Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég vil gera athugasemdir við það ef hér á að halda áfram þingfundi. Ég vil í fyrsta lagi minna á að hér var settur fundur áðan, nýr fundur, og þá án þess að það væri farið að þingsköpum því það var ekki nægur meiri hluti inni í salnum til að hægt væri að setja fundinn. Ég geri athugasemd við það og óska eftir að þessum fundi verði slitið.