Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Þriðjudaginn 06. desember 1988

     Birgir Ísl. Gunnarsson:
    Herra forseti. Þetta frv. sem hér er til umræðu, þ.e. frv. til l. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði á þskj. 142 er annað frumvarpið af boðuðum skattafrumvörpum ríkisstjórnarinnar sem hér kemur til umræðu. Í fjölmiðlum er nú reyndar talað um tekjuöflunarfrumvörp. Menn nota óskaplega fínt orð yfir þetta. Sennilega telur hæstv. fjmrh. það þægilegra fyrir sig og fjölmiðlar nota þetta orð, tekjuöflunarfrumvörp. Til skamms tíma hafa frumvörp af þessu tagi verið kölluð skattafrumvörp. Auk þess sem það orð er miklu fallegra, fer betur í munni, segir það í rauninni miklu betur hvað hér er um að ræða. Hér er um að ræða álagningu nýrra skatta eða hækkun á eldri sköttum og því tel ég það miður að menn skuli vera að breyta málvenju og málnotkun bæði hér í þinginu og í fjölmiðlum, að hætta að tala um skattafrumvörp, eins og menn hafa gert áratugum saman, og fara að tala um tekjuöflunarfrumvörp í staðinn sem er miklu óþjálla og verra orð.
    Umræðan um bæði þessi frumvörp, þ.e. frestun virðisaukaskattsins og svo nú tvöföldun á skatti á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, hefur snúist nokkuð almennt um skattastefnu ríkisstjórnarinnar. Það er eðlilegt. Það eru boðaðar mjög miklar breytingar af hálfu núv. ríkisstjórnar í skattlagningu auk þess sem ljóst er að það gengur illa hjá hæstv. ríkisstjórn að ná saman heildstæðri stefnu um þetta mál og þess vegna er eðlilegt að umræðan snúist nokkuð almennt um skattastefnu hæstv. ríkisstjórnar. Þá hafa almenn efnahagsmál nokkuð komið inn í þessa umræðu. T.d. víkkaði hv. 10. þm. Reykv. Guðmundur G. Þórarinsson umræðuna allnokkuð út þegar hann tók til máls hér á síðasta fundi. Hann færði hana út á almennt svið efnahagsmála og tel ég nauðsynlegt að gera það sem hann sagði nokkuð að umtalsefni hér í minni ræðu og mun koma nánar að því hér á eftir.
    En hvers er raunverulega að vænta í skattamálum hjá núv. hæstv. ríkisstjórn? Hæstv. fjmrh. hefur verið inntur eftir því í þessum umræðum að hann geri heildstæða grein fyrir því hver sé skattastefna ríkisstjórnarinnar, hver muni verða þau frumvörp sem hér verði fram borin, en það hefur orðið fátt um svör í þessari umræðu. Fjárlagafrv. sjálft gefur auðvitað vísbendingu, en í greinargerð með frv. á bls. 210 er nokkur kafli um hvers muni að vænta í skattheimtu ríkissjóðs. Þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Gert er ráð fyrir breytingu á ýmsum óbeinum sköttum, svo sem vörugjaldi, bensíngjaldi og innflutningsgjaldi af bílum. Auk þess að styrkja fjárhag ríkissjóðs draga þessar aðgerðir úr innflutningi og þar með viðskiptahalla. Þá er gert ráð fyrir breytingu á eignarsköttum, annars vegar almennri hækkun eignarskattshlutfalls einstaklinga og fyrirtækja og hins vegar því að taka upp sérstakt og hærra skattþrep fyrir þá einstaklinga sem eiga skuldlausa eign yfir sérstökum háum mörkum. Er þá gert ráð fyrir að núverandi eignarskattsauki haldist óbreyttur.
    Stefnt er að ýmsum breytingum á tekjusköttum einstaklinga og fyrirtækja. Fyrirhugað er að hækka

skatthlutföll, en persónuafsláttur hækki þannig að skattbyrði lægri tekna verði ekki breytt. Þá hækki barnabætur sérstaklega. Einnig er til athugunar að taka upp sérstakt skattþrep á háar tekjur.
    Þá er gert ráð fyrir skrefi í þá átt að samræma skattlagningu tekna hvort sem þær eru laun, raunvextir, arður eða söluhagnaður. Hvað fyrirtæki varðar verða hert ákvæði þess efnis að tekjur í formi hlunninda, einkaneyslu á reikning fyrirtækis og lánafyrirgreiðslu komi til skattlagningar.
    Þá er og stefnt að frekari samræmingu í skattlagningu peningastofnana með því að veðdeildir og fjárfestingarlánasjóðir verði gerð tekjuskattsskyld með sama hætti og bankar eru nú. Áformað er að orkufyrirtæki verði skattlögð með almennum hætti.
    Á sölu happdrættismiða og hliðstæða starfsemi verði lagður 12% söluskattur eins og nú er á margvíslega þjónustu. Þessi starfsemi hefur vaxið mikið að umfangi að undanförnu og er talið að velta happdrætta nemi um 3 1 / 2 milljarði kr. á þessu ári og geti orðið um 4 milljarðar á næsta ári. Ólíklegt er talið að 12% skattur verði til að draga mikið úr sölu happdrættismiða og verði hann því að mestu borinn af þeim sem miðana kaupa. Þó kemur til álita að í stað þessa verði stærri hluta tekna af sölu happdrættismiða varið til rekstrar á þeirri starfsemi sem byggð er upp af happdrættisfé en síðan rekin fyrir opinbert fé.``
    Þessi orð í grg. með fjárlagafrv. gefa vissulega vísbendingu um skattastefnu ríkisstjórnarinnar. Hún bendir til gífurlegrar skattheimtu. Hún bendir til meiri aukningar á skattheimtu en dæmi eru til í sögu þessarar þjóðar. Þetta er m.ö.o. dæmigert einkenni vinstri stjórna, að finna aldrei nein önnur úrræði en að seilast dýpra og dýpra í vasa borgaranna, að sópa til sín auknum sköttum, og hafa fjmrh. slíkra stjórna oft sýnt ótrúlega hugkvæmni við uppfindingu nýrra skatta.
    En einhvern veginn gengur þetta þó verr en til stóð. Tíminn líður. Það eru ekki mjög margir starfsdagar Alþingis fram til jóla. Fjárlagafrv. er í fullri vinnslu og fá skattafrv. af þeim sem boðuð hafa verið hafa enn þá séð dagsins
ljós. Í gær var þó hér í deildinni útbýtt einu frv. sem kemur væntanlega til umræðu seinna í dag, þ.e. frv. um vörugjald, sem er raunar ótrúlega ósvífin árás á lífskjör almennings í landinu. Þar er t.d. gert ráð fyrir því að leggja sérstakan skatt á byggingarvörur og ýmiss konar vörur til heimilis sem þýðir stóraukinn byggingarkostnað. Þetta eru kaldar kveðjur til unga fólksins í landinu sem er að byggja yfir sig eða stofna heimili. Þessar jólagjafir fær unga fólkið nú með kveðju frá Alþb. Það verður lagður sérstakur byggingarskattur á unga fólkið af hálfu Alþb. á næsta ári.
    En það vantar þó mikið á að öll kurl séu komin til grafar í skattamálunum. Það bólar t.d. enn þá ekkert á frv. um skatt af íþróttastarfsemi eða starfsemi öryrkjasamtakanna sem fjmrh. af alkunnri smekkvísi kallar skatt á þá sem haldnir eru spilafíkn, eins og hann orðaði það í umræðunni í síðustu viku.
    Hæstv. fjmrh. kemst auðvitað ekkert hjá því öllu

lengur að gefa Alþingi heildarmynd af skattastefnu þessarar ríkisstjórnar. Sú mynd sem dregin er upp í greinargerð fjárlagafrv. er mjög ófullkomin. Það spyrst út úr herbúðum stjórnarliða að það sé bullandi ágreiningur innan ríkisstjórnarflokkanna um marga af þeim sköttum sem hæstv. fjmrh. hefur boðað, eins og skattinn á íþróttastarfsemina. Þess vegna kemst hæstv. fjmrh. ekkert hjá því öllu lengur að gefa Alþingi heildarmynd af skattastefnu hæstv. ríkisstjórnar. Alþingi verður að fá að vita fyrr en síðar hvar þetta skattlagningaræði ríkisstjórnarinnar á að enda.
    Nú stefnir í 2. umr. um fjárlagafrv. hæstv. ríkisstjórnar. Reyndar átti hún að fara fram í þessari viku samkvæmt starfsskrá sem útbýtt var og vafalaust hefur verið unnin í samráði við hæstv. ríkisstjórn. Það er þó ljóst að það virðist ekki ætla að verða að 2. umr. fari fram. En mér finnst rétt að taka það fram þannig að það sé alveg ljóst fyrir hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstjórn að Sjálfstfl. mun ekki sætta sig við að 2. umr. um fjárlagafrv. fari fram fyrr en öll skattafrv. ríkisstjórnarinnar eru komin fram. Sjálfstfl. telur útilokað að afgreiða fjárlagafrv. fyrr en skattafrv. hafa hlotið afgreiðslu. Hin óvenjulega staða í Alþingi nú kallar á slík vinnubrögð. Það er óverjandi að afgreiða fjárlög án þess að það sé ljóst hver skattafrv. hæstv. ríkisstjórnar ná samþykki þingsins og hver ekki. Ég bið hæstv. fjmrh. að hafa þetta í huga mjög sterklega þegar hann skipuleggur vinnubrögð við afgreiðslu fjárlaga á næstu dögum.
    Umræður um þetta frv. einkennast nokkuð af því að þetta sé fyrst og fremst skattur á verslunina í landinu. Það hefur verið réttilega bent á að þetta komi sérstaklega illa við dreifbýlisverslunina í landinu sem á nú mjög undir högg að sækja eins og oft hefur verið bent á. Það er eðlilegt að menn beini huganum í umræðunum fyrst og fremst að versluninni í þessu sambandi því að það er ljóst að verslunin kemur til með að bera mjög stóran hlut af þessum skatti, en við skulum þó hafa í huga einnig að þetta er skattur á almennan atvinnurekstur í landinu. Í 3. gr. frv. segir: ,,Stofn til sérstaks eignarskatts skal vera fasteignamatsverð í árslok 1988 á fasteign sem nýtt er við verslunarrekstur eða til skrifstofuhalds ásamt tilheyrandi lóð`` o.s.frv. Öll fyrirtæki landsins greiða m.ö.o. þennan skatt því öll fyrirtæki, hvort sem það er fiskvinnsla, hvort sem það er iðnaður, hvort sem það er útflutningsiðnaður eða verkfræðistofa, hafa skrifstofuhald og þau munu greiða þennan skatt af þeim hluta síns húsnæðis sem telst til skrifstofurekstursins. Þannig erum við ekki eingöngu að tala um skatta á verslunina í landinu. Við erum að tala um aukna skattheimtu á allan þann atvinnurekstur sem menn eyða nú klukkutímum saman í hv. Alþingi í að ræða um og draga upp dökka mynd af þeim erfiðleikum sem þessi atvinnurekstur á við að stríða.
    Hæstv. viðskipta- og iðnaðarráðherra gerði lítið úr þessari skattheimtu í umræðunni í síðustu viku og sagði að þetta væri nú aðeins 1/4--1/2% af veltu fyrirtækja samkvæmt reynslu. En auðvitað munar um það. Sum fyrirtæki borga ekkert hærra aðstöðugjald en

þetta, en sem nemur 1/4--1/2% af sinni veltu, og kvarta þó. Meginatriðið er að þetta er skattur sem lagður er á óháð afkomu fyrirtækja. Þess vegna er þetta ósanngjarn og óeðlilegur skattur, ekki síst þegar hann er hækkaður nú um helming eins og verið er að gera tillögu um með þessu frv.
    En þrátt fyrir að þingmenn, jafnt stjórnarþingmenn sem aðrir, tali mikið um erfiðleika í atvinnurekstrinum er þetta ekki eini skatturinn sem boðaður er á atvinnureksturinn í landinu samkvæmt fjárlagafrv. sem ég las upp úr áðan eða greinargerðinni. Það er boðaður aukinn eignarskattur á fyrirtækin. Það er boðaður aukinn tekjuskattur á fyrirtæki og við höfum nú fengið frv. um hækkun vörugjalds sem kemur auðvitað mjög við atvinnureksturinn í landinu einnig.
    Því er haldið fram að þessi skattur sé m.a. á lagður til að koma í veg fyrir offjárfestingu í þjóðfélaginu. Þau rök eru léttvæg og duga ekki í þessu sambandi. Nú á sér stað mikil niðursveifla í fjárfestingu. Fjárfesting dregst mjög ört saman og mun dragast saman hvort sem þessi skattur verður hækkaður eða ekki. Það skiptir engu máli í því sambandi. Það er hið almenna efnahagsástand í landinu sem ræður mestu um fjárfestingu og álagning þessa
skatts mun engu máli skipta í því sambandi.
    Hv. 10. þm. Reykv. Guðmundur G. Þórarinsson flutti hér afar sérkennilega ræðu þegar þetta mál var til umræðu á miðvikudaginn var. Hann réðist þar mjög harkalega á 1. þm. Suðurl., fyrrv. forsrh., hv. þm. Þorstein Pálsson. Taldi að hann hefði komið efnahagsmálum í það horf sem raun ber vitni, svo ég lesi það sem ég skrifaði eftir hv. þm., og honum færist því ekki að gagnrýna þessa ríkisstjórn þótt hún kæmi ekki öllu í lag umsvifalaust. Mér finnst að hér hafi hv. þm. hagrætt staðreyndum. Hv. þm. Þorsteinn Pálsson var að vísu forsrh. í 14 mánuði, en áður hafði verið forsrh. í þessu landi maður að nafni Steingrímur Hermannsson sem er einnig núv. hæstv. forsrh. Hann hafði verið forsrh. í fjögur ár og stjórnað efnahagsmálum, svo ég noti nú orðalag hv. 10. þm. Reykv. um hlutverk forsrh. við stjórn efnahagsmála. Hann taldi að hv. þm. Þorsteinn Pálsson hefði stjórnað efnahagsmálum í 14 mánuði. Hæstv. forsrh. Steingrímur Hermannsson stjórnaði þeim í fjögur ár. Og hvað gerðist þá? Góðærið sem hv. 10. þm. Reykv. sagði að hefði verið í tíð hæstv. forsrh. Þorsteins Pálssonar var í tíð Steingríms Hermannssonar, á því fjögurra ára tímabili. Þá var hámarksverð á okkar afurðum. Þá var afli í hámarki. Gengi dollarans hækkaði mjög mikið og olíuverð var í lágmarki þannig að hér ríkti mikið góðæri, það streymdi mikið fjármagn inn í þjóðfélagið í gegnum okkar útflutningsatvinnuvegi. En þessu fjármagni var dreift jafnóðum út í þjóðfélagið. Það kom fram í auknum kaupmætti almennings, það kom fram í mjög aukinni einkaneyslu, það kom fram í auknum útgjöldum ríkis og sveitarfélaga og það kom fram í gegndarlausri fjárfestingu fyrirtækja sem oft var af miklu fyrirhyggjuleysi, verðum við að viðurkenna. En efst á þessu öllu saman trónaði efnahagsmálaráðherrann,

hæstv. þáv. forsrh. Steingrímur Hermannsson.
    Um það leyti sem ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar tók við var þetta að breytast. Þá fóru hjólin að snúast á annan veg. Þá var góðærið á enda. Verð á okkar afurðum lækkaði, aflinn minnkaði, dollarinn féll. Þetta var auðvitað sá vandi sem menn áttu við að stríða í þeirri ríkisstjórn. Og það verður að segjast eins og er að sú ríkisstjórn var ekki nægilega samstiga í að leysa þann vanda sem við blasti. Auðvitað var ekki ríkisstjórninni einni þar um að kenna. Við skynjuðum mjög vel að þjóðfélagið sjálft, einstaklingarnir, borgararnir áttuðu sig ekki á því hver þróunin var að verða þannig að það var ekki nægilegur skilningur ríkjandi úti í þjóðfélaginu fyrir því að það þyrfti að grípa til róttækra og öflugra efnahagsaðgerða.
    En hæstv. núv. forsrh. lék ekkert fallegan leik í því dæmi öllu saman þegar var verið að ræða efnahagsmál innan þeirrar ríkisstjórnar. Hann lék tvöfaldan leik. Hann lék annan leik innan ríkisstjórnarinnar og hinn úti í þjóðfélaginu þar sem hann lék það að hann væri alltaf á móti því sem ríkisstjórnin væri að gera og ól þar með á óánægju með þær aðgerðir sem ríkisstjórnin þó greip til. Hann segist að vísu nú hafa setið í fílabeinsturni í utanrrn. og ekki alveg áttað sig á hver þróunin var. En hvar var hann þessi fjögur ár þegar góðærið ríkti hér og fjárstreymið var sem mest inn í okkar þjóðfélag og með þeirri spennu og þeim afleiðingum sem við höfum séð að urðu af góðærinu? Spurningum af þessu tagi verður Framsfl. auðvitað að svara. Hv. þm. Framsfl. verða að svara spurningum af þessu tagi. Hvar var Framsfl., hvar var Steingrímur Hermannsson, hæstv. forsrh., fjögur árin á undan? Þeir verða að svara spurningum af þessu tagi áður en þeir flytja ræður eins og þá sem hv. 10. þm. Reykv. flutti í síðustu viku.
    Mér finnst líka að þingmenn Framsfl. mættu mjög gjarnan spyrja hæstv. sjútvrh. Halldór Ásgrímsson að því: Hvar voru hans tillögur til þess að leysa vandamál sjávarútvegsins í síðustu ríkisstjórn? Aldrei heyrði ég eina einustu tillögu af hans munni, hvorki innan ríkisstjórnar né utan, um hvernig ætti að leysa vandamál sjávarútvegsins. Þannig verða framsóknarmenn vissulega að líta í eigin barm og svara sjálfum sér spurningum af þessu tagi áður en þeir flytja ræður eins og þá sem hv. 10. þm. Reykv. flutti í síðustu viku.
    Hv. 10. þm. Reykv. var mjög gagnrýninn á síðustu ríkisstjórn. Reyndar var hann talinn í hópi þeirra í þingflokki framsóknarmanna sem voru í eins konar stjórnarandstöðu í síðustu ríkisstjórn. En það væri fróðlegt að heyra hvað hv. þm. segir nú. Hann sagði á miðvikudaginn var að hann byndi í lengstu lög vonir við að þessi ríkisstjórn mundi leggja fram tillögur til lausnar okkar vanda í efnahags- og atvinnumálum. En hvar eru þessar tillögur? Hvar eru þessi úrræði? Hvar eru tillögurnar? Hvar eru bjargráðin sem lýst var eftir? Þær er hvergi að finna. Það fór fram hér í gær löng umræða um vanda sjávarútvegsins. Það örlaði hvergi á einni einustu tillögu um hvað gera ætti, til hvers ætti að grípa í

þeirri erfiðu aðstöðu sem við erum nú í.
    Við munum eftir yfirlýsingum þegar verið var að mynda þessa hæstv. ríkisstjórn eða reyndar slíta fyrri ríkisstjórn og mynda þessa. Þá var hún mynduð vegna þess að það lá svo mikið á. Það þurfti að grípa til úrræða til að bjarga atvinnulífinu, til að bjarga efnahagsmálunum sem allra fyrst. Það varð að gerast helst innan viku, innan nokkurra daga. Nú eru liðnir bráðum þrír mánuðir og ekkert hefur örlað á neinum tillögum, allt er látið reka á reiðanum
og með þeim alvarlegu afleiðingum sem við blasa hvarvetna úti í okkar þjóðfélagi.
    Herra forseti. Það frv. sem hér er til umræðu, þ.e. frv. um tvöföldun á skattlagningu á skrifstofu- og verslunarhúsnæði, er eins og ég gat um áðan eitt tiltölulega lítið frv. af mörgum frumvörpum sem hæstv. fjmrh. boðar til þess að hækka skatta á landsmönnum. Ég ítreka þá skoðun okkar sjálfstæðismanna að við viljum fá fram heildarmynd af skattlagningu þessarar ríkisstjórnar. Við viljum fá á borðið öll skattlagningarfrumvörp ríkisstjórnarinnar áður en hægt er að ganga til 2. umr. um fjárlög og það er okkar eindregin krafa að öll skattlagningarfrumvörpin verði afgreidd í hv. Alþingi áður en fjárlagafrv. verður afgreitt.