Grunnskóli
Þriðjudaginn 06. desember 1988

     Flm. (Guðrún Agnarsdóttir):
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á l. um grunnskóla, nr. 63/1974, með síðari breytingum, sem er 126. mál þingsins á þskj. 132. Meðflm. minn að þessu frv. er Danfríður Skarphéðinsdóttir, þingkona Kvennalistans.
    Frv. var flutt á síðasta þingi en er nú endurflutt lítillega breytt og eru breytingarnar fyrst og fremst fólgnar í því að tímasetningum er frestað þegar breytingar eiga að komast til framkvæmda miðað við frv. á fyrra þingi, en einnig er tölum breytt í meðfylgjandi kostnaðaráætlun til samræmis við núgildandi verðlag.
    Það er ekki lengra síðan en í mars á þessu ári að fjallað var um þetta mál hér í deildinni og spunnust af því tilefni mjög málefnalegar og góðar umræður sem tóku allan tíma deildarinnar þann dag. Þeir sem tóku til máls þá voru að mestu leyti sammála aðalerindi frv. þótt kostnaður við framkvæmd þess yxi sumum í augum.
    Sú samstarfsnefnd ráðuneyta um fjölskyldumál sem Þorsteinn Pálsson, fyrrv. forsrh., skipaði á árinu 1987 hefur í áfangaskýrslu sinni á árinu 1988 gert tillögur um margar svipaðar breytingar og hér eru lagðar til og varða lengd skólaskyldu og lengd skóladags. Þær hafa verið lagðar fram í frumvarpsformi í Nd. af hv. þm. Sjálfstfl. Einnig er mér kunnugt um að mikill áhugi ríkir innan Fossvogsskóla á því að lengja skólatíma barna þar og hefur erindi þess efnis verið sent fræðsluyfirvöldum, en kennarar og skólayfirvöld og foreldrar vilja gjarnan gera tilraun með heils dags skóla sem yrði framkvæmd á næstu þremur skólaárum þar sem allir nemendur mundu hefja nám að morgni dags og ljúka skóla á sama tíma.
    Þessi dæmi sem ég hef nefnt undirstrika í raun að flestir eru sammála um það, bæði utan þings og innan, að það er löngu orðin brýn þörf að samræma betur vinnudag barna og foreldra hér á landi. Og það er samdóma álit flestra sem þetta mál varðar að vinnudag barna í skóla þurfi að gera samfelldan. Það þarf að lengja kennslutíma yngstu árganganna og öll börn verða að hafa tækifæri til að geta matast í skólanum sínum. Enn fremur er nauðsynlegt að börn eigi þess kost að dveljast í skólanum utan kennslustundanna og njóta þar umsjár kennara eða annarra sem hafa uppeldisfræðimenntun. Grunnskólar þurfa að verða einsetnir heilsdagsskólar þar sem vinnutími og viðvera bæði nemenda og kennara er samfelld. Nauðsynlegt er einnig að fækka nemendum í hverjum bekk þannig að nám og kennsla komi að sem bestum notum. Það er einkum mikilvægt í yngstu bekkjunum. Einnig þarf að gæta þess að skólarnir verði ekki of stórir né heldur of fjölmennir.
    Í þessu frv. er lagt til að lögbundin verði fræðsluskylda 6 ára barna á skólaárinu 1989--1990, en skólaskylda 6 ára barna verði lögbundin á skólaárinu 1990--1991, enn fremur að kennslutími yngri árganganna verði lengdur í áföngum sem miði að einsetnum heilsdagsskóla fyrir öll börn, þar sem nemendur eiga einnig kost á viðveru utan

kennslustunda í þroskandi umhverfi og umsjá fullorðinna. Jafnframt er gert ráð fyrir aðstöðu til hvíldar, einkum fyrir yngri börnin og aðstöðu fyrir öll börn til að matast. Einnig er gert ráð fyrir að nemendur í yngstu bekkjunum verði að meðaltali 14, en 18 að meðaltali í öðrum bekkjum. Síðan eru sérstakar breytingar gerðar sem ákvarða stærð skólahúsnæðisins og þá er miðað við að fjöldi nemenda í grunnskólum verði ekki meiri en 400 í mesta lagi. Jafnframt einnig ákvæði sem miðar að því að auðvelda aðgang nemenda að skólabókasöfnum.
    Frv. er lagt fram til að gera nauðsynlegar breytingar á grunnskólalögunum í þágu barna, foreldra og kennara. Breyting á samfélagsháttum á síðustu áratugum hefur leitt til þess að breyttar og vaxandi kröfur eru nú gerðar til kennara og skóla. Til þess að þeir geti svarað þessum kröfum og veitt þá þjónustu sem börn og foreldrar þurfa verður að breyta lögunum og jafnframt, og ekki síður, verja nægilegu fé til nauðsynlegra umbóta.
    Grunnskólinn ber nafn með réttu því að þar er í raun lagður grunnur að því námi, starfi og lífi sem einstaklingar eiga fyrir höndum. Það varðar því miklu að vel sé til upphafsins vandað því framtíð einstaklingsins getur ráðist af því hvernig honum vegnar í byrjun. Flestir verja miklum hluta lífs síns frá 6 ára aldri og fram undir tvítugt, og jafnvel lengur, í skóla. Fjórðungur þjóðarinnar situr í raun á skólabekk og með vaxandi kröfum um almenna menntun og starfsmenntun á þessi hluti væntanlega eftir að stækka. Það kemur fram í grein um skóla- og menntastefnu eftir Jón Torfa Jónasson dósent í nýlegu tölublaði BHMR-tíðinda að árið 1985 voru 41,5 þúsund nemendur í grunnskólanum, 15,5 þúsund nemendur í framhaldsskólum og nálægt 7 þúsund í Háskólanum og þá eru taldir með allir þeir sem þiggja lán úr Lánasjóði ísl. námsmanna og eru við nám erlendis. Á hverjum virkum vetrardegi það ár fóru því um 64 þúsund íslenskir nemendur í skóla. Kennarar og annað starfslið við fræðslukerfið er nálægt 6,5 þúsund manns þannig að hér er um að ræða æði umfangsmikinn atvinnuveg.
    Á fjárlögum fyrir árið 1988 var varið nálægt 10 milljörðum til
menntakerfisins og er þeirri upphæð í grófum dráttum skipt á þann veg að um 44% fer til grunnskólanna, um 15% til mennta- og fjölbrautaskóla, 8% til annarra framhaldsskóla, 9% til Háskóla Íslands og 16% til Lánasjóðs ísl. námsmanna. Þetta munu vera um 15% af heildarútgjöldum hins opinbera og hefur það hlutfall breyst lítið undanfarin 25 ár.
    En á undanförnum árum hafa umtalsverðar breytingar orðið á kennslu yngri barna í mörgum löndum Evrópu og þá er átt við börn á aldrinum frá 5--6 ára og fram að 12 ára aldri. Þessar breytingar hafa aðallega falist í því að færa starf skólanna nær raunverulegum þörfum barna og fjölskyldna þeirra eins og þær birtast okkur í nútímaþjóðfélagi og þá varða þær bæði starfið sjálft og einnig starfstíma skólanna ásamt ýmsum öðrum þáttum.

    Víðast hvar er megináhersla lögð á að lengja skólatíma yngstu barnanna og bjóða þeim jafnframt upp á dagvist fyrir eða eftir hinn eiginlega skólatíma. Þannig hefur áherslan hvarvetna verið að koma á og þróa heilsdagsskóla þar sem nemendur geta dvalist frá morgni og fram eftir degi við nám og leik í þroskandi og öruggu umhverfi með öðrum börnum og í umsjá fullorðinna. Mikil áhersla er lögð á að öll börn fái að þroskast með sínum eðlilega hraða bæði til líkama og sálar. Því er víðast reynt að hafa skóla yngri barnanna fámenna, allt frá skólum með um eða innan við 100 nemendur til skóla með um 300--400 nemendur. Jafnframt er reynt að hafa bekki ekki of fjölmenna þannig að hægt sé að veita einstaklingsbundna kennslu.
    Víða er reynt með ýmsum ráðum að koma á heimilislegum blæ í skólunum, t.d. með því að blanda saman árgöngum þar sem þau eldri ,,fóstra`` þau yngri og gerðar sérstakar ráðstafanir varðandi búnað og umhverfi. Séð er fyrir líkamlegum jafnt sem andlegum þörfum nemenda meðan þau dveljast í skólanum eftir því sem framast er unnt, líkt og á góðum heimilum. Þannig hafa mörg samfélög brugðist við breytingum sem orðið hafa á högum barna í nútímaþjóðfélagi með því að bæta þjónustu við þau.
    Helstu breytingar sem orðið hafa á högum barna í öllum löndum Evrópu eru fyrst og fremst stóraukin atvinnuþátttaka beggja foreldra utan heimilis, en eins og við öll vitum og höfum margoft rætt hefur almenn atvinnuþátttaka kvenna hérlendis aukist mjög á sl. 20 árum svo nánast má líkja við félagslega byltingu. En langur vinnutími og meira vinnuálag en gerist meðal nágrannaþjóða okkar leiða til fjarvista foreldra frá heimili og aukinnar streitu þeirra, en vaxandi fjöldi heimila þarfnast nú vinnuframlags tveggja til framfærslu.
    Börnin þurfa oft að hafa ofan af fyrir sér sjálf, jafnvel frá unga aldri.
    Í skólaskýrslum úr Reykjavík frá 1975 kemur fram að um 40% 7--12 ára barna séu meira eða minna ein heima á daginn. Í skýrslu frá landlækni sem kom út á árinu 1987, Mannvernd, kemur fram að um fjórðungur barna einstæðra foreldra, 7 ára og yngri, og um 64% 7--12 ára barna ganga sjálfala á daginn. Í nýlegum þætti í Ríkisútvarpinu heyrði ég á tal sálfræðinga og félagsfræðinga sem höfðu mjög miklar áhyggjur af því að uppeldi yngri barna væri að mjög stórum hluta á höndum annarra barna sem væru ekki nema nokkru eldri. Mikil ábyrgð, allt of mikil ábyrgð væri þannig lögð þeim á herðar en það er ábyrgðarmikið að fela svo ungum börnum að stórum hluta til uppeldi annarra sér yngri barna. Það rísa ekki öll börn undir slíku álagi.
    Við höfum einnig margoft rætt um það hve fjölmiðlar skipa stóran sess sem afþreying barna og menn hafa í vaxandi mæli áhyggjur af því að börn séu gerð að óvirkum þiggjendum auk þess sem neikvæð uppeldisáhrif berast þannig að ómótuðum hugum barnanna án þess að fullorðnir komi þar að til að ræða það myndefni sem börn horfa á. Við höfum

einnig rætt hér áður hve mikið af því efni er á erlendum tungumálum meðan börnin hafa varla lært sitt eigið mál og naumur tími er til mannlegra samskipta til að rækta móðurmálið. En kennarar hafa tekið eftir því í skólum á síðustu árum að kunnátta grunnskólanemenda í íslensku fer minnkandi, bæði hvað varðar orðaforða, málfræði og stafsetningu. Ég bið menn að huga að því að ólæsi hefur verið mikið vandamál meðal svokallaðra menningarþjóða á sl. árum svo að vaxandi fjöldi fullorðins fólks er í raun ólæs. Þá meina ég þannig að þeir geti jafnvel ekki lesið leiðbeiningar á skiltum. Síðan má velta því fyrir sér hvort ekki má nefna það ólæsi þegar fólk í raun tekur sér aldrei bók í hönd, því er ekki tamt að lesa bækur, en bindur huga sinn fyrst og fremst við afþreyingarmyndefni.
    Segja má því að mörg heimili séu vanbúin að gegna hefðbundnu uppeldishutverki vegna breyttra félagslegra aðstæðna og foreldrar hafa þegar gert eindregnar kröfur til samfélagsins um að það taki í ríkari mæli þátt í uppeldi barna. Langt er frá að það hafi brugðist við sem skyldi og er nú mikill skortur víða um land á samastað fyrir börn þar sem þau geta unað við nám, leik og hvíld í öruggu, uppeldislega jákvæðu umhverfi.
    Lykillinn að því að stuðla að velferð fjölskyldunnar er að sjálfsögðu að minnka vinnuálag á foreldrum og gera þeim kleift að lifa af dagvinnulaunum sínum. Jafnframt þarf að finna viðunandi lausnir á húsnæðisvandanum sem er mikill streituvaldur og hvati að auknu vinnuálagi foreldra. Slíkar ráðstafanir einar sér mundu gefa fjölskyldum mun meiri tíma til samvista en þær hafa nú og
e.t.v. einmitt sjálfkrafa leysa mikið af þeim félagslega vanda sem blasir við mörgum fjölskyldum.
    Á hinn bóginn eru síauknar kröfur gerðar í nútímaþjóðfélagi um menntun og þekkingu og ætla má að þær verði síst minni í framtíðinni.
    Margir telja að undirstaða framfara og hagvaxtar í þjóðlöndum framtíðarinnar felist ekki síst í framförum í vísindum og tækni, en undirstöður þeirra eru einmitt menntun og þekking. Menn virðast samt ekki gera sér almennt nægilega grein fyrir því að gott menntakerfi er algjört skilyrði fyrir afkomu okkar í framtíðinni. Það er reyndar grundvöllurinn fyrir uppbyggingu og nýsköpun í atvinnulífi þjóðarinnar. Og til þess að Íslendingar geti orðið gjaldgengir á vinnumarkaði framtíðarinnar og menningar- og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar sé tryggt, þá verðum við að standa vörð um menntakerfið og bæta það með öllum ráðum. Þjóð sem á jafnfáar auðlindir og Íslendingar hlýtur að þurfa að veðja á hugvit sitt ekki síður og jafnvel meira en aðrir. Það hlýtur því að skipta meginmáli fyrir okkur að fjárfesta í menntun og við hljótum að taka alvarlega þá gagnrýni sem við sjálf höfum haft uppi og staðfest hefur verið og nánar skilgreind af Efnahags- og framfarastofnuninni um menntastefnu á Íslandi sem bendir á margt sem betur mætti fara og annað sem þarfnast tafarlausra úrbóta ef við ætlum ekki að missa af lestinni.

    Á þessu og sl. ári voru einmitt haldnar nokkrar ráðstefnur á vegum menntmrn. til þess að fjalla um þessa skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar og ég vil spyrja hæstv. menntmrh.: Hvað líður frekari vinnu í sambandi við þessar ráðstefnur og umfjöllun um skýrsluna? Er einhver vinna í gangi í ráðuneytinu í þeim efnum?
    Ég vil nú víkja nánar að frv. Flestir eru sammála um að sú ráðstöfun hafi verið rétt að hefja kennslu fyrir 6 ára börn í grunnskólum og flestir eru einnig sammála um að kennslutíma þeirra þurfi að lengja. Óþrjótandi forvitni og námfýsi ungra barna er þörf sem verður að svara og það getur skipt sköpum fyrir barn hvort, hvernig og hvenær slíkri þörf er svalað eða sinnt. Í frv. leggjum við til í 1. gr. að breyting verði gerð á 1. mgr. 1. gr. grunnskólalaganna og hún orðist svo, með leyfi forseta:
    ,,Skylt er ríki og sveitarfélögum að halda skóla fyrir öll börn og unglinga á aldrinum 6--16 ára eftir því sem nánar segir í lögum þessum. Skóli þessi nefnist grunnskóli og er öllum börnum og unglingum á aldrinum 6--16 ára skylt að sækja skóla. Undanþágu má þó veita frá skólaskyldu, sbr. 5., 7. og 8. gr.``
    Hér er í raun verið að leggja til að lögleidd verði bæði fræðsluskylda og skólaskylda 6 ára barna. Það er gert ráð fyrir að fræðsluskylda verði lögbundin strax og lög þessi taka gildi, þ.e. á skólaárinu 1989--1990, en skólaskylda hins vegar ekki fyrr en á skólaárinu 1990--1991 eins og segir í bráðabirgðaákvæði. Okkur þykir nauðsynlegt að gefa aðlögunartíma fyrir skóla og þá einkum skóla í dreifbýli til að búa sig undir það að 6 ára börnin verði skólaskyld. En auk áskilins aðlögunartíma eru síðan jafnframt undanþáguákvæði í 5., 7. og 8. gr. grunnskólalaganna sem nota má þegar aðstæður leyfa ekki að 6 ára börn sæki skóla eins og ákvæði um skólaskyldu bjóða.
    Ég vísa síðan í greinargerðina þar sem nokkuð ítarleg umfjöllun er um sögu skóla- og fræðsluskyldunnar auk þess sem frekari rökum er rennt undir það að lengja skólaskylduna á þennan veg. En varðandi yngri börnin, þá þykir okkur rétt að hið opinbera marki skýra stefnu varðandi þátttöku í uppeldi og menntun 5 og 6 ára barna. Slík stefnumörkun auðveldar bæði uppbyggingu dagvistarheimila og skóla og einnig menntun fóstra og kennara. Við teljum að það sé ekki tímabært að taka 5 ára börnin inn í grunnskólann meðan aðbúnaði 6 ára barna og reyndar annarra aldurshópa er enn svo ábótavant sem raun ber vitni. Menntun grunnskólakennara hefur ekki verið miðuð við að kenna 5 ára börnum en menntun fóstra miðar hins vegar að því að sinna þessum aldurshópi, enda fær hann nú mun betri umönnun og þjónustu á dagvistarheimilum en í skólum. Okkur þykir því ekki réttlætanlegt að bjóða 5 ára börnum lakari aðbúnað og þjónustu en þeim býðst nú þegar á dagvistarheimilum. Er þá höfð í huga tímalengd dvalar á hverjum degi, fjöldi barna í umsjá hvers fullorðins og mikil útivinna foreldra sem þurfa á öruggri gæslu barna að halda. Enn fremur má búast við því að mikil eftirspurn yrði

á þéttbýlissvæðum eftir skólarými fyrir 5 ára börn, meiri en í dreifbýli. Slíkt gæti aukið enn frekar á þann aðstöðumun sem þegar er of mikill milli dreifbýlis og þéttbýlis.
    Flestum nágrannaþjóðum okkar hefur tekist að samræma vinnudag barna og foreldra að verulegu leyti. Á Norðurlöndunum, í flestum öðrum Evrópulöndum og í Bandaríkjunum fara börn jafnan til skóla á morgnana kl. 8 eða 9 og dveljast þar til kl. 2 eða 4 síðdegis. Það er venja að börnin geti matast í skólanum, annaðhvort með því að kaupa þar heita máltíð, brauð eða annað létt fæði eða neyta þar nestis að heiman. Stundum gefst yngri börnum þess kostur að fara heim í hádeginu til fullorðinna til að borða ef aðstæður leyfa. Algengt er að skólinn beri ábyrgð á börnunum meðan þau dveljast þar og er nemendum ekki ætlað að fara út af lóð skólans meðan á skólatíma stendur. Þessu banni er
yfirleitt framfylgt og það virt. Yngri börnin eru gjarnan eitthvað skemur í skólanum en þau eldri og er vinnudegi þeirra jafnan lokið er heim kemur, en þau eldri þurfa fremur að sinna einhverju heimanámi. Þessi háttur hefur verið hafður á um margra ára eða áratuga skeið meðal nágrannaþjóða okkar óháð því hvort fjarvistir beggja foreldra frá heimili, eins og hér er oft raunin, eða aðrar félagslegar aðstæður krefðust þess. Það er því verulegt umhugsunarefni hvers vegna þetta fyrirkomulag hefur ekki verið tekið upp hérlendis, einkum þegar litið er til þeirra félagslegu aðstæðna sem ég hef nú þegar lýst og varða hag barna.
    Í 2. gr. frv. leggjum við til að breyting verði gerð á 2. mgr. 23. gr. laganna sem orðist svo, með leyfi forseta:
    ,,Í hverju skólahverfi skal vera skólahúsnæði sem fullnægir þörfum grunnskóla við þær aðstæður sem þar eru. Við gerð eða breytingar skólamannvirkja skal m.a. tekið tillit til hvort nemendur ganga til skóla, er ekið þangað daglega, búa þar í heimavist eða um blandað fyrirkomulag er að ræða. Menntamálaráðuneytið ákveður að fenginni umsögn hlutaðeigandi fræðsluráðs, skólanefndar og sveitarstjórna hvaða gerð skólamannvirkja skuli reisa á hverjum stað. Stærð skólahúsnæðis grunnskóla fyrir nemendur í 1.--10. bekk skal miða við að fjöldi nemenda í skólanum fari ekki yfir 400, né fjöldi nemenda í skólum fyrir nemendur í 1.--7. bekk yfir 300 nemendur.``
    Okkur fannst ástæða til þess að taka skýrt fram í lögunum um gerð eða breytingar skólamannvirkja hver æskileg stærð skólahúsnæðisins eigi að vera. Eins og þegar hefur komið fram í máli mínu, þá eru kennarar og skólamenn almennt þeirrar skoðunar að heppilegra sé að hafa grunnskóla smáa og fámenna en stóra og fjölmenna og á það ekki síst við um skóla fyrir yngri börnin. Smærri skólar hafa reynst bæði nemendum og kennurum manneskjulegri og betri vinnustaðir. Það er auðveldara að skapa þar heimilislegar aðstæður og það má mæta ýmsum tæknilegum ókostum smærri skóla með aukinni samvinnu og samstarfi skóla og kennslumiðstöðvar og skóla innbyrðis.

    Ég vil vekja athygli á því að einelti er mikið vandamál þar sem það kemur upp í skólum og fer tíðni þess jafnvel fremur vaxandi en minnkandi. Það getur verið mjög erfitt að eiga við og erfitt að taka eftir því en það er mun auðveldara að fást við slíkt vandamál í smærri skólum og þar kemur það reyndar miklu síður upp.
    Auðvitað gæti fylgt þessu fyrirkomulagi meiri kostnaður því hver lítill skóli þarf á svipuðum náms- og kennslugögnum að halda sem gætu e.t.v. samnýst betur í stærri skóla. En þetta mundi kannski fremur hvetja til aukinnar samvinnu milli skóla þannig að hægt væri að nýta tæki og ýmis gögn milli skóla á sama svæði.
    Í áætlun þessari er miðað við svokallaðan tveggja hliðstæðna skóla, þ.e. þar sem tvær bekkjardeildir eru í hverjum árgangi. Lagt er til grundvallar að meðaltal nemenda í bekkjardeild sem frv. gerir ráð fyrir eru 14 börn í 1. og 2. bekk og 18 börn í 3.--10. bekk. Í slíkum skóla yrðu því 344 börn.
    Í 3. gr. frv. er lögð til breyting á 1. mgr. 25. gr. laganna sem orðist svo, með leyfi forseta:
    ,,Í skólahúsi skal auk kennslurýmis gera ráð fyrir aðstöðu fyrir nemendur milli kennslustunda, aðstöðu til að neyta málsverðar og njóta hvíldar, snyrtiherbergjum, skrifstofu- og vinnuherbergjum skólastjóra og kennara, safni bóka og annarra námsgagna, aðstöðu til heilsugæslu, íþróttaiðkana, almennrar félagsstarfsemi í þágu nemenda og annars þess er lög þessi gera ráð fyrir. Ef henta þykir má ætla aðstöðu til íþrótta og verklegrar kennslu í öðru húsnæði.``
    Okkur þótti rétt að taka einnig mjög skýrt fram í meginskilgreiningu á skólahúsnæðinu að þar eigi nemendur að geta neytt málsverðar og hvíldar, að á því léki enginn vafi. Það er reyndar tiltekið síðar í þessari lagagrein en einungis þar sem talað er um breytingar á skólahúsnæði eða byggingu nýs skólahúsnæðis. Einnig fannst okkur nauðsynlegt að fram kæmi að það þyrfti aðstöðu til hvíldar og þar vorum við fyrst og fremst með yngstu börnin í huga þar sem kennslutími þeirra verður lengdur samkvæmt þessu frv. Það er auðvitað ekki alls staðar nauðsynlegt að hafa sérstakt húsnæði sem eingöngu er notað til að neyta nestis eða málsverðar eða þá til hvíldar. Auðvitað má víða gjarnan nota sali sem einnig þjóna öðrum tilgangi. En fyrst og fremst þarf að skipuleggja starfið og gera ráð fyrir því jafnframt að hægt sé að matast eða hvílast eftir aðstæðum. Ég vek athygli á því að í þeirri áætlun frá Fossvogsskóla, sem ég vitnaði til áður, er gert ráð fyrir að börnin hafi með sér heimanfengið nesti, en geti að einhverju leyti keypt það einnig í skólanum, en að þau neyti nestisins í skólastofunni sjálfri. Það er því ekki alltaf að um er að ræða þörf fyrir aukið húsnæði eða auknar byggingar, heldur fyrst og fremst skipulagningu og vilja til að taka inn nýja starfsemi.
    Næst vík ég að 4. gr. Þar leggjum við til breytingar á 1.--4. mgr. 34. gr. sem orðist svo, með leyfi forseta:

    ,,Ráðuneytið ræður, setur eða skipar skólabryta til forstöðu mötuneytis í heimavistarskólum og öðrum grunnskólum, sem starfrækja mötuneyti, samkvæmt
tillögum skólastjóra og skólanefndar.
    Heimilt er skólanefnd að setja skilyrði um menntun eða starfsþjálfun skólabryta.
    Skólabrytar og annað starfsfólk við framreiðslu eða umsjón skólamáltíða eru ríkisstarfsmenn.
    Skólastjóri ræður með samþykki skólanefndar stunda- og forfallakennara við skóla með nemendum færri en 30 og starfsfólk með uppeldisfræðimenntun til að annast nemendur í grunnskólum fyrir eða eftir eiginlegan skólatíma, svo og starfsfólk til aðstoðar í mötuneytum.``
    Það er líklegt að skólar velji að bjóða nemendum ýmist upp á heitar máltíðir, léttar kaldar máltíðir eða þá að nemendur neyti nestis að heiman í skólanum, allt eftir vali hverju sinni. Það er einnig nauðsynlegt að kveða skýrt á um ráðningar og stöðu þess starfsfólks sem ætlað er að sjá um mötuneyti eða framleiðslu og umsjón skólamáltíða og jafnframt þarf einnig að kveða skýrt á um ráðningar þeirra sem sinna börnum utan kennslustunda. Því eru þessar breytingar gerðar.
    Síðan er það 5. gr. frv. sem er breyting á 44. gr. laganna sem varðar lengd kennslutíma og hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Við ákvörðun daglegs og vikulegs starfstíma nemenda í grunnskóla skal þess gætt að hann fari í heild (kennslutími, stundahlé og sjálfsnám utan kennslustunda) ekki fram yfir hæfilegt vinnuálag miðað við aldur nemenda og þroska.
    Vikulegur kennslutími á hvern nemanda í grunnskóla skal vera sem næst þessi:
    Í 1. bekk, 6 ára börn, 1200 mínútur eða 30 stundir. Í 2. bekk fyrir 7 ára börnin sama kennslumagn. Í 3. og 4. bekk, 8 og 9 ára börnin, 1280 mínútur eða 32 stundir. Fyrir 5. og 6. bekk, 10 og 11 ára börn, 1400 mínútur eða 35 stundir. 7. bekkur, 12 ára börn, 1440 mínútur eða 36 stundir.``
    Við höfum engar breytingar gert á grunnskólalögunum í þessu frv. hvað varðar kennslu 13, 14 og 15 ára barna en þeim er ætlaður kennslutími sem svarar 1440--1480 mínútum eða 36--37 stundum. Reynslan er þó að vísu önnur samkvæmt reglugerðinni að ég hygg því kennslutíminn er styttri en ákvæðin í lögunum segja til um.
    ,,Í 1.--6. bekk er skólastjóra í samráði við kennararáð eða kennarafund og með samþykki fræðslustjóra heimilt að lengja eða stytta vikulegan kennslutíma nemenda um allt að 40 mínútur frá framangreindum ákvæðum. Skal þá hvors tveggja gætt að heildartímafjöldi nemenda skólans það skólaár fari sem minnst fram yfir ákvæðin og að samanlagður kennslutímafjöldi nemenda á skólaferli þeirra á umræddu skólastigi verði sem næst ákvæðunum.
    Um lengd kennslustunda fer eftir ákvörðun skólastjóra í samráði við kennararáð eða kennarafund. Eigi má þó samfelld kennslustund vera lengri en 80 mínútur og eigi að jafnaði skemmri en 20 mínútur.

Meðallengd kennslustunda í grunnskóla telst vera 40 mínútur.
    Stundahlé í grunnskóla skulu að jafnaði vera 15 mínútur á móti hverjum 100 mínútum sem kenndar eru.
    Daglegur kennslutími nemenda skal vera samfelldur með eðlilegum stundahléum og matartímum.
    Nemendur skulu eiga þess kost að dveljast í umsjá kennara eða annarra með uppeldisfræðimenntun í skólanum utan kennslustunda, þ.e. frá kl. 8--9 að morgni, í hádegi og kl. 15--17 síðdegis.``
    Lenging kennslutímans er af ásettu ráði ráðgerð í áföngum til að leyfa aðlögun að þeim breyttu kröfum sem slíkt hefur í för með sér. Er þeim áföngum nánar lýst í bráðabirgðaákvæðinu. Það kann að vera að ýmsum þyki of hratt í sakirnar farið og kannski þurfi að hægja eitthvað á ferðinni. En við ákváðum við endurflutning frv. að lægja ekki metnað okkar fyrir hönd barna, frekar en við frumflutning þess, svo lengi sem þau hafa beðið, og þess vegna settum við þetta fram á þann hátt sem við gerum. Hins vegar krefst þessi lenging, sem hér er ráðgerð, þess í raun og veru að skólarnir verði einsetnir heilsdagsskólar og víða þarf að bæta við einhverju kennslurými til þess að svo geti orðið, jafnframt að öll börn eigi kost á því að matast í skólanum. Við gerum ráð fyrir styttri kennslutíma fyrir yngri börnin en þau eldri, en í kennslutíma eru að sjálfsögðu meðtaldar allar kennslugreinar, þar á meðal list- og verkmennt og líkamsrækt. Einnig má reikna með því að lengri kennslutími dragi mjög úr nauðsyn þess að börn stundi heimanám, einkum yngri börnin, þannig að þegar þau komi heim úr skóla sé vinnudegi þeirra að jafnaði lokið og þá eigi þau í raun og veru frí. Við gerum sem sé ráð fyrir að dagleg skóladvöl grunnskólanemenda verði a.m.k. 6 klst. á dag að meðtöldum eðlilegum stundahléum og matarhléum.
    Okkur þykir rétt að taka það fram að ákvarðanir um breytingar á kennslutíma séu teknar af skólastjóra í fullu samráði við kennara skólans þannig að um raunverulega valddreifingu innan skólans sé að ræða. Við miðum sem sagt að því að lengja í áföngum kennslutíma 6--12 ára barna þannig að
skólarnir verði að lokum að einsetnum heilsdagsskólum. Við ætlum 6--7 ára börnum að verða samtals 20 klst. í skóla á viku, 8 og 9 ára börnum 21 klst. og 20 mínútur, 10 og 11 ára börnum 23 klst. og 20 mínútur og 12 ára börnum 24 klst. Þetta er í raun á bilinu frá rúmlega 6 klst. samtals upp í 7 klst. á dag þegar gert er ráð fyrir stundahléum og matarhléum. Og eins og ég áður sagði gerum við ráð fyrir því að allar kennslugreinarnar verði kenndar á þessum tíma.
    Hvað varðar gæsluna í skólunum utan kennslustundanna, sem okkur þykir mjög nauðsynlegt að gert verði ráð fyrir, ætlumst við til þess að börnin geti þar unnið, leikið sér eða hvílt sig allt eftir þörfum og að í lögunum sé gert ráð fyrir starfsfólki til að annast þetta starf. Fjöldi grunnskólakennara og forsvarsmanna barna sem við höfum rætt við, bæði

við undirbúning frv. í byrjun og einnig síðar, lögðu þunga áherslu á mikilvægi þess að fækka nemendum í einstökum bekkjardeildum grunnskólans. Sumir töldu það jafnvel brýnustu einstöku aðgerðina til úrbóta í málefnum skólans. Í því sambandi má vísa í könnun sem gerð var af Þórólfi Þórlindssyni prófessor á vegum menntmrn. þar sem fram kom að samtals 89,22% grunnskólakennara telja að fækka þurfi í bekkjardeildum frá því sem nú er. Það er athyglisvert að í þessari könnun bárust svör frá óvenjulega mörgum grunnskólakennurum eða tæpum 84% aðspurðra.
    Flestir þeirra sem við höfum rætt við töldu að við núverandi aðstæður væri erfitt að sinna öllum nemendum í fjölmennum bekkjardeildum með blönduðum bekkjum. Reynslan væri sú að kennslan miðaðist fyrst og fremst við getu meðalnemendanna, en þeir sem þyrftu á sérstakri aðstoð kennarans að halda yrðu einfaldlega út undan. Þeir sem þannig njóta ekki kennslu í samræmi við námshæfileika sína verða út undan og geta misst bæði áhuga og tök á náminu og yfirgefið skólann með skerta sjálfsímynd, en slíkt er auðvitað í fyllsta ósamræmi við markmið og anda grunnskólalaganna og stríðir gegn betri vitund kennara. Það er því tvímælalaust bæði nemendum og kennurum í hag að fækkað sé í bekkjardeildum. Brýnast er það í yngstu bekkjum skólans þegar börnin eru að byrja skólanámið.
    Í 6. gr. frv. höfum við lagt til breytingar á 1. mgr. 46. gr. grunnskólalaganna í samræmi við það sem ég hef þegar minnst á og með leyfi forseta langar mig að lesa upp greinina:
    ,,Eftir að frá hafa verið taldir sérbekkir fyrir nemendur sem ekki stunda nám í almennum bekkjum grunnskóla, sbr. 50. og 51. gr., skal við það miðað að meðaltal nemenda í 1. og 2. bekk, þ.e. 6 og 7 ára barna, hvers grunnskóla fari ekki yfir 14 né nemendafjöldi í einstakri bekkjardeild yfir 16. Á sama hátt skal við það miðað að meðaltal nemenda í 3.--10. bekk fari ekki yfir 18 né nemendafjöldi í einstakri bekkjardeild yfir 20.``
    Síðan höfum við vegna breytingar á skólaskyldunni í 7. gr. lagt til að 74. gr. laganna falli einfaldlega brott. Það verður þó reyndar ekki fyrr en skólaskylda 6 ára barna verður lögbundin að þessi heimild eða heimildarákvæði falli niður, en það er heimildarákvæði fyrir sveitarfélög að starfrækja forskóla fyrir 5 og 6 ára börn.
    Síðasta málsgr. greinarinnar flyst þá reyndar yfir á 75. gr. Þessi ákvörðun er í samræmi við þá stefnu sem hér er mörkuð varðandi þátttöku hins opinbera í uppeldi og menntun 5 og 6 ára barna og ég hef áður rökstutt. Ég vil einungis endurtaka það að 5 ára börn eiga nú völ á mun betri umönnun og þjónustu á dagvistarheimilum en í skólum og þess vegna þykir okkur rétt að vanda fremur til aðbúnaðar þeirra aldurshópa sem þegar eru í grunnskóla en auka við nýjum árgangi og bjóða honum upp á lakari kost en hann á völ á.
    Í 8. gr. leggjum við til breytingar á 75. gr. laganna

svohljóðandi:
,,a. Orðin ,,eða forskóla, sbr. 74. gr.,,, í 1. málsl. 1. mgr. falli brott.
    b. Á eftir 1. mgr. bætist ný málsgrein er orðist svo:
    Óheimilt er einkaaðila að reka skóla fyrir börn undir skólaskyldualdri nema með leyfi fræðslustjóra og að uppfylltum skilyrðum sem menntmrn. setur um starfsáætlun, menntun kennara og annan aðbúnað barnanna.``
    Þessar breytingar gerum við fyrst og fremst til samræmingar vegna þess sem ætlað er að fella úr 74. gr. og til að tryggja áframhaldandi rekstur gróinnar og vel látinnar stofnunar eins og skóla Ísaks Jónssonar sem við teljum enga ástæðu til þess að hrófla við og hefur fyrir löngu sannað tilverurétt sinn.
    Í 9. gr. leggjum við til breytingar á 5. mgr. 76. gr. laganna sem orðist svo:
    Til kennslutíma skal hvorki telja kennslustundir utan námsskrár né kennslustundir umfram þann tíma sem ákveðinn er í 44. gr. nema hvað verja má einni stund á viku á hverja 20 nemendur í 1.--10. bekk grunnskóla til reglubundins náms á skólasafni undir leiðsögn kennara.
    Þessi grein er fyrst og fremst gerð til þess að tryggja nemendum aðgang að skólasafni og lagt er til að allir nemendur grunnskólans eigi tilskilinn rétt til reglubundins náms á skólasöfnum. Áður var það miðað einungis við 3.--9. bekk. Enn fremur fellum við niður að slíkt þurfi að vera bóknám heldur geti nemendur og kennarar ákvarðað það sjálfir hvernig slíkt nám fer fram. Það þykja eðlilegri vinnuhættir.
    10. gr. er einungis til að ákvarða gildistöku laganna. Síðan kemur ákvæði til bráðabirgða, með leyfi forseta:
    ,,Ákvæði 1. gr. um skólaskyldu 6 ára barna komi ekki til framkvæmda fyrr en á skólaárinu 1990--1991 og sömuleiðis ákvæði 7. gr. um niðurfellingu almennrar heimildar um rekstur forskóla. Fram að þeim tíma verður upphaf skólaskyldu við 7 ára aldur.
    Ákvæði 5. gr. um vikulegan kennslutíma á hvern nemanda koma ekki til framkvæmda fyrr en á skólaárinu 1991--1992. Fram að þeim tíma gilda ákvæði sem sett eru fyrir skólaárið 1989--1990 og einnig fyrir skólaárið 1990--1991``, sem reyndar eru prentuð í bráðabirgðaákvæðinu en ég mun ekki lesa hér en vísa hv. þingdeildarmönnum á.
    Nánar er vikið að mikilvægi þess að einsetning í grunnskólum sé í raun eitt af frumskilyrðum þess að samfelldur heilsdagsskóli komist á í raun og veru og er þá vitnað í niðurstöður vinnuhóps sem starfaði undir forustu hv. 6. þm. Reykn. Salome Þorkelsdóttur og einnig í svar við fsp. hv. varaþm. Unnar Stefánsdóttur.
    En öllum þessum ráðstöfunum og einsetningunni fylgir vitanlega aukinn kostnaður, a.m.k. til að byrja með, og er nauðsynlegt að reyna að gera sér eins glögga grein fyrir honum og unnt er þó að hann geti vitanlega aldrei orðið hindrun í framkvæmd jafnmikils grundvallaratriðis og þessi breyting á skólamálum er

og varðar í raun menntastefnu þjóðarinnar. Hins ber þó að gæta að þarna er fyrst og fremst um byrjunarkostnað að ræða þó einhver aukinn rekstrarkostnaður fylgi og bættur aðbúnaður barna í skólum er góð fjárfesting er til framtíðar er litið. Það mun skila sér í betri menntun og betri andlegri og líkamlegri heilsu þeirra sem byggja landið.
    Jón Torfi Jónasson, dósent í félagsvísindadeild Háskólans, hefur að undanförnu unnið að því og reyndar nýlokið við að kanna og áætla þann kostnað sem yrði samfara því að koma á einsetningu í grunnskólum. Þetta hefur verið hluti af vinnu hans sem nú er lokið og framkvæmd var fyrir tilstuðlan skólamálahóps framtíðarspárnefndar forsrh. Greinargerð sem er hluti af þessum niðurstöðum hans er raunar birt sem viðauki við frv. með góðfúslegu leyfi höfundar og ég vísa hv. þm. á þann viðauka til frekari upplýsinga.
    Sú áætlun sem Jón Torfi gerði fyrir okkur þar sem hann sundurliðaði þann kostnað sem þetta frv. gæti haft í för með sér er í raun mjög grófleg áætlun, en þar gekk hann út frá svipuðum forsendum og koma fram í þeim viðauka sem ég vísaði til áðan. Þó ber að undirstrika að áætlunina má alls ekki túlka of nákvæmlega. Það er ekki síst vegna þess að mjög margir kostnaðarliðir, sem hljóta að fylgja þessu dæmi, eru óvissir og byggjast á viðmiðunum eða forsendum sem eru álitamál eða mikið matsatriði. Þó að þessi kostnaðaráætlun hafi verið leiðrétt og færð til núgildandi verðlags, telur höfundur hennar að hún sé í raun mjög ríflega reiknuð. Ég vísa til þess frv., sem liggur fyrir Nd., sem hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir, Birgir Ísl. Gunnarsson og Þorsteinn Pálsson flytja. Þar er vísað til skýrslu fjölskyldunefndarinnar sem ég gat um áðan og er kostnaðaráætlun hennar mun lægri í raun og þar miðað við aðrar forsendur.
    En ég vil í örstuttu máli draga niðurstöður af þeim kostnaði sem hann áætlar. Á þessum þremur árum er um að ræða vegna einsetningarinnar um 540 millj. kr. en vegna stofnkostnaðar, og þá er áætlaður kostnaður fyrir kennslustofur fyrst og fremst, 975 millj. kr., þ.e. 1 1 / 2 milljarður samtals. Hins vegar er mun dýrara að taka á fækkun nemenda í bekkjum. Þar er um að ræða rekstrarkostnað upp á 900 millj. kr. og stofnkostnað upp á rúmlega 2 1 / 2 milljarð sem í heildina gerir 3 1 / 2 milljarð. En ég vísa aftur til þess að þetta eru mjög ríflegar kostnaðartölur.
    Annað sem ég hef ekki minnst á en rennir stoðum undir það mál sem ég flyt hér er ekki síður mikilsvert og það eru slys á börnum og mataræði þeirra, en þetta eru mikilvægir þættir þegar við hyggjum að almennum aðbúnaði barna og nauðsyn þess að sinna þeim, bæði í skóla og utan, heima og heiman. Það skortir mikið á að nógu vel sé almennt hugað að frumþörfum vaxandi barna eins og t.d. næringarþörf og er undir hælinn lagt hvernig börnin bera sig að því að sinna henni í fjarveru foreldra, en almennt er engin eða lítil aðstaða til þess í skólunum.
    Mikið áhyggjuefni eru einnig tíð slys á börnum. Á Íslandi er lægstur ungbarnadauði í heiminum. Hins

vegar er börnum hérlendis búin meiri slysahætta en börnum í nágrannalöndum okkar, bæði í umferðinni og reyndar líka í heimahúsum. Ástæða er til að ætla að skortur á umsjá fullorðinna og sundurslitin stundaskrá valdi þar mestu. Vinnudagur foreldra og barna hérlendis er ekki samræmdur. Stundaskrá og kennslutímar grunnskólabarna eru allt of oft ósamfelld og útheimta margar ferðir þeirra á degi hverjum til og frá skóla og börn hafa yfirleitt hvorki tök á því að fá mat í skólanum né hafa þau almennt aðstöðu til að matast þar. Það er reyndar ótrúlegt skeytingarleysi um tíma og virðingarleysi gagnvart velferð barna að bjóða þeim upp á þann vinnudag í skóla sem við höfum látið viðgangast, fullorðna fólkið í
samfélaginu. Við mundum tæplega bjóða öðru fullorðnu fólki upp á slíkt, enda njóta flestir fullorðnir þess að hafa mötuneyti eða aðstöðu til að neyta nestis á vinnustað og finnst það reyndar sjálfsagt. Það er alveg dæmalaust metnaðarleysi foreldra að hafa í raun látið þetta viðgangast svo lengi og ekki myndað virkari þrýstihóp á framkvæmdaraðila í þjóðfélaginu til að knýja á um bætta stöðu barna í skólunum.
    Í raun hljóta allir að vera sammála um að það sé sjálfsagt réttlætismál barna að þeim sé tryggður samfelldur vinnudagur, holl og góð næring og öryggi gagnvart slysum. Við teljum að skref sé stigið í rétta átt með þeim breytingum á grunnskólalögunum sem hér eru lagðar til. Að sjálfsögðu hefði mátt gera ýmsar fleiri breytingar, en hér hefur þó aðeins verið tekið á því sem brýnast þótti og þess má reyndar geta að fyrir deildinni liggur einmitt frv. til l. um breytingar á grunnskólalögunum sem er flutt af hv. 6. þm. Reykn. ásamt öðrum og varðar þá breytingu að komið sé á skólaráði við hvern skóla. Síðan liggur einnig annað frv. fyrir deildinni, sem varðar breytingar á grunnskólanum og ég hélt að ég hefði haft með mér upp í pontuna, en það varðar fyrst og fremst skiptingu þéttbýlissvæða niður í fleiri skólahverfi þar sem skólanefndir eru til ráðgjafar og stuðnings fyrir skólayfirvöld, en að því frv. standa flm. úr flestum flokkum.
    Það frv. sem ég hef mælt fyrir nú er unnið fyrst og fremst í samráði við konur innan Kvennalistans og þá einkum þær sem höfðu mikla reynslu af skólamálum. Ég vil þá sérstaklega geta Elínar G. Ólafsdóttur kennara sem hefur um langt skeið unnið að skipulagi mála barna á forskólaaldri og verið mjög virk í mótunarstarfi í skólamálum. Einnig vil ég geta Guðnýjar Guðbjörnsdóttur lektors sem hefur stundað uppeldisfræðilegar rannsóknir á högum skólabarna, en ýmsar aðrar konur lögðu þarna hönd að verki. Það kom fram í máli núv. hæstv. menntmrh. að hann tók eftir því hvernig þetta frv. var unnið þegar ég mælti fyrir því á síðasta þingi, þ.e. að það væri unnið af konum. Hins vegar taldi hann nauðsynlegt að í máli af þessu tagi, sem snerti alla foreldra og öll börn, kæmu karlar einnig við sögu. Hann taldi að þeir ættu rétt á því ekki síður en aðrir. Ég vil þá geta þess, að Jón Torfi Jónasson veitti góðfúslega leyfi til að birta hluta af vinnu sinni fyrir framtíðarspárnefndina og

samdi einnig kostnaðaráætlun fyrir þetta frv. Síðan vil ég beina þeim orðum til hæstv. núv. menntmrh., sem einmitt er karl, að þarna býðst honum mjög gott tækifæri til að láta til sín taka sem foreldri og sem menntmrh. til þess að vinna að þessu mikilsverða máli.
    Við teljum sem sé, flm., að ekki verði lengur beðið eftir því að koma betri skipan á málefni grunnskólans. Til þess þarf auðvitað átak stjórnvalda og samvinnu allra þeirra sem telja sig ábyrga fyrir farsælli framtíð barna og það hljótum við öll að telja okkur á þessu þingi. Kjörorð þessa átaks gætu reyndar verið: Öll börn eru á ábyrgð okkar allra.
    Ég hef nú lokið máli mínu, herra forseti, og vonast til þess að máli þessu verði vísað til hv. menntmn. deildarinnar og 2. umr. að lokinni þessari umræðu.