Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingar á lögum um vörugjald og er að finna á þskj. 173.
Eins og fram hefur komið rækilega í umræðum í dag er þetta eitt nokkurra tekjuöflunarfrumvarpa sem ríkisstjórnin flytur til þess að ná markmiðum sínum um tekjuafgang í ríkissjóði á næsta ári og um heilbrigðan grundvöll undir efnahagsstefnu næstu missira. Ég vil í upphafi míns máls ítreka þau tilmæli sem ég bar upp við fulltrúa þingflokka stjórnarandstöðunnar fyrir nokkrum dögum síðan um að æskilegt væri að þetta mál gæti haft nokkuð skjótan afgreiðslumáta hér í þinginu og um það ræddum við fulltrúar þingflokkanna fyrr í dag og væri æskilegt að geta haldið því samráði áfram síðar á þessum fundi, með hvaða hætti sem menn svo ná saman um það markmið.
Um síðustu áramót voru gerðar verulegar breytingar á þágildandi vörugjaldslögum. Þessar breytingar fólust m.a. í lækkun á gjaldahlutfallinu auk þess sem gjaldskyldum vöruflokkum var fækkað allverulega. Eftir þessar breytingar var vörugjald aðeins lagt á tiltölulega fáa vöruflokka og vega þar þyngst sælgæti, öl og gosdrykkir. Auk þess er gjaldið lagt á snyrtivörur og nokkrar tegundir heimilistækja, svo sem þvottavélar, ísskápa og hljómflutningstæki. Þá er vörugjaldið nú einnig lagt á fáeinar tegundir af byggingarvörum, svo sem hreinlætistæki, raflagnarefni og steypustyrktarjárn.
Áður en ég vík nánar að þeim breytingum sem felast í frv. vil ég aðeins kynna það grundvallarviðhorf að auk þess sem vörugjöld geta verið gagnlegt tæki til þess að tryggja tekjuöflun í ríkissjóð hafa þau löngum verið eitt af helstu stjórntækjum íslenskra stjórnvalda til þess að reyna að hafa áhrif bæði á neysluútgjöld og fjárfestingu. Ég held að það hafi kannski verið of lítið rætt á undanförnum árum hvernig hægt er að beita sköttum í þágu æskilegra þjóðfélagsmarkmiða. Ég held að við höfum öll tilhneigingu til þess að líta kannski fyrst og fremst á skatta sem tekjuöflunartæki og meta kosti þeirra og galla fyrst og fremst út frá því sjónarmiði. Hins vegar hefur æ meira borið á því á síðari árum að athygli manna hefur beinst að því hvernig hægt er að beita skattakerfinu til þess að hafa áhrif á skynsamlegt atferli bæði viðskiptaaðila og einstaklinga.
Ég vil geta þess í þessu sambandi áður en ég held lengra að víða um lönd hefur mjög verið rætt um það á undanförnum árum að setja á sérstakan sykurskatt. Ekki eingöngu í tekjuöflunarskyni heldur fyrst og fremst til þess að draga verulega úr neyslu á sykri og sykurvörum vegna þess að rannsóknir hafa sýnt að gífurleg óhollusta er því samfara auk þess sem verulegur kostnaður við sjúkdóma af ýmsu tagi, bæði tannsjúkdóma og aðra sjúkdóma, er samfara mikilli sykurneyslu. Þá er einnig rétt að benda á að á Íslandi er sykurneysla mjög mikil samanborið við önnur lönd. Þess vegna var það nokkuð skoðað í fjmrn., í aðdraganda þeirra frumvarpa sem hér hafa verið lögð
fram og verða lögð fram, hvort grundvöllur væri fyrir því í okkar skattakerfi að taka t.d. upp hliðstæðan sykurskatt og Danir hafa verið með og hefur að ýmsu leyti gefist vel þar í landi. Hins vegar var það niðurstaða sérfræðinga að okkar skattakerfi væri þannig úr garði gert í dag að erfitt væri að ná því markmiði og því var reynt að fara þá leið að gera sérstaklega þær vörur sem hefðu mikið sykurinnihald dýrari en aðrar.
Í öðru lagi vil ég geta þess að víða hefur verið mjög horft á það hvernig hægt er að beita skattlagningu til þess að stýra fjárfestingu. Við höfum af því dýrkeypta reynslu í okkar landi að fjárfesting undanfarinna ára hefur á margan hátt verið mjög óhagkvæm. Þetta bar á góma í umræðunum um skattinn á skrifstofu- og verslunarhúsnæði og snertir einnig aðra þætti. Ég held að flestir séu sammála um að sú gífurlega fjárfesting sem hér hefur verið á undanförnum árum sé í senn ein af orsökum þess mikla efnahagsvanda sem við búum við og enn fremur ein ástæða þess að erlend skuldasöfnun hefur haldið áfram og viðskiptahalli verið mikill. Það er því mjög brýnt, hvort sem mönnum líkar betur eða verr, að draga úr fjárfestingu í landinu. Það er einfaldlega efnahagsleg nauðsyn og heilbrigð skynsemi ef menn vilja hverfa af þeirri braut að reka íslenskt þjóðarbú fyrst og fremst með aukinni erlendri skuldasöfnun.
Í ljósi þessa var það ítarlega rætt í fjmrn. á undanförnum vikum hvort nægilegur tími væri til þess að útbúa ítarlegt frv. um fjárfestingarskatt. Slíkur skattur hefði fyrst og fremst þá kosti að geta verið stjórntæki í fjárfestingarmálum. Hann væri hægt að hækka þegar nauðsyn væri talin á að draga úr fjárfestingum og lækka þegar nauðsynlegt væri talið að draga úr samdrætti og auka kraft efnahagslífsins og fjárfestinganna á nýjan leik. Slíkur fjárfestingarskattur gæti verið mjög gagnlegt stjórntæki. Hann þyrfti þó að hafa þann kost að vera fljótvirkur og taka til nær allra algengustu sviða fjárfestinga í okkar landi. Niðurstaðan var hins vegar sú að lengri tíma þyrfti til þess að undirbúa slíkan fjárfestingarskatt sem efnahagslegt stjórntæki. Sú vinna mun hins vegar halda áfram í fjmrn. og þegar henni hefur miðað lengra áfram á næsta ári getur vissulega komið til greina að efna til viðræðna við fulltrúa allra þingflokka um það efni vegna þess að ég reikna með
að innan flestra ef ekki allra flokka hér á Alþingi sé þó nokkur áhugi á því að skoða hvernig hægt sé að beita skattakerfinu til þess að hafa heilbrigðari áhrif á fjárfestingarnar í landinu en gert hefur verið til þessa því vítin í þeim efnum eru vissulega til að varast. En vegna þess að við vildum ekki bíða eftir þeirri tæknilegu vinnu var farið inn á þá braut að taka inn í vörugjaldið nýja flokka fyrir ýmiss konar byggingarvörur, svo sem sement og timbur, m.a. í því skyni að reyna að draga úr hinni óeðlilegu og miklu fjárfestingu í landinu miðað við efnahagslega getu þjóðarinnar.
Það frv. um vörugjald sem hér er lagt fram er því af okkar hálfu ekki aðeins lagt fram í því skyni að
styrkja tekjugrundvöll ríkissjóðs og vega upp á móti tekjutapi undanfarinna mánaða heldur er það einnig mótað af þeirri viðleitni að hafa ákveðin áhrif á neysluvenjur í hollustuátt og til að draga úr þeirri miklu fjárfestingu sem hér hefur verið í landinu á undanförnum árum. Gert er ráð fyrir því að hið nýja vörugjald sem lagt var á á sl. ári mundi skila 1700 millj. kr. á yfirstandandi ári. Nú er hins vegar ljóst, eins og fram hefur komið fyrr á þessu þingi, að tekjurnar af vörugjaldinu munu verða mun lægri á árinu 1988 en að var stefnt eða aðeins um 1200 millj. kr. Skýringin á þessum tekjubresti liggur fyrst og fremst í samdrættinum og einnig í því að sjálfur gjaldstofninn er frekar einhæfur og því mjög viðkvæmur fyrir sveiflum í efnahagslífinu af því tagi sem hér hafa verið. Vegna þess að mjög óeðlilegt er að hafa skattkerfið þannig að slíkar sveiflur magnist upp í gegnum skattkerfið hefur verið ákveðið að breikka grunninn.
Í frv. til fjárlaga fyrir árið 1989 er gert ráð fyrir því að tekjur af vörugjaldi verði í heild 2 milljarðar 850 millj. kr. Þar af má rekja um 1600 millj. kr. til þeirra breytinga sem felast í frv. Til þess að ná því markmiði eru farnar tvær leiðir. Annars vegar er gjaldstofninn stækkaður og hins vegar er núgildandi gjaldahlutfall hækkað. Í fyrsta lagi eru breytingarnar fólgnar í því að núgildandi vörugjald er hækkað og þeirri hækkun er skipt í tvo gjaldflokka. Í efri gjaldflokknum verða vörur eins og sælgæti og gosdrykkir en aðrar vörur, svo sem hljómflutningstæki og ýmis heimilistæki, fara í lægri flokkinn. Í öðru lagi er gert ráð fyrir að ýmsum nýjum vöruflokkum sé bætt við, fyrst og fremst byggingarvörum, og á þessar vörur verður lagt mun lægra gjald eða um 10%. Gjaldið á sælgæti og gosdrykki fer aftur á móti í 25% úr 14% og gjaldið á ýmiss konar snyrtivörur og byggingarvörur, eins og steypustyrktarjárn, raflagnir og hreinlætistæki, fer úr 14% í 20%.
Það væri vissulega ástæða til þess að rekja nokkuð ítarlega hina ýmsu vöruflokka sem hér koma við sögu en ég held þó að það sé að mörgu leyti eðlilegra að sú vinna fari fram í nefnd þar sem menn geta borið hin einstöku númer saman við skyldar vörur í opinberum skrám.
Þó er rétt að víkja að því hvaða áhrif þessi breyting kann að hafa á verðlag. Ef notaður er sá almenni grundvöllur útreikninga, sem hér hefur mótast á þenslutímum liðinna ára, má ætla að áhrifin kunni að vera um 0,5% á framfærsluvísitölu og um 3% á byggingarvísitölu. Í þessu sambandi er hins vegar rétt að hafa í huga að samdrátturinn og aukin samkeppni á síðustu mánuðum hafa m.a. haft það í för með sér að áhrifa 3% gengislækkunar hefur ekki gætt í verðlagi. Hvað verðlagsáhrifin snertir hefur gengislækkunin horfið með aukinni samkeppni og er það vel að mörgu leyti. Því er mjög hæpið að draga nú einhverja niðurstöðu um það hvaða verðhækkanir kunni að fylgja í kjölfar þessara vörugjaldsbreytinga. Þær gætu að hámarki orðið þær sem ég hef hér vikið að en þær gætu líka orðið mun lægri. Það er t.d.
hugsanlegt að áhrifin á framfærsluvísitöluna yrðu nánast engin líkt og varð með 3% gengisfellinguna og að áhrifin á byggingarvísitöluna yrðu mun minni, þó að ég ætli ekki að setja fram neinar áætlunartölur í þeim efnum. Ég vek hins vegar athygli hv. alþingismanna á því að reynsla síðustu tveggja mánaða sýnir að með aukinni samkeppni í kjölfar samdráttar og minnkandi þenslu skapast eðlilegri grundvöllur til þess að áhrifin af þessum breytingum, líkt og gengisfellingum, bitni ekki á neytendum með hærra vöruverði heldur að verulegu leyti á versluninni sjálfri og þeim sem viðskiptin stunda. Það má að vísu deila um það hvort tilefni sé til þess og eðlilegt sé að verslunin taki þetta á sig, þ.e. lækki álagningu sína að sama skapi vegna þess að hún treysti sér ekki til þess að velta vörugjaldshækkunum út í verðlagið. En reynslan af gengislækkuninni gefur þó tilefni til að ætla að svo verði. Um það geta menn að vísu haft deildar meiningar hvort það sé sanngjarnt eða eðlilegt en kosturinn við samkeppni er þó sá að þegar hún er orðin raunveruleg geta verslunarfyrirtækin valið hvort þau lækka álagningu sína til þess að auka söluna og tryggja þannig að samkeppnin sé neytandanum í hag. Mér hefur skilist að það væri markviss samkeppni að tryggja hag neytandans og að þessu leyti hefur reynsla síðustu mánaða sýnt að við kunnum að vera á þessari braut.
Ég vil því í fullri einlægni benda mönnum á að það kann að vera mjög hæpið nú við breyttar aðstæður að álykta út frá gömlum þenslutímum á þann veg að þessi vörugjaldshækkun feli fyrst og fremst í sér auknar byrðar fyrir neytendur. Í þessu sambandi er rétt að vekja athygli á því að nýlegar tölur
frá Seðlabankanum sýna að raungengið á milli þriðja og fjórða ársfjórðungs á þessu ári hefur lækkað um 3%, þannig að áhrif gengisfellingarinnar hafa að fullu komið fram í lækkandi raungengi, en áhrifin á milli annars og þriðja ársfjórðungs voru hins vegar á þann veg að raungengið hækkaði þrátt fyrir 10% gengisfellingu.
Virðulegi forseti. Ég vil svo að lokum vekja athygli á því að margar af þeim breytingum sem hér eru gerðar tillögur um hafa verið til umræðu um alllangt skeið og mér er tjáð að bæði innan fyrri ríkisstjórnar og ríkisstjórnarinnar þar á undan hafi menn fjallað ítarlega um málin á þennan veg. Þegar undirbúin var t.d. lagasetning um núgildandi vörugjald hugleiddu þáv. stjórnarflokkar allrækilega að hafa skattstofninn breiðari en niðurstaðan varð, m.a. vegna þess að þeir áttuðu sig á því að of þröngur stofn vörugjaldsins væri miklu viðkvæmari fyrir þeim sveiflum sem ég gat um áðan og tekjugrundvöllur ríkissjóðs væri mun óstöðugri og því væri skynsamlegra að halda þannig á málum.
Í öðru lagi vil ég nefna að sagt hefur verið að með frv. væri verið að koma aftan að neytendum vegna þess að því hafði verið lofað á sínum tíma af þáv. ríkisstjórn að breytingar á vörugjaldi yrðu nátengdar breytingu á matarskatti. Ég hef ekki farið út í ítarlegar sagnfræðilegar athuganir á ummælum sem kunna að
hafa fallið á sínum tíma. Andstaða míns flokks við matarskattinn er alkunn. Við ákváðum hins vegar að taka þátt í því að framlengja hann um sinn þó að við munum leitast við að reyna að lækka verð á algengri matvöru með niðurgreiðslum og eftir öðrum leiðum. Mér er ekki ljóst samhengið á milli matarskattsins og vörugjaldsins á þeim grundvelli að það verði tengt saman sem loforð og alla vega hef ég ekki heyrt á það minnst í undirbúningi frv. sem hér er lagt fram. Að þessu leyti hefur því sú samtenging farið mjög hljótt, a.m.k. hvað mig snertir.
Að öðru leyti er alveg skýrt að þetta frv. er veigamikill þáttur í tekjuöflun ríkissjóðs á næsta ári. Það er von mín að það nái fram að ganga hér í þinginu og vek athygli ábyrgra þingmanna á að það tekjutap sem kann að verða í meðferð málsins hér í þinginu, ef það verður, þarf þá að bæta upp með öðrum hætti, annaðhvort með niðurskurði eða með annarri tekjuöflun ef allir eru sammála um það, sem mér hefur heyrst hér á hv. Alþingi, að það væri vilji allra þingflokka að gert væri ráð fyrir verulegum tekjuafgangi hjá ríkissjóði í fjárlagafrv. næsta árs. Ég hef a.m.k. ekki þessa tvo mánuði síðan Alþingi hófst heyrt nokkurn hv. þm. lýsa því yfir hér úr ræðustóli að hann eða hún teldi það ekki skynsamlegt markmið.
Ég fagna því auðvitað að um það er mjög víðtækt samkomulag og það er jafndjúpstæður skilningur þingheims á því að það er nauðsynleg forsenda þess að við getum náð inn á nýtt stöðugleikaskeið í efnahagslífinu, dregið úr erlendri skuldasöfnun og náð því að tryggja Íslendingum sambærileg skilyrði í efnahagsmálum og aðrar þjóðir búa við. En því miður verður þessu markmiði ekki náð nema annaðhvort með verulegum niðurskurði upp á allnokkra milljarða eða nýrri tekjuöflun, nema hvort tveggja sé, upp á einnig nokkra milljarða. Það er eðli vandans. Þessi ríkisstjórn hefur leitast við á þeim tveimur mánuðum sem hún hefur setið að fara báðar leiðirnar, bæði leið niðurskurðar og leið nýrrar tekjuöflunar. Við höfum þó í niðurskurðinum leitast við að hlífa því velferðarkerfi í heilbrigðismálum, menntamálum og félagslegri þjónustu sem við teljum vera eitt það dýrmætasta sem byggt hefur verið upp í okkar landi, en höfum hins vegar tekið á ýmsum öðrum liðum og munum auðvitað skoða það áfram sem við teljum að geti frekar beðið. En það er engu að síður alveg ljóst að ef menn vilja halda uppi því þjónustustigi í velferðarmálum sem við teljum nauðsynlegt og höfum hælt okkur af, bæði í okkar hóp og á alþjóðavettvangi, og tryggja jafnframt að fjármál ríkissjóðs verði liður í skynsamlegri efnahagsstefnu, þá gerist það ekki nema með allverulegri nýrri skattheimtu nema innan þingsins sé allt í einu kominn nýr vilji til að skera stórlega niður framkvæmdaliði af margvíslegu tagi og hefur mér ekki heyrst að sá vilji væri fyrir hendi í neinum þingflokki. Álasa ég engum fyrir það. En þá er niðurstaða dæmisins einfaldlega sú að það þarf að eiga sér stað veruleg tekjuöflun. Hún er ekki vinsæl. Það er mér ljóst. Ég sagði þegar ég mælti fyrir fjárlagafrv. að skattar væru óvinsælt orð í
okkar máli. En stundum verður að ganga í þau verk hvort sem mönnum líkar betur eða verr vegna þess að menn telja hin markmiðin, varðveislu velferðarkerfisins og stöðugleika í efnahagsmálum, svo mikilvæg að það beri að leggja á sig ýmsar erfiðar þrautir til að ná þeim.
Virðulegi forseti. Ég endurtek svo ósk mína til fulltrúa allra þingflokka um gott samstarf við að vinna þannig að þessu máli að það geti komið sem fyrst til atkvæða og afgreiðslu og vænti þess að við getum í sameiningu, bæði á þessum fundi og utan fundar, náð samstöðu um þann framgang málsins.