Vandi sjávarútvegsins
Mánudaginn 05. desember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill vekja athygli á að enn eru tíu hv. þm. á mælendaskrá í þessum utandagskrárumræðum. Enn eru fjölmörg mál á dagskrá og forseti mun eftir getu leitast við að ljúka dagskrá þessa fundar þegar utandagskrárumræðu lýkur. Ég hlýt því að fara þess á leit við hv. þm. að þeir reyni að stytta mál sitt sem allra mest, ella verður gripið til þess að takmarka ræðutíma.