Vandi sjávarútvegsins
Mánudaginn 05. desember 1988

     Skúli Alexandersson:
    Virðulegi forseti. Út frá ræðu hæstv. sjútvrh. í dag þar sem hann ræddi um þá leið að skapa meiri verðmæti úr sjávarafla lagði ég fyrir hann spurningu og óskaði eftir því að hann svaraði mér. Hann sá ekki ástæðu til þess að gera það í sinni ræðu áðan. Þess vegna ætla ég að endurtaka þessa spurningu.
    Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra hvort þeir sem færu að ráðum hans og færu í að reyna að auka verðmæti síns hráefnis, reyna að auka nýtingu og gera betur úr þeim hlutum sem í fyrirtækin koma, eigi á hættu að vera ákærðir fyrir að sýna árangur í því starfi.