Þingsályktunartillaga um bætta samkeppnisstöðu
Þriðjudaginn 06. desember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég vil upplýsa hv. þm. að það eru tveir á mælendaskrá, annar er hann sjálfur og hinn er fyrrv. iðnrh. Ég vil einnig minna þingmanninn á að það var m.a. hann sem bað um þessa utandagskrárumræðu í dag. Ég vil jafnframt upplýsa hv. þingheim um að hér verða ekki fundir milli jóla og nýárs hvað sem raular og tautar þannig að hér verður áfram haldið svo að hægt verði að halda dagskrá samkvæmt verkáætlun þeirri sem fram hefur verið sett.