Virðisaukaskattur
Miðvikudaginn 07. desember 1988

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegur forseti. Það er rétt, sem hv. 1. þm. Suðurl. sagði áðan, að þegar frv. var til 1. umr. var um það rætt að á næsta ári þurfi að gefa sér góðan tíma til að skoða marga þætti í þessari löggjöf. Það er einnig rétt að ég lýsti því yfir að mér fyndist það koma vel til greina að fulltrúar allra þingflokka ættu aðild að þeirri umfjöllun og ég mun á næstunni ræða það mál betur bæði við samstarfsmenn mína í ríkisstjórn og eins við þá sem hafa unnið að undirbúningi verksins til að kanna með hvaða hætti sé eðlilegast að koma slíku fyrir.
    Ég vona að menn misskilji ekki að það liggi ekki fyrir hér og nú endanleg ákvörðun í þeim efnum, en mér finnst að mörgu leyti eðlilegt að fulltrúar allra þingflokka geti komið að því verki. En á þessari stundu liggur ekki fyrir endanleg ákvörðun um það mál. ( FrS: Mun ráðherrann beita sér fyrir því?) Ja, ég mun taka til umræðu að það verði gert. Vonandi verður fljótlega hægt að ná niðurstöðu í því máli. En það hefur ekki gefist tóm þessa daga til að taka það til þeirrar umfjöllunar sem að mínum dómi þarf að eiga sér stað ef þessi leið verður farin. Þá er líka spurning hvað á að taka inn í það. Ekki kannski bara spurninguna um tvö skattþrep heldur ýmislegt fleira sem snertir þetta mál.