Grunnskóli
Miðvikudaginn 07. desember 1988

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Herra forseti. Ég vil lýsa stuðningi mínum við þetta þmfrv. sem hér er flutt og mælt var fyrir hér af hv. 6. þm. Reykv. Ég sé að um það er víðtæk samstaða hér í hv. deild og ég fagna því, enda er það í góðu samræmi við þá umræðu sem fram fór um skólamál hér í deildinni í gær, og heiti á deildina og menntmn. að reyna það sem unnt er til þess að hraða niðurstöðu þessa máls.