Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka hv. flm. þessa frv. fyrir frv. og endurflutning þess og þá miklu vinnu sem í það hefur verið lögð af konum og fleirum. Það er gagnlegt að fá enn á ný umræðu um skólamál í hv. Ed., en frv. var, eins og fram kom í framsöguræðu hv. 6. þm. Reykv., flutt hér í fyrra líka.
Þá liggur einnig fyrir, eins og hv. þm. gat um, frv. til l. um breytingu á grunnskólalögum sem hv. 6. þm. Reykn. er 1. flm. að og sömuleiðis liggur hér fyrir frv. með flm. úr mörgum flokkum stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka, frv. til l. um breytingu á grunnskólalögum sem snertir skiptingu í skólahverfi og yfirstjórn fræðsluumdæma. Þetta er auðvitað eins og það á að vera. Það eiga að koma fram mörg mál sem snerta skólann, skólamál, og þau eiga að koma úr öllum áttum. Þau eiga að koma frá stjórnarflokkum, ríkisstjórn og stjórnarandstöðu vegna þess að hér er um að ræða málaflokk sem á að vera sem víðtækust samstaða um.
Sem betur fer gefst okkur kostur á því að ræða þessi mál enn frekar, ekki aðeins í þessari umræðu heldur einnig síðar, því að fyrir þinginu liggur beiðni um skýrslu frá hv. þm. Kvennalistans um stöðu verk- og listmenntagreina í skólum. Sú skýrsla er mjög viðamikil og verður því miður ekki tilbúin fyrr en undir jól eða um jól þannig að það gefst sennilega ekki kostur á því að ræða hana fyrr en í janúar eða febrúar hvernig sem það æxlast. Síðan er gert ráð fyrir því að það verði hér gefin skýrsla af menntmrh. um vinnuna að aðalnámsskrá grunnskólans. Sú skýrsla er einnig í vinnslu og samkvæmt þeim vinnuáætlunum sem við höfum sett okkur verður hún tilbúin í kringum 20. janúar og þá gefst einnig kostur á því að ræða um málefni grunnskólans hér á hv. Alþingi.
Það er mjög mikilsvert að fá þannig tækifæri til þess að fjalla rækilega um skólamál, ekki síst á þeim tímum sem við lifum nú þar sem menn eru af eðlilegum ástæðum uppteknari oft af ýmsum öðrum þáttum í þjóðlífinu eins og t.d. efnahags- og atvinnumálum, og er ekki að undra, en á þeim tímum er ekki síður mikilvægt að huga að þessum greinum sem eru líka undirstaða þegar allt er skoðað, undirstaða þess að við erum Íslendingar og viljum eiga íslenska menningu og undirstaða þess að við búum í velferðarþjóðfélagi og viljum búa vel að börnunum okkar. Þess vegna er þetta þarfleg umræða, ekki síst á tímum eins og við lifum nú.
Ég ætla að fara í fyrsta lagi yfir almenn efnisatriði eða svör við þeim ábendingum sem fram komu hjá hv. þm. Síðan ætla ég að víkja að almennri skólastefnu, skólaþróun, stjórn skólans. Í þriðja lagi ætla ég að fara yfir einstaka þætti frv. og loks í einstakar greinar þess frv. sem hér liggur fyrir.
Það er þá fyrst það að hv. 6. þm. Reykv. spurði hvort einhver vinna væri í gangi vegna skýrslu OECD. Eins og hv. þm. gat um voru fyrr á þessu ári og í lok síðasta árs, hygg ég, haldnar ráðstefnur um ákveðna þætti þessarar skýrslu og það er í gangi vinna í framhaldi af þessum ráðstefnum í menntmrn.,
kannski ekki allt of markviss satt best að segja. Það er t.d. eftir að fjalla um einn þátt skýrslunnar á ráðstefnu sem ætlunin er að halda og fjallar um háskólastigið sérstaklega. Það er ætlunin að halda þá ráðstefnu. Hvenær hún verður veit ég ekki, en það er meiningin að hún verði á fyrra hluta næsta árs.
Hv. þm. hugleiddi dálítið í sinni ræðu hvernig á því stendur að við Íslendingar erum ekki hér með samfelldan skóladag eins og tíðkast með öðrum menningarþjóðum. Ég hygg að svarið liggi í augum uppi þegar við hugleiðum það nánar. Okkar þjóðfélag hefur þróast mjög hratt. Það hafa verið mjög miklar sviptingar í íbúasamsetningu í landinu. T.d. hefur það gerst á undanförnum örfáum árum að það hefur fjölgað um 12.000--14.000 manns í Reykjavík einni þannig að veruleikinn hefur kollvarpað öllum áætlunum sem voru gerðar fyrir fáeinum árum um þróun grunnskólans á Íslandi í raun og veru. Það eru komin ný mál á dagskrá vegna þess hvernig íbúasamsetningin hefur breyst. Þessar sveiflur hafa gert að verkum að það hefur verið erfitt að taka á ytri þróunarskilyrðum skólastarfsins í landinu. Það hefur verið áhugi á því hygg ég víðast hvar, en veruleikinn hefur verið sá sem t.d. birtist okkur í Reykjavík í þeirri staðreynd að við erum með yfirfulla skóla, mjög þröngt skipaða og illa, t.d. bæði Seljaskóla og Foldaskóla, í þeim hverfum sem nýjast hafa byggst, m.a. af því fólki sem hefur brugðið á það ráð að fara hingað til Reykjavíkur vegna bágborins atvinnuástands í dreifbýlinu.
Það er rétt sem hv. þm. sagði, þegar hún var að rökstyðja fjárútlátin sem frv. hefur í för með sér, að börnin hafa beðið lengi. Það er skynsamlegt af hv. þm. Kvennalistans að setja á blað ýtrustu hugmyndir sínar um þróun þátta skólastarfsins. Það er engu að síður nauðsynlegt fyrir þingheim allan að gera sér sem gleggsta grein fyrir því hvað hlutirnir kosta og þó að það sé alveg rétt að börnin eigi rétt á þessu má segja það um fleiri sem eru að leggja áherslu á þjónustu og fjárframlög úr ríkissjóði. Rétturinn er oft og tíðum mjög ótvíræður og það er mjög erfitt að standa gegn þeim rétti. Það vill enginn maður vera í þeirri stöðu. Og það er engin spurning um að hér hefur oft og tíðum verið sparað úr hófi fram, en það er engu að síður ljóst að við
þurfum að gera okkur grein fyrir því að hér er um að ræða geysilega stórar tölur. Ársútgjöld, ef það yrði framkvæmt til fulls sem hér er á blöðum frv. Kvennalistans, eru sennilega í kringum 2000 millj. kr. í rekstri þegar allt væri komið til framkvæmda með þeim hætti sem hér er ýtrast gert ráð fyrir. Það er auðvitað fróðlegt að íhuga það á sama tíma og við stöndum í því að koma saman fjárlögum, en það breytir ekki því að við eigum að fara yfir málið og kanna hvaða leiðir eru færar til að ná okkar markmiðum í þessu efni. Við eigum hvergi að hlífast við þar og við eigum að ganga mjög langt í því að gera kröfur fyrir börnin og uppvaxandi kynslóð í landinu. Við verðum engu að síður að gera okkur sem gleggsta grein fyrir því hvað hlutirnir kosta þó að það
sé oft erfitt að horfast í augu við það, sérstaklega þegar maður finnur að maður hefur ekki fjármuni til að greiða peningana.
Varðandi skýrslu Jóns Torfa Jónassonar, sem hv. þm. gat um, þá er það greinargóð skýrsla sem nýlega hefur borist menntmrn. og verður gefin út fljótlega þar sem farið er yfir hugsanlega þróun skólastarfs hér á komandi árum eða fram til 2010. Það er kannski fróðlegt fyrir hv. þm. að átta sig á því að langmesta aukningin að hans mati til ársins 2010 verður ekki á þeim hefðbundnu skólastigum sem við erum oft að tala um heldur í endurmenntuninni. Það er gert ráð fyrir því að þar verði um að ræða margföldun og aftur margföldun á þeim árum sem skýrsla hans nær yfir.
Að undanförnu hefur verið víðar en hér talsverð umræða um skólamál og í stjórnarsáttmála núv. ríkisstjórnar er komið inn á þætti skólamála. Ég ætla að víkja að nokkrum atriðum sem hefur verið fjallað um að undanförnu á vettvangi menntmrn.
Í fyrsta lagi ætla ég að víkja að forskólastiginu. Það er ætlun okkar á næstunni að setja af stað vinnu, reyndar er vinnan hafin, en að setja af stað vinnuhóp við að undirbúa löggjöf um forskólastigið. Við göngum m.ö.o. út frá því að þessi þáttur í okkar þjóðfélagi verði hluti af uppeldis- og menntakerfi landsins og að í störfum þess vinnuhóps sem með þetta mál fer þegar þar að kemur verði fjallað bæði um inntak starfs á forskólastiginu og einnig um þróunarverkefni þess á komandi árum. Þarna stöndum við frammi fyrir því eins og miklu víðar að það er búin að vera í gangi í þjóðfélaginu nokkuð lengi umræða sem ber yfirskriftina ,,verkaskipting ríkis og sveitarfélaga`` og ég gæti sagt ýmislegt um, sérstaklega af því að ég er orðinn svo leiður á henni. Þar er m.a. gert ráð fyrir því í þeirri umræðu að dagvistarstofnanir flytjist alfarið yfir á sveitarfélögin. Það hefur verið meginstefnan varðandi verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga að því er varðar forskóla eða að því er varðar dagvistarstofnanir. Þetta er mál sem verður að skoða sérstaklega í tengslum við löggjöf um forskólastigið. Mín skoðun er sú að í framtíðinni eigi að miða við að forskólastigið hafi svipaða stöðu í samfélaginu og grunnskólastigið gerir, það hljóti að vera það markmið sem miðað er við, bæði að því er varðar stofnkostnað og rekstrarkostnað. Það tekur að sjálfsögðu tíma að ná því markmiði eins og öllum þeim áherslum sem við höfum um endurbætur á skólastarfinu, en þetta tel ég að eigi að miða við sem markmið varðandi þróun forskólastigsins.
Varðandi grunnskólann höfum við verið með það á döfinni að flutt verði í vetur frv. um minni háttar lagfæringar á grunnskólalögunum jafnframt því sem við hyggjumst setja af stað heildarendurskoðun á grunnskólalögunum. Ég tel að það sé ekkert á móti því að við könnum eins og kostur er hvort hægt er að ná saman einhverjum þeim sjónarmiðum sem uppi eru í frv. hv. stjórnarandstæðinga og þeim frv. sem fram kunna að koma frá ríkisstjórninni í þessum efnum. Þau atriði sem við ætlum okkur að setja fram
varðandi grunnskólann sérstaklega í stjfrv. eru annars vegar snertandi 6 ára börnin og hins vegar atriði sem snerta stöðu fræðsluumdæmanna og sjálfstæði þeirra. Í þessu efni er rétt að hafa í huga að þarna munu ítarlegar lagabreytingar, tillögur, koma inn í þingið fljótlega sem hluti af verkaskiptingarmálum ríkis og sveitarfélaga þar sem gert er ráð fyrir grundvallarbreytingum á öllum kostnaðarþáttum grunnskólans eða flestöllum frá því sem nú er. M.a. er gert ráð fyrir því í þeim hugmyndum sem uppi eru og hafa verið lengi að stofnkostnaður grunnskóla verði að verulegu leyti, ekki öllu, kostaður af sveitarfélögunum og það er einnig gert ráð fyrir því að vissir þættir rekstrarkostnaðar, sem ríkið hefur tekið þátt í með sveitarfélögunum, flytjist yfir á sveitarfélögin alfarið. Þetta er auðvitað mál sem er grunnskóli líka og verður hér á dagskrá örugglega eftir ekki langan tíma þegar búið er að fjalla um það með venjubundnum hætti í stjórnarflokkunum og í þeirri nefnd sem með málið hefur farið og í viðræðum við samtök sveitarfélaga.
Þriðji þátturinn, sem ég ætlaði að koma hér að, sem við höfum fjallað um í menntmrn., er framhaldsskólinn sjálfur. Þar gerum við ráð fyrir því, vegna þess að breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga verður örugglega frestað og kemur ekki til framkvæmda um næstu áramót, að fresta fjármálakafla framhaldsskólalaganna og jafnframt höfum við í undirbúningi reglugerðir á grundvelli framhaldsskólalaganna að öðru leyti, reglugerðardrög sem verða
tilbúin um næstu áramót, þar sem tekið er á hinum einstöku þáttum, bæði í kostnaði og kennslu á vegum framhaldsskóla, sérkennslu þar á meðal.
Af því ég nefni sérkennsluna er rétt að skýra frá því að næstu daga mun nefnd sem fjallað hefur um breytingu á sérkennslureglugerðinni skila tillögum til menntmrh., sennilega seinna í þessari viku.
Þegar við erum að fjalla um skólamál er oft og tíðum lögð á það áhersla að taka á skólanum einum en ekki öðrum þáttum í kringum skólann. Þetta vil ég sérstaklega nefna í sambandi við framhaldsskóla. Það er eins og menn gleymi því að þriðji til fjórði hver unglingur fer ekki í framhaldsskóla og það er kannski það fólk sem er brýnast að opna skólakerfið fyrir, koma í veg fyrir að þetta fólk verði svo að segja innlyksa í láglaunastörfum úti um allt þjóðfélagið. Ég held að það sé vissulega rétt að menntmrh. hafi áhyggjur af skólakerfinu á sinni tíð, en ætli það sé ekki alveg eins nauðsynlegt að við sem hér erum öll hugsum aðeins um þetta fólk, vegna þess að skólakerfið eins og það er býður þetta fólk ekki velkomið aftur til sín. Þetta fólk er feimið við að fara aftur í skóla, hefur ekki fjárhagslegar aðstæður til þess, og það eru ekki sérstakar brautir eða möguleikar opnir fyrir þetta fólk í skólakerfinu í landinu. Það er í raun og veru mjög alvarlegt umhugsunarefni hvernig við getum búið til hér skemmri námsbrautir og mikið úrval námsbrauta af ýmsu tagi í þjóðfélaginu sem eru opnaðar fyrir þessu fólki, námsbrautir sem m.a. hefjast
á því að starfsreynsla þessa fólks úti í þjóðfélaginu áður er metin einhvers í skólunum þannig að ekki sé talið einskis virði í skólum í landinu allt það sem unnið er úti í þjóðfélaginu á hinum almennu vinnustöðum.
Ég vil einnig í þessu sambandi, herra forseti, rétt tæpa á þeim þáttum sem lúta að háskólastiginu og endurmenntunarmálunum. Ég tel reyndar að endurmenntunarmálin séu ein allra stærstu málin í þessu efni og þau tengjast því sem ég var að segja í sambandi við unglinga sem detta út úr framhaldsskólanum. Það vill svo til að það er í gangi endurmenntun víða á vegum margra ráðuneyta, á vegum samtaka, einstaklinga og fyrirtækja. Hins vegar er ekki til eins og er yfirlit yfir það námsframboð sem kostur er á í endurmenntun hér á landi og ekki skipulagt kerfi t.d. af því tagi að það opni launafólki aðgang að endurmenntun á launum meðan það stundar tiltekin endurmenntunarnámskeið, en kerfi af því tagi hafa verið til á Norðurlöndum um langt skeið og við höfum flutt á Alþingi, einhver okkar, t.d. hef ég flutt nokkrar tillögur um það á undanförnum árum að þetta fólk fái rétt til launa í námsleyfum sem ég held að sé mikilvægur lykill að því sem er grundvallaratriði, sem ég kem þá að næst, í skólamálastefnunni, þ.e. jafnrétti til að nota tækifærin sem skólinn skapar. Það er meginatriðið. Það sem við leggjum höfuðáherslu á er þetta jafnrétti annars vegar og hins vegar valddreifing, að dreifa sem mestu valdi frá ráðuneytinu út til fræðsluumdæmanna, út til skólanna, til fagfólksins sem um þessi mál á að fjalla, foreldra og kennara og skólastjórnenda.
Hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir gat um þær miklu breytingar sem hafa orðið á íslenska þjóðfélaginu á undanförnum árum og hefði reyndar mikið frekar átt að segja áratugum. Það er orðin í sögu lýðveldisins feikileg breyting. Fjölmiðlunin annast stærri og stærri hluta uppeldisins. Heimilin eru mikið veikari sem uppeldisaðilar en þau voru áður af margvíslegum ástæðum. Vinnuþrældómurinn er hér gífurlegur. Fólk liggur undir miklu vinnufargi og börnin verja álíka löngum tíma við fjölmiðlun, jafnvel á erlendum tungum, og þau verja í skólanum. Þetta gerir það allt að verkum að það er sótt að skólanum. Fjölmiðlunin rífur huga barnanna frá skólanum og það gerir það að verkum og fleira að nauðsyn er á því að ná sem víðtækastri samstöðu um mótun skólastefnu, menntastefnu. Við getum kallað það íslenska skólastefnu ef menn vilja. Ég tel reyndar að það sé eitt brýnasta verkefni menntmrn. að ná sem allra víðtækastri samstöðu þjóðarinnar um skóla- og uppeldisstarfið í landinu. Ég tel að fræðslulögin, eins og þau voru sett 1946, og grunnskólalögin 1974 hafi skapað góðan grundvöll að þjóðarsamstöðu um skóla og það sé mjög mikilvægt að varðveita þá samstöðu og haga yfirstjórn menntamála þannig að hún laði samstöðuna fram en sprengi ekki upp forsendur fyrir samstöðu um þessi veigamiklu mál.
Við höfum í ráðuneytinu hafið undirbúning að vinnu við mótun íslenskrar skólastefnu. Við gerum
það með þeim hætti að við munum senda út til allra skóla og skólamanna í landinu bréf fljótlega með fyrirspurn um hvaða atriðum fólk telur mikilvægast að breyta í skólastarfinu, hvaða atriði það eru sem fólk telur að eigi að vera aðaláhersluefnin í skólastarfinu. Á grundvelli þessa munum við síðan vinna að málinu áfram og auðvitað kalla til mikinn fjölda manns, bæði utan þings og auðvitað innan, þegar verkinu vindur fram.
Það hefur ekki farið fram hjá neinum og kom vel fram hjá hv. 6. þm. Reykv. að þær ástæður sem valda því að umræðan um skólamál fer vaxandi eru ekki síst þær að þjóðfélagið hefur verið að breytast og það eru hrikalegar tölur sem maður sér t.d. um fjölgun barnaverndarmála á undanförnum árum. Á tímabilinu 1981--1987 hefur fjöldi barna sem barnaverndarnefndir þurftu að hafa afskipti
af aukist um 155% og fjöldi þeirra barna sem eru ein heima mestan hluta dags eykst ár frá ári eins og allir þekkja. Þetta allt og fleira hefur það í för með sér að uppeldis- og umönnunarhlutverk fjölskyldunnar hefur stórlega veikst. Í mörgum tilvikum taka nýir uppalendur við með afar sterk mótunaráhrif. Þar er átt við sjónvarp og myndbönd. Þeir eru margir sem halda því fram að fjölmiðlar og þá fyrst og fremst sjónvarp hafi skemmt hinn verndaða heim barnæskunnar og barnamenningu byggða á bókum. Það sem áður fyrr var leyndarmál hinna fullorðnu stendur nú opið og frjálst hverju barni. Barnið er í mörgum tilvikum áhorfandi að verstu hliðum lífsins án þess að hafa skilning, reynslu eða þroska til að taka á móti. Slíkt getur haft hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir börnin. Með hliðsjón af öllu þessu og fleira ber að fjalla um skólamál sem mikilvægan þátt í öllu okkar stjórn- og velferðarkerfi.
Fyrir utan þau mál sem hv. þm. Kvennalistans flytja inn í deildina eru auðvitað fjöldamörg mál sem mætti nefna, áherslumál varðandi breytingar á grunnskólalögum og breytingar á skólakerfinu í landinu. Ég segi þetta fyrst og fremst til að leggja á það áherslu að sá listi sem þarna er lagður fram af þeim er ekki tæmandi, enda ekki ætlast til þess af flm. Ég nefni nokkur atriði sem ég held að við eigum að hugleiða til viðbótar þeim sem þegar liggja fyrir hv. Alþingi í formi frv. og ég nefni þau ekki í neinni mikilvægisröð.
Ég tel t.d. að það sé nauðsynlegt að auka margvíslega skólaráðgjöf í skólum landsins. Þar er ég bæði að tala um kennslufræðilega ráðgjöf, náms- og starfsráðgjöf og einnig persónulega ráðgjöf til nemenda vegna tilfinningalegra, félagslegra erfiðleika eða annarra erfiðleika.
Ég tel einnig nauðsynlegt að leggja á það áherslu að verk- og listnám verði eflt í eldri bekkjum grunnskólans og að listnám verði gildur þáttur í öllu starfi grunnskólans. Það er dálítið skrýtið að koma inn í menntmrn. og kynnast því hvernig menn hafa unnið þannig, og við vinnum þannig oft hér, að þessi mál, menntun og menning, eru eins og í tveimur hólfum þar sem þetta er þó þannig að góð menntun í
grunnskóla, m.a. gilt og öflugt listnám, er veigamikill undirbúningur þess að börnin verði tilbúin að taka á móti þróuðu menningarsamfélagi. Ég held þess vegna að við eigum að leggja ríka áherslu á að listnámi af ýmsu tagi, sem nú er í alls konar sérskólum, verði í vaxandi mæli komið inn í grunnskólakerfið sjálft. Hér er ég t.d. að tala um tónlistina og myndlistina.
Ég tel einnig að við umræður um þessi mál í sambandi við breytingar á grunnskólalögunum sé eðlilegt að hafa í huga að við styrkjum verulega þá hugsun sem liggja á til grundvallar skólaþróunar- og tilraunastarfs. Við erum nú í fyrsta sinn með framlög til Þróunarsjóðs grunnskóla í fjárlagafrv. fyrir árið 1989, eins og það liggur fyrir, og það er mjög mikilvægt að setja það þróunarstarf af stað sem átti að hefjast strax samkvæmt grunnskólalögunum 1974 en hefur ekki verið kostur á að gera. Nátengt þessu er að mínu mati það að Kennaraháskóli Íslands, Rannsóknastofnun uppeldismála, geti verið gildur þáttur í skólaþróun í landinu, ekki aðeins í Kennaraháskólanum sjálfum eða við hann heldur t.d. með virkum tengslum við fræðsluumdæmin í landinu. Í því sambandi vil ég benda á það nám fyrir sérkennslu kennara sem sett var af stað á Hallormsstað fyrir einu eða tveimur árum og hefur gefist mjög vel og ætlunin er að halda áfram í Norðurl. e. og Norðurl. v. á næsta ári. Ég hygg að það ætti að vera unnt að koma kennaramenntun af stað úti í umdæmunum í tengslum við Kennaraháskólann, þó að sú aðferð sem hefur verið notuð, að sópa öllum á námskeið á sumrin suður í Reykjavík sé svo sem betri en ekki, en best er auðvitað að endurmenntun kennara tengist því starfi sem þeir vinna í skólunum sjálfum úti á akrinum, úti í umdæmunum.
Þetta eru nokkur atriði sem ég vil benda á í sambandi við þessi mál sem ég satt að segja hef þörf fyrir að koma hér á framfæri og á fullan rétt á að nefna við þingheim í samhengi við þetta mál vegna þess að þau tengjast öllu grunnskólastarfinu.
Ég held reyndar að það hafi verið þannig með okkur sem höfum verið að vasast í stjórnmálum á undanförnum árum eða áratugum að menn hafi gjarnan viljað mæla árangur sinn í steinsteypu, menn hafi séð niðurstöður af stjórnmálastarfi sínu í fleiri húsum, heilsugæslustöðvum eða fleiri skólum og það er út af fyrir sig ekkert skrýtið þó að árangur manna hafi verið mældur með þessum hætti. Það er líka mjög auðvelt að mæla hann svona. Það er hægt að telja þetta og sýna í línu- og súluritum. Það er hins vegar mikið erfiðara að sýna og mæla árangur sem birtist inni í skólastofunum, í auknu skólaþróunarstarfi sem ég held þó að eigi að leggja vaxandi áherslu á. Ef ég fyrir mitt leyti ætti að velja á milli þess að hafa 50 millj. kr. til skólaþróunar eða bygginga tæki ég verulegan hluta af því til skólaþróunar. Ég held að við þurfum að temja okkur að skoða málin þannig þó að vissulega séu byggingarnar mikilvægar, ekki síst t.d. hér á þéttbýlissvæðinu þar sem vandinn er verulegur.
Vík ég nú, herra forseti, að einstökum atriðum í
frv. og þá fyrst að 1.
gr. þess. Þar er gert ráð fyrir því að um verði að ræða fræðsluskyldu fyrir öll börn og unglinga á aldrinum 6--16 ára. Þetta er mál sem um hefur verið samstaða í þinginu mjög lengi hjá fulltrúum allra flokka að ég hygg. Spurningin hefur verið um að finna peninga í verkið og í fjárlagafrv. fyrir árið 1989 er gert ráð fyrir talsverðri aukningu á framlögum til kennslu 6 ára barna frá því sem verið hefur og ætlunin er að stíga verulegt skref í þeim efnum. Ég tel að það sé enginn ágreiningur uppi um þetta efni á hv. Alþingi en hins vegar er ljóst, svo að ég veki athygli á því, að ef þetta yrði gert yrði að breyta nokkrum fleiri greinum grunnskólalaganna, en það er tæknilegt atriði sem óþarfi er að fara ítarlega í.
Í annan stað leggja hv. þingmenn til að settar verði reglur um hámarksstærð skóla. Ég styð litla skóla út af fyrir sig þó að ég viti ekki hvort það eru nein endanleg vísindi á bak við töluna 400, það getur sjálfsagt verið eitthvert ágreiningsefni uppi í þeim efnum. Við hljótum þó að spyrja okkur hver verður hlutur menntmrn. í þessu efni eftir að grunnskólinn og byggingar hans hefðu verið flutt alfarið yfir á sveitarfélög, eins og hafa verið uppi hugmyndir um.
Ég tel að þær hugmyndir sem eru í 3. gr. frv. í sambandi við aðstöðu til að neyta málsverðar, njóta hvíldar o.s.frv., séu ágætar hugmyndir sem auðvitað kosta nokkra fjármuni. Ég vil vekja athygli á því að þrátt fyrir þær breytingar á grunnskólalögunum sem menn hafa verið að ræða um hefur verið gengið út frá því að auk launa kennara kosti ríkið bókasöfnin og ráðgjafar- og sálfræðiþjónustuna við fræðsluumdæmin. Ég vildi skjóta því hér rétt inn í.
Í 4. gr. er einnig vikið að verkefni sem skv. umræðunum um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga hefur verið gert ráð fyrir, því auðvitað er það Alþingi sem ræður, að fari alveg yfir á sveitarfélögin.
Í 5. gr. er gert ráð fyrir því m.a. að nokkuð nákvæmlega verði tiltekið hversu mikið má lengja eða stytta kennslutíma nemenda eða um allt að 40 mínútur frá framangreindum ákvæðum, sbr. 4. mgr. Ég tel út af fyrir sig að viðmiðunarákvæðin séu skynsamleg. Auðvitað er álitamál hvað á að skrifa niður nákvæmlega í lögum. Ég hef satt að segja minni og minni trú á slíkum forskriftum. Fyrir þeim eru auðvitað viss rök, en mér finnst það nokkuð lítið svigrúm, svo að ég finni hér að minni háttar atriði, ekki stórvægilegu, að ætla aðeins sveigju upp á 40 mínútur á viku til eða frá. Í 5. og 6. mgr. er talað um að samfelld kennslustund megi ekki vera lengri en 80 mínútur og að jafnaði eigi skemmri en 20 mínútur og stundahlé skuli að jafnaði vera 15 mínútur á móti hverjum 100 mínútum sem kenndar eru. Slík atriði finnst mér að eigi að vera á valdi skólans. Mér finnst að ekki eigi að skrifa þetta eins nákvæmlega upp og gert er í 5. og 6. mgr., þ.e. varðandi frímínútur, lengd þeirra o.s.frv. Við eigum ekki að vera að setja svona í lög. Það getur vel verið að setja eigi einhverja heimild í lög um að hægt sé að setja niður ákvæði af þessu tagi tímabundið með reglugerð en mér finnst að
þetta eigi ekki að vera svo nákvæmt í lögum.
Ég vík næst að 6. gr. þar sem gert er ráð fyrir verulegri fækkun í bekkjum. Það er örugglega allt rétt sem hv. flm. segir um það mál en mín skoðun er að fyrst eigi að einsetja skólann og síðan að fækka í bekkjunum.
Varðandi 9. gr. um skólasöfnin, þá er ég henni mjög sammála, eins og reyndar kom hér rækilega fram þegar við ræddum þetta mál á síðasta þingi.
Varðandi málið að öðru leyti er ljóst að hér er hreyft mörgum góðum málum. Það er margt í grunnskólalögunum sem þarf að laga eins og við er að búast þó að þau séu í grundvallaratriðum góð. Ég tel enga ástæðu til þess að fara að setja í gang einhverja heildarendurskoðun á grunnskólalögunum. Það þurfi bara að líta þar á einstaka þætti í ljósi reynslunnar. En allt kostar þetta fjármuni og það er kannski það sem gerir okkur erfiðast fyrir og þetta frv., ef að lögum yrði, mundi kosta okkur verulega fjármuni. Ég held þess vegna að skynsamlegt væri að við reyndum að finna leið til þess að ná sem víðtækastri samstöðu um þróun og mótun íslenskrar skólastefnu þar sem við röðum verkefnunum í forgangsröð. Að við áttum okkur á því hvað það er sem við viljum byrja á og hvað svo o.s.frv. af því að við vitum og hljótum öll að geta viðurkennt það að við getum ekki gert allt í einu. Þess vegna er skynsamlegt að raða málum niður í einhverja forgangsröð og reyna þannig að mynda sem víðtækasta samstöðu um þá niðurstöðu sem verður.
Það er beinlínis hættulegt að hafa ekki íslenska skólastefnu. Það er beinlínis hættulegt að mynda ekki slíka samstöðu um forgangsröðun. Það gefur færi á geðþóttaákvörðunum og tilviljanakenndum ákvörðunum sem geta komið okkur í koll. Þess vegna þurfum við, ekki bara þingsins vegna heldur líka barnanna og þjóðarinnar vegna, að reyna að mynda sem víðtækasta samstöðu um forgangsröð varðandi verkefni í skólamálum. Ef við höfum eitthvað aflögu til að bæta við þurfum við að raða því niður hvernig við viljum ganga í verkin. En gott er að átta sig á því hvað við viljum gera og síðan þurfum við að sameinast um að reyna að raða því niður.
Með íslenskri skólastefnu er ég ekki að tala um forskrift fyrir skólann í
einstökum atriðum. Ég er að tala um almennar þróunarlínur fyrir skólann. Ég vil ekki sjá forskrift ofan frá fyrir skólann í einstökum atriðum. Ég held að það þurfi þvert á móti að draga úr þeirri tilhneigingu sem hefur verið til miðstýringar í skólakerfinu, tilhneigingu sem stafar ekki af neinu öðru en því að aðstæðurnar hafa að mörgu leyti kallað á þetta kerfi. Við höfum þurft að byggja upp okkar skólakerfi tiltölulega mjög hratt og það hefur verið nauðsynlegt að viðhafa stýringu á því með þeim hætti sem verið hefur. Í rauninni er því ekki hægt að finna að þessari miðstýringu, en það er ástæða til að staldra við og spyrja sig: Er ekki kominn tími til að breyta? Ég held að hann sé kominn og þess vegna hef ég m.a. farið nokkuð víða í þessari ræðu minni, vikið að ýmsum
þáttum frv. og hinni almennu skólastefnu, bæði í sambandi við grunnskólann og aðra þætti skólans, um leið og ég endurtek þakkir mínar til flm. frv. fyrir þá vinnu sem þeir hafa lagt í málið og deildinni fyrir að gefa sér nú, áður og vonandi framvegis góðan tíma til að fjalla um þennan mikilvæga þátt í okkar þjóðlífi.