Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Þriðjudaginn 06. desember 1988

     Friðrik Sophusson:
    Herra forseti. Það er ekkert skrýtið hvernig umræðan hefur þróast hér í síðustu ræðum. Það er ljóst að hæstv. ríkisstjórn er í sjálfheldu. Það kemur nefnilega nú í ljós sem vitað var í upphafi, að hæstv. ríkisstjórn er ekki meirihlutastjórn í þeim skilningi sem flestir þingmenn skilja það orð.
    Það var athygli vert að hlusta á hæstv. fjmrh. senda skeyti sín til einstakra hv. framsóknarþm. Hann sagði að það hefði ekki verið skynsamlegt af hv. 10. þm. Reykv. Guðmundi G. Þórarinssyni að taka þátt í þessari umræðu. Í síðari ræðu sinni sagði hann að allir vissu að hv. þm. hefði sérskoðanir á ákveðnum málum og hann lýsti þeim annan hvern dag eða jafnvel daglega í blöðum og síðan væru þessar skoðanir tíundaðar í sjónvarpi.
    Hæstv. ráðherra sagði síðan af sinni alkunnu hógværð að vonandi hefðu hv. þm. Framsfl. lært af þessari reynslu. Þeir ættu ekki að vera að koma hér upp í ræðustól. Þeir ættu ekki að koma hér upp á dekk og ybba gogg heldur ættu þeir bara að sitja, bíða og þegja. Síðan bætti hann við að þetta gilti einnig um þá hv. framsóknarmenn sem sitja í ríkisstjórninni. Ég tók mjög vel eftir því að hæstv. ráðherra sendi meðráðherrum sínum, hæstv. ráðherrum Framsfl., kveðju með þessum hætti. ( Fjmrh.: Það er misskilningur.) Þetta sagði hæstv. ráðherra. Hann sagði, og ég vona að ég hafi skrifað það rétt. Við getum flett því upp síðar, orðrétt: Vonandi hafa framsóknarmenn á þingi og í ríkisstjórn lært af þessu. Það sagði hæstv. ráðherra. ( Fjmrh.: Lært af þeirri ríkisstjórn sem þeir voru í með Sjálfstfl.) Já, já, þeir hefðu talað of mikið þar. Ég biðst afsökunar því að ég tók þetta sem svo að hæstv. ráðherra væri að gera athugasemdir við að aðrir hæstv. ráðherrar, þar á meðal ráðherrar Framsfl. og kannski ekki síst þeir, hafi talað utan þings um þau mál sem nú eru hér til umræðu á hinu háa Alþingi.
    Það er annað atriði sem hefur komið fram í dag sem ég held að ástæða sé til þess að leggja áherslu á. Í framhaldi af umræðum sem áttu sér stað um daginn um það hvað sé stjórnarfrv. sagði hæstv. iðnaðar- og viðskrh. frá því að ekkert stjórnarfrv. yrði lagt fram án þess að hv. þm. Stefán Valgeirsson stæði með því. Í því sama máli, sem fjallaði um verðbréfasjóði og verðbréfafyrirtæki, kom fram að hv. þm. Stefán Valgeirsson taldi sig óbundinn af því að styðja frv. óbreytt, hann hefði fyrirvara og flytti brtt. við frv. Nú hefur hv. þm. endurtekið þennan leik. Hann hefur lýst því yfir hér að hann hafi fyrirvara um að styðja frv. óbreytt. Hann hafi sagt hæstv. ráðherra frá því að hann vilji geta flutt brtt. eða stutt brtt. Þeir sem eru sæmilegir í reikningi geta séð að ekki eykst meiri hluti hæstv. ríkisstjórnar í þessari deild við þá yfirlýsingu. M.ö.o.: Þetta stjórnarfrv. hefur ekki einu sinni á bak við sig alla stuðningsmenn stjórnarinnar nema með þessum fyrirvara ákveðins þingmanns í Nd.
    Það er einmitt af þessum ástæðum sem við í stjórnarandstöðunni höfum rætt um, ekki einu sinni heldur aftur og aftur, þar á meðal í umræðum um

þetta mál og eins í umræðum um framlengingu söluskattsins og frestun á virðisaukaskattinum, að það sé nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna í þinginu að taka þessi mál fyrir með sérstökum hætti. Það sé ekki verjanlegt að láta 2. umr. fjárlaga fara fram nema hæstv. ríkisstjórnin geti sýnt fram á að hún hafi meiri hluta í hv. deild fyrir þeim skattafrv. sem standa á bak við tekjuöflun 1. gr. fjárlagafrv. ( Fjmrh.: Fyrir 3. umr.) Við 1. gr. fjárlagafrv. Hæstv. ráðherra kallar hér fram í að það sé fyrir 3. umr. ( Fjmrh.: Það sagði ræðumaður fyrr í dag.) Ég sagði: Áður en frv. er sent til 3. umr. Um þetta hef ég reyndar flutt ræður tvisvar eða þrisvar sinnum þótt hæstv. ráðherra hafi ekki séð ástæðu til þess að svara því í sínum ræðum hér. Það er nefnilega þannig að í 2. umr. eru greidd atkvæði um einstakar greinar fjárlagafrv.
    Þá kem ég að því sem hæstv. forsrh. sagði í blaðaviðtali við Þjóðviljann, en þar sagði hann á þá leið: ,,Ég vil að það sé talað við stjórnarandstöðuna og við reynum að mætast á miðri leið.`` Nú hefur orðskýrandi hæstv. ríkisstjórnar, hæstv. fjmrh., sagt að mið leið þýði ekki mið leið. Í raun og veru hafi forsrh. ekki átt við að hann ætlaði að mæta stjórnarandstöðunni á miðri leið, heldur hafi ætlunin verið sú að biðja um hugmyndir frá stjórnarandstöðunni. Ég leyfi mér að efast um að þessi orðskýring hæstv. fjmrh. standist og ég hygg að hæstv. forsrh. kæri sig ekki um að þannig sé snúið út úr ummælum hans. Ég tel nefnilega að eftir að hæstv. forsrh. kom hér í ræðustól um daginn og lýsti því yfir að engin trygging væri fyrir því að bráðabirgðalögin færu óbreytt í gegnum þingið hafi menn áttað sig á því að hæstv. ríkisstjórn býr við þær aðstæður að ef hún ætlar að koma málum fram verður hún að semja við stjórnarandstöðuna en ekki aðeins að halda fundi til að kynna frumvörp. Það að halda fundi hafa margir hæstv. ráðherrar gert á undan hæstv. fjmrh. og ég tek undir það með hæstv. ráðherra sem er hógvær maður að þetta er mjög góður siður og til fyrirmyndar. Hann hefur sjálfur sagt margoft hér í ræðustól að þessi siður, sem hann telur sig hafa fundið upp, sé til fyrirmyndar. Ég skal taka undir það. Það er auðvitað til fyrirmyndar að kynna stjórnarandstöðunni frumvörp en það er ekki það sama og að semja við stjórnarandstöðuna. Mér
finnst alveg bráðnauðsynlegt að hér komi fram að ekki er hægt að semja við stjórnarandstöðuna fyrr en hæstv. ríkisstjórn hefur komið sér saman um hvaða frumvörp verði lögð fram og hve miklir skattar fáist með þeim frumvörpum. Þegar þeir hafa útbúið þennan pakka sinn geta þeir rætt við stjórnarandstöðuna og þá er hægt að taka þessi mál fyrir í einni heild því að auðvitað er yfirlýsing forsrh. á þann veg að hann viðurkennir að hæstv. ríkisstjórn Íslands er ekki meirihlutastjórn. Hún er stjórn sem verður að skáskjóta málinu í gegnum þingið fyrir atbeina stjórnarandstöðuþingmanna. Þetta er kjarni málsins. Og það er mjög ósanngjarnt, svo að ekki sé nú fastar að orði kveðið, af hæstv. ráðherra að koma hér upp og segja að það þurfi að þróa þessi mál áfram, koma

fyrst með eitt mál og síðan með annað og ætlast til þess að það verði afgreitt og með þeim hætti nálgist hann smám saman markmiðið.
    Það er nefnilega þannig að hæstv. ríkisstjórn hefur sett sér markmið um tekjuafgang á fjárlögum og auðvitað verður hæstv. ríkisstjórn að sýna þau frumvörp og sýna fram á meiri hluta bak við þau sem nægir til þess að tekjuöflunin náist. Þá hefur hún og stjórnarflokkarnir komið sér saman um það hvernig þeir vilja afgreiða málin, en þar sem þeir hafa ekki meiri hluta í Nd. koma þeir auðvitað, jafnhógværir og háttvísir og þeir eru og segjast vera, og ræða við stjórnarandstöðuna um það hvernig eigi að afgreiða þessi mál til þess að meginmarkmiðið náist. Það er út í hött, algerlega út í bláinn að segja það hér að það séu einhverjar samningaviðræður eða einhverjar samráðsviðræður þótt einstökum þingmönnumn stjórnarandstöðuflokkanna séu kynnt frumvörp og þeir fái að bera fram fyrirspurnir og megi gera ábendingar. Ef hæstv. ráðherra vill, þá get ég þakkað honum fyrir þetta. Þetta er þakkarvert, góðra gjalda vert, til fyrirmyndar, svo að ég noti nú hans eigin orð. En þetta er ekki það sem við töldum hæstv. forsrh. vera að bjóða. Hann er sá maður í ríkisstjórninni sem skilur það að hæstv. ríkisstjórn var ekki mynduð sem hrein meirihlutastjórn. Það er einmitt þetta atriði sem við viljum fá fram í upphafi umræðnanna um skattafrumvörpin sem koma nú frá hæstv. fjmrh. Er hann tilbúinn? Ef það er eins gott samkomulag í hæstv. ríkisstjórninni og hann segir vera, er hann þá ekki tilbúinn til þess að koma fram með frumvörpin og segja frá því hvernig meiri hluti myndast hér í hv. deild? Auðvitað tekur maður ekki mark á því að það sé einhver meiri hluti þegar einn af hv. stjórnarþingmönnum segir að hann sé með fyrirvara, hann geti stutt og flutt brtt., því að þá er meiri hlutinn gersamlega brostinn. Þá er það minni hluti sem ríkisstjórnin hefur hér í deildinni ef slíkir fyrirvarar eru hjá einstökum hv. stjórnarþingmönnum.
    Ég vona að það hafi komið mjög skýrt fram við hvað við miðum þegar við teljum okkur geta tekið mark á ummælum hæstv. forsrh. þegar hann segir að auðvitað þurfi að tala við stjórnarandstöðuflokkana og tók þannig til orða að það þyrfti að mætast á miðri leið, þótt hæstv. fjmrh. segi að það þýði ekki það að það eigi að mætast á miðri leið. En hæstv. fjmrh. er nú snillingur í því að segja að hæstv. forsrh. hafi ekki meint það sem hann var að segja eða hafi hann meint það þá hafi hann meint það dálítið öðruvísi en það skildist og hafi menn skilið það á annan hátt þá hafi það verið misskilningur. Auðvitað er hæstv. fjmrh. í mun að halda þessu stjórnarsamstarfi áfram og eitt mesta bölið er það hvernig hæstv. forsrh. hagar orðum sínum. Það er það sem hæstv. fjmrh. hefur verið að segja okkur hérna í dag. Þrátt fyrir alla reynsluna af hæstv. forsrh. héldum við kannski að við gætum tekið mark á þessum ummælum hans. En nú kemur hæstv. fjmrh. og segir: Það sem hæstv. forsrh. sagði í Þjóðviljanum þýddi alls ekki það sem hann sagði, það þýddi bara allt annað. Vona ég nú, virðulegur forseti,

að til skila hafi komist til fulltrúa hæstv. ríkisstjórnar, til hæstv. fjmrh., við hvað er átt þegar stjórnarandstaðan fer fram á það að ræða við stjórnina um þessi skattafrumvörp. Það er ekki nóg að bjóða upp á kaffi, skýra út, svara spurningum, biðja um ábendingar. Við erum að tala um þá stefnu sem liggur að baki efnahagspólitík ríkisstjórnarinnar. Við erum auðvitað að tala um það, svo ég segi það hreinskilnislega, að það sé viðurkennt sem kemur fram hjá hæstv. forsrh. að stjórnin hefur ekki meiri hluta á Alþingi og þess vegna neyðist hún til þess að framselja sitt vald til þingsins. Það eru þessar sérstöku aðstæður sem við búum við á hv. Alþingi í tíð þessarar hæstv. ríkisstjórnar. Þetta verða hæstv. ráðherrar að skilja.
    Vona ég nú að hæstv. fjmrh. komi hér upp og svari því skýrt og skorinort: Er hann tilbúinn til þess að ganga til samninga við stjórnarandstöðuna á grundvelli þess skilnings sem við lögðum í orð hæstv. forsrh. eða ætlar hann að halda því fram að það hafi ekki verið mark takandi á ummælum hæstv. forsrh. því að hann hafi alls ekki meint það sem hann sagði og hafi hann meint það þá þýddu ummælin ekki það sem maður gat lesið úr þeim.