Eiður Guðnason:
Herra forseti. Þessi umræða hefur farið mjög um víðan völl og ber þess nokkur merki. Nú telja menn í þessari hv. deild sig hafa nógan tíma til að ræða þessi mál meðan önnur mál bíða umfjöllunar og eru svona á döfinni og það er auðvitað ágætt. Menn hafa margir haldið mjög langar ræður og komið víða við. Ég ætlaði svo sem ekki endilega að blanda mér í þessa umræðu, en vegna þess að hv. 2. þm. Norðurl. e., sem gengur nú í salinn, mun hafa gert það að umtalsefni í sinni ræðu að menntmn. þingsins ættu að kynna sér námsefni í íslensku í grunnskólum, að mér skilst, er rétt að það komi fram að þessi hv. þm. talar ekki fyrir hönd menntmn. þessarar deildar. Hann var þar að vísu formaður, hann er það ekki lengur. Þetta mál hefur ekkert verið rætt í menntmn. þessarar hv. deildar. Hins vegar er auðvitað sjálfsagt að nefndin taki þetta til umfjöllunar þó að ég verði að játa að ég hef vissar efasemdir um það að þingnefndir eigi beinlínis að setja sig í dómarasæti yfir námsefni í grunnskólunum. Auðvitað er það af hinu góða að menn kynni sér þessi mál, þeir sem áhuga hafa á, og ef menntmn. hefur tíma, sem hún sjálfsagt hefur einhvern tíma síðar á vetrinum, til að fjalla eitthvað um þetta er það sjálfsagt gott og að heimsækja Námsgagnastofnun og eitthvað því um líkt og eiga viðræður við skólafólk.
Hv. þm. vék að námsefni í íslensku. Það var svo fyrir nokkrum árum að það var mikið gagnrýnt að móðurmálskennslan í grunnskólanum væri málfræðistagl. Svo var því breytt. Og ég segi: Svo var því breytt, illu heilli. Nú tala menn ekki lengur um málfræðistagl í grunnskólunum, menn tala um bókmenntasnakk, og fyrir því hef ég orð eins ágætasta íslenskumanns hér að það er margfalt, margfalt erfiðara að kenna bókmenntir en að kenna málfræði. Það er ekkert endilega hverjum manni ætlandi að skila því vel að kenna bókmenntir og koma því til skila. Hins vegar hygg ég að staðan sé sú núna að eftir grunnskólanámið sé það miklu fremur undantekning en regla að menn kunni yfirleitt nokkuð í málfræði. Alla vega er málfræðikunnáttu mjög ábótavant. Síðan kemur þetta ágæta fólk í framhaldsskólana, lærir erlend tungumál í vaxandi mæli þar sem koma fyrir málfræðihugtök og málfræðilærdómur sem það hefur aldrei kynnst á sínu eigin móðurmáli. Þetta er vandamál. Það er auðvitað líka vandamál sem hefur verið vikið að, skorturinn á námsefni og námsgögnum, og mér finnst það dálítið merkilegt umhugsunarefni að þegar sumir af okkar nemendum koma í framhaldsskóla og fara þar t.d. að læra frönsku fá þeir kennslubækur á dönsku. Gallinn er bara sá að dönskukennslan í grunnskólanum og framhaldsskólanum skilar sér ekki. Þegar þetta aumingja unga fólk á að fara að læra frönsku á dönsku og kann ekki dönsku geta menn auðvitað alveg séð hvað kemur út úr því. En svona er þetta því miður.
Varðandi það sem hv. þm. Karl Steinar Guðnason sagði áðan um að námsbækurnar væru í sumum
tilvikum óbreyttar frá því sem var fyrir 20 árum, þá held ég að í sumum tilvikum sé það kannski alls ekki slæmt. Hver man ekki eftir tilraunininni með nýju stærðfræðina sem í raun hefur þýtt það að heilu árgangarnir af nemendum kunna sáralítið í reikningi og geta ekki reiknað í huganum? Nýja stærðfræðin, eða mengjafræðin, er einhver alvarlegustu og örlagaríkustu mistök sem hafa verið gerð í íslenska skólakerfinu. Það var allt saman meira og minna út í hött og þess vegna var það skref fram á við þegar aftur voru teknar upp kennslubækur í reikningi eftir Elías Bjarnason þó þær væru 25 eða 30 ára gamlar. (Gripið fram í.) Já, já, ég tek undir það að ekki gildir það sama um allar námsgreinar. Ég held t.d., svo að við tölum um kennslubækur af sérstakri gerð, forskriftarbækur, að það væri betur fyrir skrift margra að bækur frá eldri tíma hefðu verið notaðar frekar en --- (Gripið fram í.) Já, ég tek undir það, hv. þm. --- að kenna þá hryllilegu skrift sem maður sér að grunnskólinn skilar hjá nemendum sínum. Ég veit dæmi þess í einum skóla að þar var kennarinn búinn að skrifa í nokkrar vikur eða í þó nokkurn tíma með skrifstöfum á töfluna og þá kom bara í ljós að nemendurnir höfðu ekki getað lesið þetta. Þeir bara kunnu ekki að lesa svona skrift. Þeir höfðu aldrei lært hana.
Það má alveg taka undir það, bæði með hæstv. ráðherra sem hér talaði og eins með hv. þm. Halldóri Blöndal, að það gamla er ekki endilega slæmt í skólamálum, alls ekki. Og ég hygg að menn hafi verið of nýjungagjarnir í þeim efnum hér og of ginnkeyptir fyrir ýmsu sem kemur erlendis frá vegna þess að ástandið er ekki alls staðar til fyrirmyndar þar í grunnskólum, t.d. á Norðurlöndunum, enn þá síður ef við förum lengra og förum vestur um haf. Ég hygg að okkar grunnskólar séu nánast eins og himnaríki miðað við marga grunnskóla þar, þar sem er vaðandi eiturlyfjanotkun og glæpastarfsemi af öllu tagi, og þetta þekkjum við. Það er því ekki allt gott sem að utan kemur og við eigum að forðast það að horfa stöðugt með glampa í augunum til annarra landa um þetta. Við eigum að horfa á það gagnrýnum augum og taka upp það sem getur komið okkur til góða, en við eigum ekki að vera of ginnkeypt fyrir nýjungum þó að ég taki ekki undir með ágætum manni sem einu sinni sagði: Við eigum að gæta okkur á nýjungum, þær gefast misjafnlega og sumar geta verið til mikillar
bölvunar. Það er kannski fulllangt gengið en við eigum að vera gagnrýnin á þetta.
Um þetta frv., að lokum. Þetta er svona óskalagafrumvarp. Það er ekki mikið raunsæi í þessu þó að við getum auðvitað verið sammála um hin góðu markmið og hinn góða vilja sem ég efast ekki um að er á bak við þetta mál sem er vel unnið og margir hafa áreiðanlega lagt mjög mikla vinnu í. Það er hins vegar ekki góður siður að setja fram mál sem hafa gífurlegan kostnað í för með sér eins og er alveg deginum ljósara að þetta mál hefur og er kannski fyrst og fremst þéttbýlismál. Ég finn ekki, ég skal að vísu
viðurkenna að ég hef ekki lesið þetta alveg frá orði til orðs, að gerðar séu tillögur um hvernig á með raunhæfum hætti að koma þessu í framkvæmd, hvernig á með raunhæfum hætti að fjármagna þetta. Þess vegna er þetta óskalagafrumvarp og það er mjög auðvelt að skrifa slík mál. Það er mjög auðvelt að flytja slík mál og það er kannski vel til vinsælda fallið hjá ýmsum að flytja slík mál. Það eru hins vegar ekki mjög raunsæ vinnubrögð. Menn verða að horfast í augu við veruleikann og það hverju er unnt að áorka. Hitt er og verður óskalagafrumvarpaflutningur eins og þetta mál er þó ég efist ekki um hinn góða hug sem þarna liggur að baki. Við getum verið sammála um að æskilegt er að breyta ýmsu af þessu, ég segi ekki öllu, en þetta eru ekki vinnubrögð sem eru líkleg til að leiða til mikils árangurs, því miður.