðskiptum við útlönd en tryggja jafnframt rekstrargrundvöll útflutningsatvinnuveganna og samkeppnisgreina. Þarna er tvímælalaust, og fer ekki á milli mála, lagaákvæði um það að tryggja jafnframt rekstrargrundvöll útflutningsatvinnuveganna og samkeppnisgreina. En það eru fleiri greinar útflutningsafurða en sjávarútvegur. Það er atvinnulífsframtíðin fyrir ný atvinnufyrirtæki að þau standi jafnfætis í keppninni við erlend

atvinnufyrirtæki. Með því að skrá gengið rangt er verið að kippa grundvellinum undan öllum útflutnings- og samkeppnisgreinum í íslensku atvinnulífi. Forsrh. hefur haldið því fram að raungengi krónunnar væri rangt en það næði samt ekki nokkurri átt að leiðrétta það. Tilvonandi bankastjóri Landsbankans, mikill áhrifamaður í Sambandi ísl. samvinnufélaga, Valur Arnþórsson, sagði á framsóknarþinginu fyrir nokkru að gengið þyrfti að lækka um 15%. Hver er að biðja um gengislækkun? Ekki nokkur maður. Ég er sammála hæstv. sjútvrh. um það að það er enginn hér inni sem vill fá gengislækkun. Hins vegar er annað mál að þegar gengi er þegar fallið þá verða menn að játa staðreyndum, þá þýðir ekki að berja höfðinu við steininn, ekki í nokkra daga heldur í fleiri mánuði eins og búið er að gera. Og alltaf er sagt: Það þarf nýjar aðgerðir til þess að tryggja grundvöll atvinnulífsins, útflutningsatvinnuveganna. Svo nær þetta bara ekkert lengra. Hvað um hugbúnaðinn sem við höfum verið þátttakendur í og erum að selja okkar framleiðslu á erlendum vettvangi? Hvernig eiga þessi ungu fjárvana fyrirtæki að standast samkeppnina við rótgróin erlend fyrirtæki ef við neitum að játa þá staðreynd að gengi íslensku krónunnar er fallið? Og hvers vegna er verið að ýta undir eyðsluna með þessari röngu gengisskráningu mánuð eftir mánuð? Þúsundir landsmanna fara úr landi til þess að kaupa og kaupa núna fyrir jólin. Verslunin er að færast út úr landinu. Ríkissjóður er að glata stórfelldum tekjum í aðflutningsgjöldum af vörum og söluskatti með þessum hætti. En ráðherrarnir bara berja hausnum við steininn viku eftir viku og tala eins og þeir skilji ekki nokkurn skapaðan hlut.
    Hvað er um ýmsar aðrar atvinnugreinar en sjávarútveginn, eins og ullariðnaðinn, loðdýraræktunina? Ætli refirnir þyrftu ekki að fá rétt skráð gengi? Eða réttara sagt eigendur þeirra, og minkaframleiðendur, svo dæmi séu nefnd. Og hvað með tillöguna sem var flutt hér í dag um samkeppni innlends skipaiðnaðar? Er ekki verið að kaupa inn vinnuafl annarra þjóða á fölsku gengi, á gengi sem er ranglega skráð þannig að þeir sem stunda þennan iðnrekstur fara halloka í þeirri samkeppni?
    Það er talað mikið um gróða bankanna og tryggingafélaganna. Fær ekki
ríkissjóður aðild að því? Á að ganga það nærri tryggingafélögunum að þau geti ekki staðið við sínar skuldbindingar? Þau geta nú farið á hausinn eins og aðrir, eins og aðrar atvinnugreinar. Er ekki sérstakt tryggingaeftirlit samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi sem á að sjá um það að tryggingafélögin séu traustar stofnanir sem megi byggja á fyrir viðskiptamenn sína en ekki að þau hangi þannig að viðskiptamenn viti ekki hvenær þeir tapa því ef þeir verða fyrir tjóni í sambandi við það? Það verður að fara varlega í þessum efnum.
    Hæstv. sjútvrh., sem hefur setið í því embætti óslitið frá því í maílok 1983 og ætti þar af leiðandi að vera vel heima í því hvernig ástand og horfur eru í sjávarútvegsmálum, hefur nú tekið undir orð hæstv.

forsrh. að hann sjái enga ástæðu til þess að skrá gengi íslensku krónunnar réttu verði. M.ö.o.: Hann telur að þrátt fyrir stöðu sjávarútvegsins sé ekki ástæða til þess að breyta skráðu gengi. Skráð gengi skiptir miklu meira máli en það sem ég hef þegar nefnt. Það skiptir því máli að fólk veit hvað það má og hvað það má ekki. Þess vegna verður það að byggja á því hvað hlutirnir í raun og veru kosta en ekki að selja, eins og ég hef margoft tekið hér fram áður, gjaldeyri með afslætti.
    Það er gripið til skuldbreytingalána hvað eftir annað sem ekki skilja neitt eftir annað en það að þar sem rekstrarhalli er þar verður hann áfram þrátt fyrir þau skuldbreytingalán. Hæstv. sjútvrh. sagði að það gæti vel komið til og ætti að koma til að Byggðasjóður tæki að sér að leggja jafnvel fram hlutafé í ýmis fyrirtæki sem væru illa á vegi stödd. Við skulum athuga þetta aðeins nánar. Í stefnuskrá þessarar hæstv. ríkisstjórnar er talað um að efla Byggðasjóð. Eigum við svo ekki að líta á fjárlagafrv. og sjá hvernig það er gert? Það er gert með þeim hætti að honum eru ætlaðar 125 millj. kr. eins og hann hafði í fjárlögum þessa árs. En þar hefur bæst við. Miðað við þau lán sem sjóðurinn hefur tekið á þessu ári, þá greiðir hann ríkissjóði 86 millj. kr. í lántökugjald, um 23 millj. kr. í stimpilgjald og um 10 millj. kr. í ríkisábyrgðasjóðsgjald. Það verða m.ö.o. eftir 6 millj. kr. Þetta er nú myndarátak sem hæstv. ríkisstjórn er að leggja fram til uppbyggingar atvinnulífsins úti á landi. Stórmyndarlegt! Svo er auðvitað hægt að bæta á og gerast hluthafar með því að taka dýr lán erlendis og síðan á sjóðurinn sennilega að tapa algjörlega sínu eigin fjármagni. Og þá verður hægt að segja eins og sagt er um bankastjóra banka þegar þeir tapa lánum: ,,Það voru nú meiri hálfvitarnir sem voru í stjórn í þessari stofnun. Hún er búin að glata gersamlega eiginfjárstöðunni og sjóðurinn er þegar gjaldþrota.`` Þá mun ekki standa á vandlætingarpostulum, hvorki hér á hv. Alþingi né annars staðar.
    Við skulum bera saman framlag til byggðamála í landinu með þessum hætti. Í fjárlagafrv. er styrkur til blaðaútgáfu upp á 50 millj. kr. og til útgáfumála samkvæmt ákvörðun þingflokka 22 millj. kr. Á þessum tveimur liðum eru 72 millj. kr. Það var ekkert verið að hafa þetta sömu upphæð og var í fjárlögum ársins 1988. Nei, það var verið að hækka það verulega, margfalt meira en laun hækkuðu á milli ára. Þarna er ekki verið að skera við nögl sér.
    Ég spyr: Hvernig ætlar hæstv. ríkisstjórn, sem boðar núna stórfelldar skattahækkanir og óskar eftir samstarfi við stjórnarandstöðuna um þær miklu skattahækkanir, að búa að atvinnufyrirtækjunum í landinu? Hæstv. fjmrh. hefur sagt að það verði að láta þessar skattahækkanir fyrst og fremst koma á fyrirtæki. Hvar endar með þessi fyrirtæki? Er markvisst verið að stefna að því að þau leggi upp laupana hvert á fætur öðru og að atvinnuleysi herji hér um allt land á næstu vikum eða mánuðum? Það er þegar byrjað á því.

    Hv. 10. þm. Reykv. flutti hér afar þunga ádeilu á hv. 1. þm. Suðurl. í umræðum um fyrsta skattafrv. ríkisstjórnarinnar, um 100% hækkun á skatti á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, og taldi að allt væri það honum að kenna. Það máttu allir halda sem hér voru inni og hlustuðu á ræðu þessa hv. þm. að það hefði enginn annar verið í þeirri ríkisstjórn en hv. 1. þm. Suðurl. Ég verð nú að benda á það að enginn flokkur hefur setið lengur á undanförnum áratugum í ríkisstjórn en Framsfl. Hann hefur farið með þessi mál. Hann hefur farið með forsæti í ríkisstjórn í mörg ár og fer nú aftur. Hann hefur farið með sjávarútvegsmálin fyrst og fremst og þess vegna verður ekki hjá því komist núna að draga hann til nokkurrar ábyrgðar.
    Ég spyr: Hvernig stendur á því að meira að segja þar sem fjármagn er fyrir hendi hefur fyrirtækjum verið gert svo erfitt fyrir að þau hafa jafnvel farið á hausinn, þau hafa hallast á ógæfuhliðina eins og t.d. varðandi Verðjöfnunarsjóðinn? Ef við lítum á eignarstöðu rækjudeildarinnar, þá var talið að um síðustu áramót væru þar inni 450 millj. kr. Þegar framleiðendur komu og óskuðu eftir því að breyta útgreiðslum og hætta að greiða til sjóðsins vegna vaxandi tapreksturs, þá drógu stjórnvöld lappirnar í fleiri mánuði. Það þurfti ekki að útvega fjármagn til þess. Nei, alls ekki. Þegar ég ásamt hv. 2. þm. Norðurl. v. flutti frv. um gerbreytingu á Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins, þá brást hæstv. sjútvrh. mjög hart við og fór í slæmt geðillskukast, kom ekki einu sinni inn á meðan málið var til umræðu því að honum fannst svo nærri sér vegið að leyfa sér að flytja frv. þó að hann hefði
haft málið til athugunar. Þá voru skipaðir í nefnd af þeirri ríkisstjórn þrír menn sem komust að þeirri gáfulegu niðurstöðu að leggja beri þennan verðjöfnunarsjóð niður með öllu. Svo skeður það 4. júní, þegar þáv. hæstv. utanrrh. er á ferð vestur á fjörðum, nánar tiltekið á Ísafirði, að hann segir mönnum þar að hann gegni nú störfum sjútvrh., sem er þar vel vitað, og hann kemur til viðræðna við bæjarráð og forráðamenn rækjuverksmiðjanna. Þar gerir hæstv. utanrrh. og starfandi sjútvrh. grein fyrir tillögum nefndarinnar og sagðist hann hafa ákveðið í fjarveru Halldórs Ásgrímssonar að leggja fram skýrsluna til umfjöllunar. Hann lýsti því yfir að ríkisstjórnin hefði ákveðið að Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins yrði lagður niður, lagt yrði fyrir Alþingi frv. um málið í haust, sem sagt núna á sl. hausti. Ég hrökk við þegar ég sá þetta og spurði þáv. forsrh. hvort ríkisstjórnin væri virkilega búin að ákveða að leggja Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins niður. Nei, það hafði aldrei verið tekið til afgreiðslu í ríkisstjórn. ( Forseti: Forseti vill leyfa sér að spyrja hvort þm. eigi mikið eftir af ræðu sinni. Nú er klukkan sex mínútur yfir fimm og þingflokksfundir ættu að vera byrjaðir. Sé ekki því meira eftir af ræðu hv. þm. væri mér ljúft að leyfa honum að ljúka máli sínu, en dragist það um einhverjar mínútur held ég að ég sé tilneydd til að fresta fundi.) Ég held að það fari

betur á að fresta fundi úr því sem komið er. --- [Fundarhlé.]
    Virðulegi forseti. Ef ég man rétt þá var ég þegar fundi var frestað að vitna í hvorki meira né minna en hæstv. forsrh. þegar hann greindi frá upplýsingum um það að ríkisstjórnin hefði ákveðið að leggja niður Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins, en þegar ég spurði hæstv. fyrrv. forsrh. út í það mál sagði hann mér að það hefði aldrei komið til afgreiðslu í ríkisstjórn. Hins vegar hefði nál. þeirra þriggja manna sem ég nefndi verið lagt fyrir. En það undarlega skeður að hæstv. þáv. utanrrh. og settur sjútvrh. segir á fyrrnefndum fundi vestur á Ísafirði að komið hafi fram um endurgreiðslu fjármagns úr sjóðnum að m.a. helmingur af inneign í sjóðnum vegna rækju yrði greiddur út fljótlega. Þetta segir hann á fundi 4. júní. En alltaf eru fæturnir dregnir og engin útgreiðsla kemur fram.
    Svo fellur ríkisstjórnin á sl. hausti og önnur ríkisstjórn tekur við. Og þar er ákveðið að útvega þeirri deild, einni stærstu deild sjóðsins, fé að láni, deild sem ekkert á, en hún er látin taka lánið. En vitaskuld er það ríkissjóður sem kemur til með að borga þetta lán, enda var það í fyrstu ræðunni sem hæstv. sjútvrh. hélt --- mig minnir að það hafi verið á þingi Sjómannasambands Íslands --- sem hann lét alveg hiklaust að því liggja að ríkissjóður kæmi til með að borga þetta lán, enda tekur enginn lán upp á fleiri hundruð millj. kr. sem ekkert á. Það er gefið mál að sá aðili getur aldrei borgað. En því er ekki hægt að ganga alveg hreint til verks í þessum efnum og segja það sem á að ske? Af hverju þarf alltaf að vera með þennan leikaraskap?
    Og nú spyr ég hæstv. sjútvrh.: Hver er ætlun hans og ríkisstjórnarinnar um framhald Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins? Nú er ekkert verið að reka afskaplega á eftir. Þetta mál er ekkert að koma upp í dag eða í gær svo að það er fullkomlega kominn tími til að þessari spurningu sé svarað og hver sé stefnan. Er hæstv. ráðherra í meginatriðum e.t.v. sammála mér, sem lagði fram þetta frv. á síðasta þingi, um það að inngreiðslur í sjóðinn verði á nafni hvers fyrirtækis fyrir sig? Það er höfuðbreytingin og nauðsynleg breyting að mínu viti. Ég tel rangt að farið að leggja niður þennan sjóð þó að það sé bráðnauðsynlegt að gera á honum þessa grundvallarbreytingu og skiptir miklu máli sérstaklega fyrir framtíð þeirra greina sjávarútvegsins þar sem verðbreytingar eru hvað mestar og örastar.
    Í upphafi þessarar umræðu var minnst á fyrirtæki eitt sem hefði fengið fyrirgreiðslu og afgreiðslu hjá fjmrn. Þetta fyrirtæki og þetta mál er mér mjög vel kunnugt um. Eigandi þessa fyrirtækis er eitt af stærstu fyrirtækjum í landinu. Það samþykkti á sl. hausti að heimila framkvæmdastjórn sinni að breyta í víkjandi hluthafalán eða hlutafé eða afskrifa 40 millj. kr. af viðskiptaskuld þessa fyrirtækis. Sömuleiðis náði þessi heimild einnig til allt að 10 millj. kr. sem eigandinn hafði ábyrgst af skuldum þessa fyrirtækis til viðbótar framangreindum 40 millj. kr. Þessi samþykkt var skilyrt því að ríkissjóður fyrir hönd gamla

Útvegsbankans afskrifi eða breyti í hlutafé kröfu á þetta fyrirtæki sem er talið vera um 45 millj. kr. Þetta fyrirtæki hefur eins og mörg önnur átt við ákaflega mikla erfiðleika að etja en það hefur verið svo lánsamt að hafa við stjórnvölinn bráðduglegan mann sem hefur ekki látið deigan síga þrátt fyrir mikla erfiðleika og barist hetjulegri baráttu fyrir því að halda áfram útgerð og starfrækslu frystihúss sem er ekki nema af því góða.
    Þetta litla kauptún sem fyrirtækið er í á meira inni hjá þessu fyrirtæki en nokkurt annað sveitarfélag á landinu, svo langt yfir það sem önnur sveitarfélög eiga. Í samantekt sem átti sér stað á inneignum sveitarfélaga hjá sjávarútvegsfyrirtækjum var þetta litla kauptún að krónutölu með meira en helmingi hærri upphæð en það næsta. Þarna var því alveg um sérstaka ráðstöfun
að ræða sem ég tel að eigi að afgreiða með þeim hætti að eigandinn afskrifi það sem hann gefur eftir. Það tel ég langeðlilegast eins og efnahag fyrirtækisins er komið og að ríkið eða fjmrn. noti það til að breyta því í víkjandi lán vaxtalaust, en ekki að þessir aðilar, hvorki eigandinn sem hefur reiknað dráttarvexti af skuld fyrirtækisins um langan tíma, fari að breyta því í hlutafélag, það tel ég óeðlilegt.
    Samhliða þessu eru fjölmargir aðrir kröfuhafar sem hafa lýst sig reiðubúna að afskrifa hluta af sínum skuldum eða þá að breyta kröfum sínum í hlutafé. Það litla sveitarfélag sem hér á hlut að máli hefur einnig lýst því yfir að það vilji gjarnan reyna að koma til aðstoðar, þó að það hafi alls ekki ráð á því, með því að breyta hluta af skuldinni í hlutafé.
    Ég get verið sammála bæði málshefjanda og sjútvrh. í því að sum fyrirtæki eru svo illa komin að það er e.t.v. engin önnur leið en að gera þau upp og stokka spilin að nýju. En í einstaka tilfellum getur það verið afar erfitt eins og í þessu tilfelli. Vegna fiskveiðistefnunnar, vegna kvótans vitum við ekkert hvert skipin mundu fara úr þessu kauptúni. Það gæti þýtt að eftir stæði fisklaust fyrirtæki og við blasti flótti fólksins af staðnum. Þess vegna styð ég að þessi breyting sé gerð með þessum hætti og gagnrýni hvorki fjmrh. né ríkisstjórn fyrir það. En það er auðvitað vandlifað í henni veröld og við verðum eðlilega að skoða margt í því ljósi að sýna sanngirni í afgreiðslu þessara mála.
    Hæstv. sjútvrh. sagði að hann vonaðist til góðrar samvinnu við stjórnarandstöðuna í afgreiðslu mála. Þá skildist mér að hann væri að bjóða fram þessa góðu samvinnu með því að við yrðum nú góðu börnin við ríkisstjórnina og samþykktum helst öll hennar skattafrumvörp, bæði þau sem þegar eru komin á borðið og eins þau sem væntanleg eru. Ég vil í þessu sambandi segja honum það og ríkisstjórninni að til þess að ná góðri samstöðu við stjórnarandstöðu á hverjum tíma, þá verður traustið að vera gagnkvæmt. Þegar ríkisstjórnin setti bráðabirgðalögin um Atvinnutryggingarsjóðinn, þá var ekki verið að ræða neitt við stjórnarandstöðuna. Látum það vera. En hvernig voru þessi bráðabirgðalög úr garði gerð?

Óskaði hæstv. ríkisstjórn eftir samstarfi við stjórnarandstöðuna? Nei, hún gerði það ekki. Hún vildi útiloka stjórnarandstöðuna frá öllum áhrifum. Hins vegar á að taka þessa peninga frá öllum landsmönnum. En 32 þingmenn af 63 eiga að ráða einir ferðinni og hafa með alla lánafyrirgreiðslu að gera. Hinir, 31 þingmenn eða fulltrúi þeirra, áttu ekkert að hafa. Þetta finnst mér ekki vera lýðræði. Í bankaráðum og öðrum sjóðsstjórnum og fyrirtækjum sem ríkið á eða kýs til ættu samkvæmt þessari reglu eingöngu að vera stjórnarliðar en alls ekki þeir sem eru í stjórnarandstöðu. En stundum verða stjórnarliðar stjórnarandstæðingar og það oft fyrr en varir og öfugt svo að það er vissara og hyggilegra að hafa hinn háttinn á, að hafa alla með í ráðum og reyna að ná eins og frekast er unnt samkomulagi um hlutina.
    Í reglugerð um Atvinnutryggingarsjóð útflutningsgreina, sem byggð er á bráðabirgðalögum en lá mikið á að setja, segir í 2. gr. að fyrirtæki komi því aðeins til álita við lánveitingu eða skuldbreytingu samkvæmt reglugerð þessari að grundvöllur teljist vera fyrir rekstri þeirra að loknum skipulagsbreytingum á fjárhag þeirra og rekstri. Þetta er afdráttarlaus grein og auðskiljanleg. Ég er að frétta það núna undanfarna daga að til stæði að breyta 2. gr. þannig að sjóðsstjórnin hefði rýmri hendur og gæti afgreitt fleiri þó að hagur þeirra stæði ekki traustum fótum en væri jafnvel á brauðfótum. Er það satt og rétt að þetta standi til? spyr ég hæstv. sjútvrh.
    Enn fremur hef ég heyrt að bönkum sé ætlað að kaupa þau skuldabréf sem Atvinnutryggingarsjóðurinn kemur til með að gefa út handa þeim sem lán fá. Er það rétt að til standi og hefur samninga verið leitað við viðskiptabankana um að þeir kaupi þessi bréf án affalla og jafnframt að þeir hafi fengið fyrirheit um að Seðlabankinn muni endurkaupa þessi bréf af þeim upp í bindinguna sem er verið að greiða til Seðlabankans? Ég spyr hæstv. viðskrh. að því hvort þetta sé í raun og veru það sem unnið er að og þá jafnframt: Ætlar Seðlabankinn að kaupa og getur Seðlabankinn keypt þessi bréf nema þau séu tryggð? Telur hæstv. viðskrh. að þessi bréf Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina séu nægileg trygging frá þessum sjóði? Þarf ekki ríkisábyrgð að koma til til þess að Seðlabankinn geti í raun og veru keypt þessi bréf af viðskiptabönkunum? Þetta finnst mér nauðsynlegt að komi fram í þessari umræðu.
    Hæstv. sjútvrh. hefur verið svo elskulegur að leggja á borðið reglugerð um breytingu á reglugerðinni sem ég var að tala um og þar er þessari 2. gr. breytt þannig að fyrirtæki koma því aðeins til álita við lánveitingu eða skuldbreytingu samkvæmt reglugerð þessari að grundvöllur teljist vera fyrir rekstri þeirra þegar til lengri tíma er litið og að loknum skipulagsbreytingum á fjárhag þeirra og rekstri, enda uppfylli þau skilyrði 11. gr. um tryggingar. Gaman væri að fá frekari skýringu á ,,til lengri tíma litið``. Hvaða ár ætli það sé? 2100 eða kannski bara 2050? Þetta er snilld og það þarf ekki að taka fram að reglugerðin er undirrituð af sjálfum hæstv. forsrh.

Steingrími Hermannssyni
og Guðmundi Benediktssyni og þetta hefur hann gert, blessaður, áður en hann fór för sína til Bretlands til að hitta þar merka konu og vonandi getur hann mikið af henni lært. Mönnum gerist tíðförult til Bretlands, en það eru ekki allir sem fara á fund þeirrar konu til þess að nema af henni.
    Það eru líka aðrar breytingar hér. Það er breyting á 3. málsl. 3. mgr. 8. gr. Þar komi orðin ,,2. mgr.`` í stað ,,1. mgr.`` og svo aftur í 3. gr. að sjálfsskuldarábyrgð banka, sjóða og traustra fyrirtækja eða einstaklinga eða á ábyrgð sveitarsjóðs eða bæjarfélags. Ég held að sveitarfélögin séu þarna komin inn í dæmið. Þau hafa svo sterkan bakhjarl.
    Hún kemur mjög víða við fiskveiðistefnan þegar rætt er um þessi mál. Allir eru logandi hræddir við uppstokkun fyrirtækja á hinum ýmsu stöðum á landinu. Það er hræðslan við fiskveiðistjórnunina, við kvótann, hvert skipin fara. Það er enginn hræddur við að frystihúsin verði ekki áfram á sínum stað, en hræðslan er við það hvert skipin fara með aflakvótann í burtu. Ég sagði það þegar frv. um fiskveiðistjórnun var afgreitt að þeir sem felldu þá tillögu mína um sérstakan byggðakvóta vissu ekki hvenær röðin kæmi að sér. Og það er nú komið á daginn að hún er komin að sumum þeirra sem felldu þá sanngjörnu tillögu. Þetta er eitt af því sem er mikil óvissa um víða í sjávarkauptúnum og kaupstöðum landsins og menn óttast. Ég er ekkert viss um að núv. hæstv. ríkisstjórn hafi meiri hluta við þessa stefnu. Mér heyrðist ekki gott hljóðið í þeim ágæta þingmanni sem var í ræðustólnum á undan mér og á eftir að koma aftur. Ég minnist líka eins af þingmönnum Alþfl. Hann var ekki myrkur í máli þegar hann talaði um þessa fiskveiðistefnu og hann skrifaði fyrir kosningar m.a. þessi orð, með leyfi hæstv. forseta, í blað sitt: ,,Þessa óhæfu verður umsvifalaust að stöðva. Það þolir enga bið að svona miðstýringarófreskja verði að velli lögð. Annars verður það of seint. Þegar það er orðið nauðsyn fyrir ekki aðeins hið pólitíska hagsmunakerfi íhalds og framsóknar heldur einnig banka og lánastofnanir á landinu að viðhalda þessu kerfi vegna þeirra hagsmuna sem umræddar stofnanir hafa að gæta, þá verður erfitt að vinda ofan af skömmtunarkerfinu aftur. Einmitt af þessum ástæðum töldu frambjóðendur Alþfl. svo mikið við liggja að þeir gáfu fyrir fram þá yfirlýsingu að þeir mundu enga þá ríkisstjórn styðja sem ætlaði sér að framlengja þetta kerfi. Um slíka hluti erum við ekki einu sinni tilbúnir að ræða hvað þá heldur meira við varaformann Framsóknarflokksins.``
    Þetta sagði þessi hv. stjórnarþingmaður og hann er ekki einu sinni búinn að styðja varaformann Framsfl. til að fara með sjávarútvegsmál heldur tvisvar.
    Ég veit að fleiri á þeim bæ eru óánægðir með þessa stefnu. Ég veit líka að það er óánægja í flokki hæstv. sjútvrh. og hafa þar ákveðnir menn ekki dregið neina dul á það.
    Ég verð að vekja sérstaka athygli á því þegar hæstv. sjútvrh. sagði hér áðan að við þyrftum að gæta

hófs í framkvæmdum í sjávarútvegi sem og í öðrum greinum, og ég get alveg tekið undir það. Það er gott að hæstv. sjútvrh. sé kominn á þá skoðun því hann braut lögin um samræmingu veiða og vinnslu hvað rækjuveiðar og vinnslu snertir með því að fjölga stórlega vinnslustöðvum og á þann hátt raskaðist grundvöllur þeirra stöðva sem fyrir voru. Það var farið geyst í þá veiði og núna hefur hún dregist saman og er orðin nokkur þúsund tonnum innan við það sem ráðuneytið gerði ráð fyrir á þessu ári. Það hefði verið betra að grípa fyrr til þess ráðs sem hæstv. ráðherra boðaði í dag.
    Þegar á heildina er litið verðum við að segja að sjaldan eða aldrei hafa verið jafnmiklar blikur á lofti hvað snertir rekstur og efnahag sjávarútvegsins í heild og því er nauðsyn á því að grípa þegar í stað til aðgerða sem koma að gagni. Það kemur ekki að gagni að lána þessum fyrirtækjum sífellt meira. Eigið fé þeirra er að brenna upp. Það nöturlegasta sem hefur skeð er að góð fyrirtæki, sem voru fyrir einu ári, eru í raun og veru mjög illa sett nú. Ég hrökk töluvert við þegar sjútvrh. sagði að það verði ýmsir að blæða ef fyrirtæki fara á hausinn og þá eru það þjónustuaðilarnir við fyrirtækin. En þá segi ég: Er það sanngjarnt að þau fyrirtæki sem hafa lánað sjávarútvegi og útflutningsatvinnuvegunum vinnu sína og þjónustu eigi að blæða og þau eigi jafnvel að fara á hausinn fyrir að hafa reynt að halda uppi fyrirtækjunum og atvinnu gangandi í landinu? Mér finnst það ósanngjarnt, en þeir sleppa sem hafa verið harðir og sagt: Við lánum ekki neitt. Við vinnum ekkert fyrir ykkur því þið borgið ekki.
    Nú óttast ég að þegar Atvinnutryggingarsjóður útflutningsgreinanna fer að kaupa skuldabréfin og selja geti stóru aðilarnir, olíufélögin, tryggingafélögin, komist í gegnum sína viðskiptabanka og fengið bréf keypt. Eiga aðilar sem eru í viðskiptum við litlar lánastofnanir, t.d. sparisjóði, ýmsir aðilar úti á landi, þá að verða eftir? Þarna er mikið verk að vinna og vandasamt. Við höfum ekki ráð á því að láta þessi þjónustufyrirtæki fara á höfuðið, fyrirtæki sem hafa verið vel rekin, mörg hver, en þau verða þá að fara á höfuðið fyrir það að þeir voru ekki nógu harðir að segja nei við sjávarútvegsfyrirtækin þegar þau voru í nauð eins og þau hafa verið á þessu ári og einkum er líða tók á árið.
    Ég skora á hæstv. sjútvrh. að taka nú alvarlega til hendi og leggja fram ákveðnar tillögur í ríkisstjórninni til lausnar vanda sjávarútvegsins til þess að þau fyrirtæki sem er nauðsynlegt að haldi áfram starfrækslu geti starfað með eðlilegum hætti. Ef haldið verður áfram á þeirri braut sem nú hefur verið farin sé ég ekki fram á annað en að það verði vaxandi atvinnuleysi á næstu mánuðum. Atvinnuleysi er miklu verra en tímabundin verðbólga. Atvinnuleysi er það versta sem fyrir getur komið. Það er nauðsynlegt að hafa aðhald að verðbólgunni og til þess erum við vafalaust flest eða öll sem erum í stjórnarandstöðu reiðubúin til samstarfs við ríkisstjórnina. Ég tel að það sé enginn maður á hv. Alþingi sem ekki vill styðja

skynsamlega lausn þessara mála og þá þarf ríkisstjórnin ekki að óttast neitt um sinn hag, en ef ríkisstjórnin sýnir, eins og hún gerði með setningu bráðabirgðalaganna, þann hofmóð sem hún hefur ekki ráð á að sýna held ég að það sé langt í land að samstarf geti orðið betra á milli stjórnar og stjórnarandstöðu.