Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu mikið, enda er hún búin að standa alllengi og sennilega búið að segja allt sem þarf að segja í henni.
En það frv. sem hér er til umræðu á þskj. 142 um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði er að mínu mati hið versta mál fyrir margra hluta sakir. Hér er á ferðinni dæmigert mál þess eðlis að auka á mismunun milli atvinnugreina þar sem þessi ákveðna skattlagning er sett á eina stétt eingöngu. Á meðan aðrar atvinnugreinar njóta skattfríðinda á borð við undanþágur frá söluskatti á aðföngum, þurfa ekki að greiða launaskatt o.s.frv. þá er lagt til að álögur á verslun verði auknar. Það er furðulegt að slíkt skuli ekki höfða til samvisku stjórnarherranna, þó alveg sérstaklega þeirra sem kenna sig við jafnaðarmennsku. Ég á bágt með að finna nokkra jafnaðarmennsku í slíkri skattlagningu. Ég furða mig hins vegar ekkert á því að fulltrúar Alþb. gleðjist yfir þessum skatti, enda hafa þeir sýnt í verki að þeir vilja með öllu móti hækka vöruverð í landinu samhliða afnámi samningsréttar og samhliða aukinni skattheimtu. Þannig, að þeirra mati, bæta þeir lífskjör láglaunafólksins í landinu.
Allt er þetta undir stjórn hæstv. forsrh. Steingríms Hermannssonar, formanns Framsfl., sem aldrei ber ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut --- með undantekningum þó. Ef eitthvað er álitið hafa verið til góðs, þá átti Framsfl. flokka helst þátt í því ákveðna máli.
Auðvitað birtist nú svart á hvítu einn anginn af byggðastefnu ríkisstjórnarinnar, sá anginn að færa þá litlu verslun sem eftir er á landsbyggðinni til höfuðborgarinnar. Öllum ætti að vera ljóst að dreifbýlisverslun á verulega undir högg að sækja þessa dagana og þolir engan veginn auknar álögur. Það má spyrja hvort þessi skattlagning sé í samræmi við málefnasamning ríkisstjórnarinnar þar sem segir m.a. í þessum græna bæklingi, spurning hvort litarvalið sé tilviljun, undir kaflaheitinu Efnahagsmál, með leyfi forseta: ,,Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum miðast við það að treysta atvinnuöryggi í landinu og hemja samtímis verðbólgu.`` Nú er spurningin hvort þessi stóraukna skattlagning sé til þess að auka atvinnuöryggið í landinu.
Næsti liður í þessum kafla í málefnasamningnum er að bæta lífskjör hinna tekjulægstu. Þá má spyrja: Batna lífskjör hinna tekjulægstu við minnkandi kaupmátt, við hækkandi vöruverð?
Í kaflanum um byggðamál í sama græna bæklingi segir, með leyfi forseta: ,,Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir jafnvægi í byggðaþróun, m.a. með eftirfarandi aðgerðum:`` Nú er spurningin: Stuðlar þetta að jafnvægi í byggðaþróun, sú árás sem hér er gerð að verslun?
Það segir: ,,Unnið verður að því að bæta aðstöðu verslunarfyrirtækja í dreifbýli.`` Hvernig samræmist þetta þessu annars ágæta stefnumiði ríkisstjórnarinnar?
Enn fremur segir: ,,Sérstakt átak verði gert til að auka fjölbreytni í atvinnu kvenna á landsbyggðinni.``
Það kom fram í máli einhvers hv. þm. hér fyrr í dag að kvenfólk stundar mikið vinnu við verslun. Skyldi þetta vera til að auka fjölbreytni starfa þeirra þegar þær fara að missa vinnuna ein af annarri?
Það má einnig spyrja hvort þetta sé stefnumarkandi fyrir það sem koma skal. Verður það stefnan að hækka skatta um 100%? Finnst mönnunum þetta ekkert mál? Hæstv. fjmrh. verður að svara því t.d. hverju þessi stóraukna skattlagning á verslunina veldur. --- Hæstv. forseti. Er eyrað á hæstv. ráðherra einhvers staðar nálægt hátalara? ( FrS: Já, já. En það er bara í hátalaranum í símanum.) Já, já. Er hægt að setja okkur í samband við símann?
Hæstv. ráðherra. Ég var að spyrja að því hverju þessi stóraukna skattlagning mundi valda versluninni. Hvernig kemur þetta heim og saman víð verðstöðvunina? Hvaða áhrif hefur þetta á dreifbýlisverslunina? Mun þetta verða til að styrkja verslunina í Glasgow? Er það stefna ríkisstjórnarinnar? Er þetta stuðningurinn við Arnarflug? Eigum við að stuðla að aukinni verslun í Hamborg og Amsterdam? Eru þetta úrræðin?
Ríkisstjórn mannréttindabrota er söm við sig. Einn ráðherrann boðar viðskiptaþvinganir á landbúnaðarafurðir, annar svíkur neytendur með stórfelldri skattheimtu í formi nýs vörugjalds o.s.frv. Forsrh. talar um slippaokur varðandi kreditkort en gleymir því að sjálfur er hann efnahagsráðherra í ríkisstjórn sem stundar mesta skattaokur Íslandssögunnar.
Steingrímur Hermannsson forsrh. er Íslandsmeistari í skattaokri. Samkvæmt kenningu hans er hæstv. fjmrh. ekki ábyrgur fyrir nokkrum sköpuðum hlut, eingöngu efnahagsráðherrann Steingrímur Hermannsson.
Auðvitað á ekki að vera nokkur skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði frekar en á aðrar atvinnugreinar og það er sorglegt að nú skuli eiga að tvöfalda þessa skattlagningu þegar nánast allt eigið fé verslunar er upp urið vegna stjórn- og úrræðaleysis stjórnvalda, þegar fjármagnskostnaður er að drepa alla verslun eins og aðrar atvinnugreinar í landinu. Þessi skattlagning
er hins vegar ekkert annað en snuð upp í þá alþýðubandalagsmenn þar sem þeir verða að kyngja hverju áfallinu á fætur öðru þessa dagana. Sem dæmi má taka álmálið sem öllum er ljóst að þeir alþýðubandalagsmenn fá ekki stöðvað þó þeir hafi stundum hátt, varaflugvallargerð á vegum hernaðarbandalags sem þeir engu frekar fá stöðvað en alls kyns atkvæðagreiðslur á erlendri grund þeim til skapraunar en líka til staðfestingar á að á þeim taka meðstjórnendur þeirra á landinu ekkert mark. Já, það hlýtur að svíða stundum þessa dagana að reyna að vera sannur alþýðubandalagsmaður.
Þá verð ég að lýsa furðu minni á því ef Kvennalistinn ætlar sér að styðja þetta frv. þar sem er deginum ljósara að þessi hækkun hlýtur að fara beint út í verðlagið sem þýðir m.a. að allar helstu nauðsynjavörur heimilanna hækka, matvara, barnaföt
o.s.frv. Ætlar Kvennalistinn virkilega að styðja slíkar hækkanir? Ætlar Kvennalistinn að stuðla að því að kaupmáttur launa minnki og það skuli enn herða sultarólina hjá þeim er minna mega sín? Ég neita að trúa því og reyndar skora á þær kvennalistakonur að taka nú af allan vafa og koma í ræðustól og lýsa stefnu sinni skýrt og skorinort í þessu máli.
Hæstv. forseti. Það er búið að ræða þetta mál allítarlega og ég sé því ekki ástæðu til að hafa þessi orð mín öllu fleiri. Ég vil þó í lokin harma þá mannvonsku sem fram kemur í þessu frv. og reyndar fleiri frumvörpum sem lögð hafa verið fram í þinginu. Ég get aðeins vonað að menn fari að átta sig áður en það er um seinan. Það er löngu búið að tæma vasa almennings í þessu landi. Það er óþarfi að gera gat á þá líka.