Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Þriðjudaginn 06. desember 1988

     Þorsteinn Pálsson:
    Herra forseti. Hæstv. fjmrh. hagræðir nú mjög í málflutningi sínum varðandi þá umfjöllun sem hér hefur farið fram um það sem kallað hefur verið viðræður fjmrh. við stjórnarandstöðuflokkana.
    Það verður auðvitað að gera mjög skýran greinarmun á samningaviðræðum og almennum kynningarfundum. Það er alveg tvennt ólíkt. Það er almenn venja þegar um meiri háttar skattafrv. er að ræða að fjmrh. kynna það fyrir þingflokkum, bæði ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu, og yfirleitt er það gert með meiri fyrirvara en nú. Það eru engin nýmæli sem felast í því að hæstv. fjmrh. hefur kynnt efni nokkurra frumvarpa. Það hefur ranglega verið gefið til kynna að í þessu felist eitthvert nýmæli og eitthvað alveg sérstakt af hálfu ráðherra. Kynningarfundur er eitt en samningaviðræður eru annað. Engar slíkar viðræður hafa farið fram, engar samningaviðræður.
    Það er hins vegar auðvitað laukrétt, sem hæstv. fjmrh. hefur bent á, að nokkrir þingmenn Sjálfstfl. hafa mætt til þess að koma á kynningarfundi um efni nokkurra frv. Ég sé ekki ástæðu út af fyrir sig til þess að gera mikið úr því og gagnrýni ekki hæstv. ráðherra fyrir það nema síður sé. Ég segi hins vegar að þessar kynningarviðræður hefði mátt hefja fyrr. Samningaviðræður hafa ekki farið fram. Og það er auðvitað alveg út í bláinn fyrir hæstv. fjmrh. að kalla á fulltrúa stjórnarandstöðuflokka og segja: Við erum tilbúnir til viðræðna, eruð þið tilbúnir til viðræðna, áður en ríkisstjórnin sjálf hefur komið sér saman. Það er bullandi ágreiningur innan ríkisstjórnarflokkanna og á milli þeirra um þau frv. sem eftir er að leggja fram og jafnvel þau frv. sem búið er að leggja fram. Og svo kemur hæstv. ráðherra og segir: Getið þið ekki komið í viðræður við mig sem sitjið í stjórnarandstöðunni þó að ég hafi ekki enn náð nokkurri samstöðu á milli ríkisstjórnarflokkanna og ekki innan ríkisstjórnarflokkanna? Ja, sér er nú hver boðskapurinn. Það er auðvitað algerlega út í bláinn og óverjandi fyrir hæstv. ráðherra að vera að tala um viðræður við stjórnarandstöðuflokka, a.m.k. ekki við Sjálfstfl., fyrr en samkomulag hefur tekist innan ríkisstjórnarinnar sjálfrar. Við vitum að það hefur verið bullandi ágreiningur um tekjuskattsfrv. og um öryrkjaskattinn. Þessi frumvörp verða auðvitað að liggja fyrir í heild sinni áður en þessar viðræður hefjast. Sjálfstfl. er fús til þessara viðræðna, ég hef margítrekað það. Það er auðvitað eðlilegt að margt fleira komi inn í þær umræður. Sú efnahagsstefna sem er forsenda fjárlagafrv. hlýtur að verða þáttur í þeim umræðum og það mun ekki standa á Sjálfstfl. að taka þátt í þeim, en það verður að gerast á eðlilegum forsendum og eftir að ríkisstjórnin hefur sjálf komið sér saman. Hún getur ekki hlaupið frá því og dregið fjöður yfir innri erfiðleika og innra sundurlyndi með því að ætla að fara að hefja viðræður við stjórnarandstöðuflokka áður en hún kemur sér sjálf saman. Þetta eru grundvallaratriði. Hæstv. ráðherra verður að gera greinarmun á almennum kynningarfundi og svo raunverulegum

samningaviðræðum.