Vandi sjávarútvegsins
Mánudaginn 05. desember 1988

     Friðrik Sophusson:
    Virðulegi forseti. Ég tek undir það með þeim öðrum sem hér hafa tjáð sig í þessari umræðu að það er ákaflega eðlilegt að málefni sjávarútvegsins séu hér til umræðu í dag, ekki síst eftir þá skýrslu sem borist hefur frá Þjóðhagsstofnun.
    Ég vil í upphafi máls míns rifja það upp að við stjórnarskiptin fyrir rúmum tveimur mánuðum kom upp nokkur efniságreiningur á milli þáv. stjórnarflokka sem í megindráttum snerist um að Sjálfstfl. lagði áherslu á að nota almennar aðgerðir fremur en að gripið væri til svokallaðra sértækra aðgerða. Þetta þýðir á mæltu máli að Sjálfstfl. sá þá þegar nauðsyn þess að leiðrétta gengi íslensku krónunnar, enda hafði þáv. ríkisstjórn oftar en einu sinni gripið til slíkra aðgerða fyrr á þessu ári með atbeina allra stjórnarflokkanna, þar á meðal Alþfl., flokks hæstv. viðskrh. sem síðast talaði hér úr þessum ræðustól.
    Ástandið í sjávarútveginum nú, skv. þeim lýsingum sem Þjóðhagsstofnun hefur gefið út, er að 4,5% tap sé á botnfiskveiðum og vinnslu samanlagt. Veiðarnar tapi 4,5%, frystingin 4,5%, söltunin sé rekin með 2% hagnaði og rækjuvinnslan sé síðan rekin með 1,5% hagnaði. Ef við lítum til upphafs þessa stjórnartímabils og reynum að átta okkur á því á hverju fyrstu aðgerðir hæstv. ríkisstjórnar byggðust þarf að rifja það upp að þær byggðust í fyrsta lagi á því að nýta 3% gengisfellingarheimild sem til var frá því í vor en hafði ekki verið notuð, einkum og sér í lagi vegna þess að Seðlabankinn og hæstv. viðskrh. vildu það ekki þótt aðrir í þeirri ríkisstjórn væru tilbúnir til þess. Til þess að ná sjávarútveginum rekstrarlega á núllið var gert ráð fyrir því að lækka raforkukostnað til fyrirtækja. --- Mér þætti vænt um, virðulegur forseti, ef hæstv. iðnrh., sem um leið er viðskrh., gæti komið í salinn því mig langar til að varpa til hans þeirri fyrirspurn hvar það mál sé á vegi statt. Nú eru liðnir tveir og hálfur mánuður frá því að ríkisstjórnin var mynduð og þetta var eitt af þeim atriðum sem hæstv. ríkisstjórn lagði hvað mesta áherslu á.
    Í öðru lagi var í forsendum núv. hæstv. ríkisstjórnar sagt að raunvaxtalækkun yrði 3% og það var reiknað inn í rekstrargrundvöll sjávarútvegsins, einkum og sér í lagi fiskvinnslunnar. Ég spyr hæstv. ráðherra og sú spurning á raunar erindi til hæstv. viðskrh.: Hefur þessi raunvaxtalækkun átt sér stað? Ég er ansi hræddur um ekki. Nafnvextir hafa að vísu lækkað eðlilega vegna þess að verðbólgan hefur farið niður en um raunvaxtalækkun er varla að ræða nema að því litla leyti að vextir hafa lækkað um frá 0,2% í 0,7%, eða einhvers staðar þar um bil. En það sem er kannski alvarlegra er að ríkisskuldabréfin, spariskírteini ríkissjóðs sem bera vexti sem hafa veruleg áhrif á vaxtastigið á öðrum skuldabréfum en hafa reyndar verið lækkaðir örlítið, seljast alls ekki heldur hlaðast þau upp í bönkum og hjá þeim sem tekið hafa að sér að selja þau skv. samningi við fjmrn. Bréfin seljast ekki. Þegar skoðað er skráð vaxtagengi hjá Verðbréfaþingi Íslands má í raun og veru halda því fram að þessi vaxtalækkun hafi alls

ekki átt sér stað. Þess vegna vil ég, virðulegur forseti, fá tækifæri til þess að spyrja hæstv. viðskrh. hver raunvaxtalækkunin hefur raunverulega orðið því ég kannast ekki við að um 3% raunvaxtalækkunar hafi orðið vart hér í efnahagslífinu.
    Í þriðja lagi var sagt frá því að vaxtamunur afurðalána ætti að lækka um 0,7%. Ég veit að hæstv. sjútvrh. getur svarað þeirri spurningu hvort þessi breyting hafi nú þegar átt sér stað. Um það veit ég ekki og spyr þess vegna að því. --- Ég veit ekki, virðulegur forseti, hvort ég á að halda áfram fyrst hæstv. viðskrh., sem hér talaði síðastur, hefur vikið úr húsinu, en ég er með beinar spurningar til hans, hann er þátttakandi í þessum umræðum. ( Forseti: Það skal upplýst að hæstv. viðskrh. er hér í húsinu og þegar hefur verið sent eftir honum.) Þá get ég endurtekið spurningar til hans þegar hann kemur hér á eftir.
    Það er ljóst að meginefnahagsstefna þessarar ríkisstjórnar byggist á því að falsa gengi íslensku krónunnar. Þetta er staðreynd sem ekki er hægt að mótmæla. --- Áður en ég kem að þessum kafla tel ég rétt, til þess að hæstv. viðskrh. þurfi ekki að dvelja hér lengi, að ég endurtaki spurningar mínar til hans.
    Í fyrsta lagi beini ég máli mínu til hans sem hæstv. iðnrh. og spyr hvað líði 25% lækkun raforkuverðs til fyrirtækja sem var liður í því að koma eðlilegum rekstrargrundvelli á í frystingunni og fiskvinnslunni. Í öðru lagi hvað líði 3% raunvaxtalækkun. Mér er sagt að sú litla raunvaxtalækkun sem hefur átt sér stað á spariskírteinum ríkissjóðs hafi gert það að verkum að þau spariskírteini sem eru til sölu seljist ekki heldur hlaðist upp hjá þeim aðilum sem tóku að sér að selja þessi skírteini skv. sérstökum samningi við fjmrn. Og í þriðja lagi er atriði sem ég satt að segja veit ekki hvernig hefur farið en það er það sem stóð að baki þeim útreikningum hæstv. ríkisstjórnar að vaxtamunur afurðalána lækkaði um 0,7%. Það má vera að sú lækkun hafi þegar átt sér stað en þá er hægt að fá úr því skorið hér á eftir og mér er sama hvor
hæstv. ráðherra svarar þessu.
    Ég var kominn þar, virðulegur forseti, að lýsa efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Ekki þarf að endurteka að hæstv. ríkisstjórn fylgir þeirri stefnu að halda niðri verðlaginu með því að falsa gengi íslensku krónunnar. Það liggur fyrir að fjármagn er fært til í þjóðfélaginu. Það er ráðgert að u.þ.b. 800 millj. kr. renni til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins og þetta eru óafturkræfir fjármunir. Samkvæmt bráðabirgðalögum sem ríkisstjórnin gaf út í haust og er nú til meðferðar í hv. Ed. er sagt að þessir fjármunir séu til láns en hæstv. sjútvrh. hefur sagt opinberlega að þessi fjármunir verði ekki aftur sóttir til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins. Þess vegna vil ég spyrja þann hæstv. ráðherra sem kýs að verða fyrir svörum: Er þá ekki rétt að bókfæra þessa fjármuni þannig að þeir komi inn við lánsfjárlagagerð þar sem sú yfirlýsing liggur fyrir frá hæstv. ríkisstjórn að þessir fjármunir séu ekki lánsfé til Verðjöfnunarsjóðs heldur séu þeir teknir að láni erlendis og muni falla á ríkissjóð? Þetta þýðir ekkert annað en það að ríkissjóður hefur tekið erlent

lán til þess að setja í millifærslu. Hann ætlar ekki að endurheimta þetta lán sem þýðir eingöngu það að verið er að falsa gengi íslensku krónunnar til þess að geta haldið áfram að berja höfðinu við steininn og viðurkenna ekki að það þurfi að leiðrétta gengi íslensku krónunnar. Þessir fjármunir eru til viðbótar þeim 600 sem um getur í sömu bráðabirgðalögum.
    Þá hefur hæstv. ríkisstjórn ákveðið að haga reglum um Atvinnutryggingarsjóð með þeim hætti að þar er verið að skuldbreyta og gefa út skuldabréf í stað þess að leggja áherslu á það í starfi sjóðsins að lána fjármuni til þeirra sem væru tilbúnir til þess að leggja eigið fé inn í þessi fyrirtæki. Hæstv. viðskrh. talaði mikið um endurskipulagningu hér áðan í sinni ræðu og auðvitað væri það besta endurskipulagning sem gæti átt sér stað í sjávarútvegi ef eigið fé fyrirtækjanna væri aukið. En það má ljóst vera að mörg undanfarin ár hefur eigið fé þessara fyrirtækja verið harla lítið og allt of lítið og þess vegna mega þessi fyrirtæki við ákaflega litlu til þess að eigið fé þverri. Þetta er stórmál í endurskipulagningunni. Þarna er tæki, Atvinnutryggingarsjóður útflutningsgreina, sem hægt væri að nota en mér sýnist hæstv. ríkisstjórn ekki ætla að nota fjármunina til þess sem skynsamlegast sýnist.
    Hæstv. viðskrh. ræddi síðan um skuldabréfin sem gefin verða út. Hann viðurkenndi að um nokkur afföll hlyti að verða að ræða og sagði að það væri út af fyrir sig eðlileg eftirgjöf skulda. Við getum alveg eins orðað það eins og hæstv. viðskrh. veit að þetta er hluti af ávöxtunarkjörum og mætti líta á þetta sem vexti eða ávöxtunarkjör því að afföll eru náttúrlega ekkert annað en eins konar ávöxtun þótt tekið sé með öðrum hætti. Þetta er enn ein viðurkenningin á því að vextir hafa ekki lækkað.
    Þá held ég að það sé kominn tími til að hæstv. viðskrh. skýri það betur hvernig hann hyggst beita því sem hann kallar óbeinni skuldbreytingu, en það mun þýða að þeir viðskiptabankar sem eiga að taka að sér að kaupa þessi skuldabréf eiga að fá sérstaka fyrirgreiðslu hjá Seðlabanka Íslands. Nú er það svo að Seðlabanki Íslands, þótt voldugur sé, og það veit hæstv. sjútvrh. sem á sínum tíma var bankaráðsformaður Seðlabankans, er ekki óþrjótandi lind. Það verður að grípa til erlendra lána eða taka af gjaldeyrisvarasjóði. Og ef ég skil ráðherrann rétt er hann að benda á þá leið að nú eigi að ná í nýja fjármuni úr þessum brunni sem auðvitað þýðir að það er stefnt í erlendar lántökur til viðbótar þeim sem núverandi ríkisstjórn hefur tekið ákvörðun um að taka, en núverandi hæstv. ríkisstjórn ákvað það strax í upphafi síns stjórnartíma að stórauka erlendar lántökur og auka þannig á þann vanda sem fyrir var í þjóðfélaginu.
    Það hlýtur að teljast dálítið merkilegt þegar menn líta á þjóðfélagsumræðu hér á landi að hæstv. forsrh. þessarar þjóðar, sem nú dvelst í læri hjá frú Thatcher í Bretlandi og vonandi lærir hann nú eitthvað þar því að ég veit að hann getur lært heilmikið af henni. ( Viðskrh.: Aldrei fóruð þið . . . ) Nei, það gerðum við

ekki, hæstv. viðskrh., en það er nú þannig með hæstv. forsrh. að hann er eins og kameljónið, hann skiptir litum eftir því í hvernig ríkisstjórn hann er á hverjum tíma. Þegar hann sat í ríkisstjórn með sjálfstæðismönnum gerðist hann bóksali fyrir Gorbatsjov í síðustu jólabókavertíð því að þá þurfti hann að sýna hve frjálslyndur hann var og höfða til vinstri, en um leið og hann er kominn í félagshyggju- og jafnréttisstjórn vinstri flokkanna þarf hann að sýna hve ,,líberal`` hann er í hina áttina og þess vegna fer hann og heimsækir Thatcher. Þetta er auðvitað alveg eins og Framsfl. hagar sér, hann er bæði í stjórn og utan stjórnar á sama tíma. Hér koma ráðherrar Framsfl. upp og segja: Nú þarf að gera eitthvað. Nú þarf að gera eitthvað. Hvernig stendur á því að ekkert hefur verið gert? Þetta er flokkur sem hefur setið í ríkisstjórn í 17 ár eða er það ekki, hæstv. sjútvrh.? Ég veit ekki hvort sjútvrh. man svo langt, en þetta er nú einu sinni staðreynd sem er erfitt að neita.
    Ég var byrjaður að lýsa stefnu ríkisstjórnarinnar. Hún er nú ærið sérstök.
Sjálfur hæstv. forsrh. segir: Gengið er rangt skráð. Og hann endurtekur: Gengið er rangt skráð. Nú veit ég ekki hvort allir taka mark á hæstv. forsrh. en ég held að svona víðast hvar þar sem forsætisráðherra mundi orða það þannig að gengið væri rangt skráð, þá byggist landsins lýður, hvar sem er á jörðinni, við því að forsætisráðherra þeirrar þjóðar mundi þá leiðrétta gengið. Nei. Íslenski forsætisráðherrann ætlar ekki að leiðrétta gengið. Hann lýsir því bara yfir rétt eins og hann sé í einhverjum saumaklúbbi úti í bæ og sé að tala þar við vinkonu sína. (Gripið fram í.) Ja, við getum sagt karlaklúbbi, Lionsklúbbi ef hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir vill hafa það. Lionsklúbbi skulum við hafa það eða Rotaryklúbbi. ( GA: Hvort er líklegra, hv. 1. þm. Reykv.?) Ja, ég veit ekki hvernig maddama Framsókn hagar sér í sínum frístundum, þess vegna gæti hún tekið þátt í saumaklúbbi, en við skulum hafa það Rotary til þess að vera sammála um það, hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir. --- Það er nefnilega þannig að stundum hvarflar að manni að það þurfi að taka hæstv. forsrh. alvarlega og í raun og veru meira að segja hvarflar það stundum að mér að það sé bara nauðsynlegt að taka hæstv. forsrh. alvarlega, það sé eiginlega þjóðarnauðsyn því að annars missi þjóðin traust og álit á stjórnmálamönnum og haldi bara að það sem við erum að tala um hérna skipti ekki nokkru máli. En ég segi: Það er náttúrlega alvarlegur hlutur þegar hæstv. forsrh. lýsir því yfir aftur og aftur að gengið sé rangt skráð, en segir svo til viðbótar að hann ætli ekkert að gera með það. Þá mætti maður ætla að hæstv. forsrh. hefði eitthvert annað ráð undir sínu rifi. En svo er ekki. Þess vegna er nú stofnað til þessarar umræðu hér. Enn hafa engar lausnir fundist og ekki komið fram hjá hæstv. ráðherrum.
    Það er beðið eftir aðgerðum og það er ljóst að eftir því sem við bíðum lengur þeim mun erfiðara verður að leysa þetta mál. Ég staðhæfi að fyrr en síðar hlýtur hæstv. ríkisstjórn, hversu þrjósk sem hún er, að

viðurkenna að það verður að leiðrétta gengið eins og hæstv. forsrh. lætur liggja að þá stundina sem hann lætur ekki liggja að þjóðargjaldþroti sem er hina stundina.
    Það þyrfti kannski að ræða iðnaðinn með sama hætti. Sá iðnaður, sem ekki nýtur fyrirgreiðslu og fær ekki millifærslur í sinn hlut, stendur núna þannig að það stefnir í gjaldþrot hjá fjölmörgum fyrirtækjum. Það átti að ræða hér um skipasmíðar í dag, en vegna mistaka var aðeins flutt ein ræða. Ég held að stefna hæstv. ríkisstjórnar sé versti óvinur iðnaðarins í dag. Með því að berja höfðinu við steininn, neita að viðurkenna að það þurfi að lagfæra gengið en lýsa því samt yfir að gengið sé rangt skráð, þá eru menn vitandi vits að setja skipasmíðaiðnaðinn og annan slíkan iðnað beint á höfuðið. Þetta verða menn að viðurkenna. Ég teldi það mjög eðlilegt að hv. þm. Stefán Guðmundsson a.m.k. segði hæstv. forsrh. frá því að gengisskráningin er afgerandi fyrir skipasmíðaiðnaðinn og samkeppnishæfni þess iðnaðar gagnvart þeim iðnaði sem hann á að keppa við erlendis. Þetta er grundvallaratriði og það veit ég að hv. þm. Stefán Guðmundsson hlýtur að vera mér sammála um.
    Hæstv. sjútvrh. sagði hér í umræðunum í dag að hann vildi helst lækka laun, að vísu án gengisfellingar. Það er út af fyrir sig sjónarmið að taka launin niður og þessi sjónarmið hafa heyrst áður. Þetta er stundum kallað niðurfærsla. Svo kemur annar stjórnarþm., hv. þm. Skúli Alexandersson. Hrópaði hann ekki húrra fyrir hæstv. sjútvrh.? Tók hann ekki undir þetta og sagði: Auðvitað á að lækka launin? Nei, hann sagði þvert á móti að laun ætti ekki að lækka heldur ætti að nota allt, allt aðrar aðferðir við að leysa vanda sjávarútvegsins. Nú spyr ég aðra hv. þm. Alþb. sem hér eru í salnum, þeir eru að vísu ekki margir: Eru þeir sammála hv. þm. Skúla Alexanderssyni? Eða eru þeir sammála hæstv. sjútvrh.? Eða hefur Alþb. enga skoðun á þessu máli fremur en öðrum málum nú orðið eins og matarskatti og hernum og hvað þetta allt saman var sem var svo heilagt þegar þeir voru í stjórnarandstöðu? Nú sitja þeir í stjórn. Þeir hafa kastað öllu til hliðar. Það eina sem þeir koma sér saman um er að hækka skattana. Og hv. þm. Skúli kemur hingað, flytur ræðu og segir að hann vilji gengislækkun með ákveðnum skilyrðum en laun megi ekki lækka, þvert á það sem hæstv. sjútvrh. sagði. Ég spyr aðra hv. þm. Alþb.: Hvort eru þeir sammála hv. þm. Skúla eða hæstv. sjútvrh.? Er ekki kominn tími til að þeir segi eitthvað í þessu efni?
    Það var jafnframt rætt hér örlítið um aðstoð á Súgandafirði. Ég vil taka undir það, þekkjandi dálítið til fiskvinnslu vestur á fjörðum, að sá sem stýrir því fyrirtæki hefur staðið sig ágætlega í sínu starfi. Það er hins vegar ljóst að þegar Samband ísl. samvinnufélaga og kaupfélögin keyptu þetta fyrirtæki, þá létu þau inn í fyrirtækið ákaflega takmarkaða fjármuni í upphafi þannig að fyrirtækið reisti sig aldrei úr sjó, ef svo má að orði komast. Nú hefur það gerst að hæstv. fjmrh. hefur skrifað Sambandsforstjóranum og boðist til þess

að lána með víkjandi láni án vaxta og án verðbóta 45 millj. kr. sem Útvegsbankinn gamli, sem nú er þrotabú í hillu hjá hæstv. fjmrh., lána þessa fjármuni með þeim skilyrðum að manni skilst að Samband ísl. samvinnufélaga, aðaleigandi fyrirtækisins, afskrifi u.þ.b. 40 millj. kr. skuld, leggi 10 millj. kr. til viðbótar inn sem hlutafé, enda muni Byggðasjóður þá koma til
skjalanna, lána 30 millj. kr., og ef það gerist muni sveitarfélagið og aðrir lánardrottnar heima fyrir lækka sínar skuldir verulega. Þannig á að reisa þetta fyrirtæki úr rústum að því er manni skilst. Þetta er auðvitað gott og blessað. En þessi 45 millj. kr. skuld var venjuleg bankaskuld við ríkisbanka. Ekkert öðruvísi skuld en frystihús víða um land skulda í öðrum ríkisbönkum, Búnaðarbankanum og Landsbankanum. Það er þess vegna næst að spyrja hæstv. viðskrh., sem ræður yfir þessum bönkum, er æðsti yfirmaður þeirra: Er þetta byrjunin á nýjum aðgerðum? Er þetta sú endurskipulagning sem hann var að tala um í sínu máli? Ætlar hann að tala við landsbankastjórana, við búnaðarbankastjórana og segja við þá: Ef einhver sjávarútvegsfyrirtæki skulda ykkar bönkum, þá skuluð þið segja þeim að þið ætlið að lána víkjandi lán sem eiga að greiðast til baka þegar fyrirtækin geta borgað arð að tiltölu við það hve hlutaféð hefur hækkað, upp á þau býti að eigendur eða nýir eigendur leggi fram nýja fjármuni eða afskrifi skuldir til fyrirtækisins, afskrifi lán sem þeir hafi veitt fyrirtækinu. Er þetta sú stefna sem hæstv. viðskrh. var að ræða um þegar hann talaði hér áðan um endurskipulagningu í frystiiðnaðinum? Er hæstv. viðskrh. sammála því sem kemur fram í þessum aðgerðum sem beitt er á Súgandafirði sem út af fyrir sig eru mjög gagnlegar aðgerðir, ákaflega sértækar, taka á þessu vandamáli. Væntanlega færa þeir sig næst yfir á Siglufjörð og síðan koll af kolli. Hæstv. viðskrh. talaði nefnilega ekki nákvæmlega um það hvers konar endurskipulagningu hann vildi.
    Hæstv. sjútvrh. sagði hins vegar að bankar yrðu að sjá í gegnum fingur sér meira en þeir gerðu. Ef ég skildi hann rétt, sem ég er nú ekki alveg viss um, þá sagði hann: Það þarf að breyta viðhorfum bankastjóranna til trygginga. Ég skil hann þannig að hann ætlist til þess að bankastjórar og bankaráð rýmki heimildir sínar til lánveitinga þannig að tryggingar séu ekki eins góðar og miklar og þær hafa verið og þurfa að vera að mati þeirra sem stjórna bönkunum. Ef þetta er rétt skilið, spyr maður sig að því: Hvernig hefði farið fyrir ýmsum fyrirtækjum sem á sínum tíma fóru á hausinn, urðu gjaldþrota vegna þess að veð eyddust upp af ytri ástæðum rétt eins og hjá þessum fyrirtækjum? Við skulum nefna Hafskip, það er eitt dæmi. Og hver yrði þá ábyrgð, svo að ég spyrji hæstv. viðskrh., bankaráðanna í þessum bönkum ef það kæmi í ljós að þessi rýmkun, það að sjá í gegnum fingur sér, það að heimta ekki eins miklar tryggingar og áður, yrði til þess að bankarnir töpuðu fjármunum? Má þá búast við því að þar sé um saknæmt atferli að ræða? Ég held að hæstv. ráðherrar

verði að tala hér mun skýrar en þeir hafa gert. ( Sjútvrh.: Þú verður að skilja það betur.) Eða ég að skilja það betur. Þá vænti ég þess líka, af því að ég veit að fleiri hafa skilið það svo, að hæstv. sjútvrh. skýri það betur út fyrir okkur hvað hann átti við þegar hann talaði um veð og tryggingar í sinni ræðu.
    Það sem situr eftir í þessari umræðu er fyrst og fremst þetta: Hæstv. ríkisstjórn hefur ekki komið sér saman um nein úrræði í sjávarútvegsmálum, engin, önnur en þau sem þeir auglýstu við stjórnarskiptin. Og þau hafa sannarlega mistekist samkvæmt þeim dómi sem Þjóðhagsstofnun felldi í síðustu viku.
    Einn hæstv. ráðherra segir að gengið sé rangt skráð. Annar segir að það hafi verið gert hlé til að leita allra leiða. Orðrétt sagði hæstv. viðskrh. að það þyrfti að ,,leita allra leiða``. Hve lengi á sú leit að standa? Eitthvað fram eftir næsta ári? Tvö ár? Þrjú ár? Fjögur ár? Hve lengi? ( Viðskrh.: Þar til lausnin finnst.) Þar til lausnin finnst, jafnvel þótt hún finnist ekki fyrr en eftir aldamótin. Heyrði þingheimur þetta? Það á bara að halda áfram að leita og leita og leita, það á ekki að hafa neina stefnu, bara leita, leita allra leiða. Hugsið þið ykkur! Þetta eru úrræðin! Og nú ætla þeir að halda áfram að leita og leita og leita. Aumingja mennirnir!
    Nei, það er auðvitað gott að fá sér hlé til góðra verka þegar maður er þreyttur. En það breytir ekki því, hæstv. viðskrh., að gengið er rangt skráð. Og þó að hæstv. viðskrh. taki ekki mark á forsrh. þá er það nú þannig að ýmsir þeir sem hafa áhuga á því að lausn finnist á þessu máli hafa áhyggjur af því að ríkisstjórnin ætli ekkert að gera, bara halda áfram að leita.
    Hæstv. viðskrh. þarf að skýra hér út fyrir okkur og þjóðinni hvað hann á við með endurskipulagningu. Á hann við það að það eigi að bíða, það eigi að þverskallast, það eigi ekki að viðurkenna það að gengið sé rangt skráð þar til fyrirtækin fara á hausinn, þar til gjaldþrot verður og þá verði fyrirtækin reist úr rústum? Þetta er vissulega aðferð. Aðferð sem víðast er notuð hér á Vesturlöndum. Ein af þessum vestrænu aðferðum sem hæstv. forsrh. hafnaði í sinni svokölluðu stefnuræðu. Þess vegna held ég að við verðum að heimta þau svör af hæstv. viðskrh.: Hvað á hann við þegar hann talar um endurskipulagningu? Það kom ekkert fram í hans máli sem benti til þess að það væri einhver hugsun á bak við orðið endurskipulagning.
    Virðulegur forseti. Þessi umræða hefur sýnt það að hæstv. ríkisstjórn er úrræðalaus. Hún tók við völdum, setti upp dæmi um það hvernig mætti bjarga sjávarútveginum þannig að reksturinn kæmist á núll. Sá útreikningur reyndist
rangur af ýmsum ástæðum. Þar á meðal hefur það gerst síðan ríkisstjórnin tók við að dollarinn hefur fallið. Það skulum við viðurkenna. Það hefur líka komið fram að nýir reikningar liggja fyrir. Það skulum við viðurkenna. En það hefur einnig komið fram að ríkisstjórnin stóð ekki við það sem hún lofaði til þess að koma sjávarútveginum í núll. Þess vegna

lagði ég fram mínar spurningar hér áðan.
    Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Hún hefur leitt það í ljós sem ég var hræddastur um að væri satt, að ríkisstjórnin hefur engin úrræði. Hún heldur einungis áfram að leita allra leiða.