Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Þrátt fyrir að hér sé reyndar óvenjuvel mætt af ráðherrum og það meira að segja úr öllum stjórnarflokkunum sakna ég óneitanlega eins þeirra, hæstv. utanrrh., fyrrv. hæstv. fjmrh. Er hann ekki viðstaddur í húsinu? ( Forseti: Utanrrh. mun vera farinn af landi brott.) Það var skaði.
Mér varð að orði í umræðum utan dagskrár í fyrradag að nú væri tími Rómarbrennu runninn upp, en líðandi stundir einkennast af fleiru því nú er upp runninn sá tími hér í þinginu þegar allt á að gerast í einu og lítill tími gefst til að gaumgæfa hvert og eitt þingmál. Slík skilyrði, slíkar aðstæður hafa það enn fremur í för með sér að nánast engir möguleikar eru á því að taka á málum í heild sinni og þá á ég fyrst og fremst við allt fjárlagadæmið sem hér er aðeins einn lítill angi af til umræðu.
Það verður ekki hjá því komist að gagnrýna harðlega þau vinnubrögð sem þingmönnum er boðið upp á. Eftir margra vikna gauf, vil ég segja, hérna í þinginu, snjóar inn á borð til okkar frumvörpum þeim sem ætlað er að mynda þær tekjur sem standa undir útgjöldum fjárlaga og það sömu daga og menn höfðu ætlað sér að afgreiða fjárlögin. Það er auðvitað engin leið að samþykkja slíkt vinnulag.
Það er yfirlýst stefna hæstv. ríkisstjórnar að afgreiða hallalaus fjárlög og slíkt er auðvitað ekki hægt að gera út í loftið. Menn afgreiða ekki annan hluta dæmisins, gjaldahliðina, án þess að hafa nokkra tryggingu fyrir hinum hluta þess, tekjuhliðinni. Þess vegna er óhjákvæmilegt með tilliti til stöðu ríkisstjórnarinnar og þess nauma meiri hluta sem hún hefur að fjalla fyrst um þær tekjuöflunarleiðir sem hún vill fara og hér er ein þeirra á ferðinni.
Hæstv. fjmrh. hefur síðustu daga ásamt forustumönnum hinna stjórnarflokkanna og ásamt starfsmönnum ráðuneytisins kynnt þingflokkum stjórnarandstöðunnar þessi tekjuöflunarfrumvörp og þar með talið það sem hér er á dagskrá. Út af fyrir sig eru slík vinnubrögð æskileg og gefa örlítið meira ráðrúm til að átta sig á forsendum þeirra og hugsanlegum afleiðingum. Þessi annars æskilegu og jafnvel lofsverðu vinnubrögð, og ég segi lofsverðu því að það er ekkert sjálfsagt í samskiptum stjórnar og stjórnarandstöðu, en þessi vinnubrögð koma þó að litlu gagni nú. Til þess er tíminn allt of naumur og allt of margt sem berst að í einu til þess að ráðrúm gefist til nægilegrar athugunar. Ég ítreka það vegna þess vægis sem mér virðist þessir fundir hafa fengið í fjölmiðlum að á þeim fór ekki fram efnisleg umræða hvað þá samráð og það var ekki kallað eftir afstöðu með formlegum hætti. Ég tel rétt að leggja áherslu á þetta vegna þess að menn virðast hafa lagt miklu dýpri merkingu í þessa fundi en mér finnst nokkur ástæða til.
Það er nokkur eftirvænting bundin við afstöðu manna í stjórnarandstöðunni og það er eðlilegt að menn bíði eftir afstöðu hennar til þessara mála sem birtast nú hvert af öðru hér á borðum þingmanna. Meiri hluti er ekki fyrir hendi hér í Nd. og hvert eitt
atkvæði skiptir meira máli en oft áður. Við kvennalistakonur höfum frá upphafi sagt að við mundum taka málefnalega afstöðu til allra þingmála, sama hver ber þau fram, og við það höldum við okkur.
Hvað fjárlagadæmið varðar er á margt að líta. Staða ríkisstjórnarinnar og staða ríkissjóðs er ákaflega erfið og við höfum fullan skilning á erfiðri stöðu ríkisstjórnarinnar hvað það dæmi varðar. En menn eru svo sem ekkert sammála um hvort markmið ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög sé réttlætanlegt eins og á stendur. Menn greinir vissulega á um slíkt. En hvað sem því líður er staðan erfið og menn verða að taka á hverju máli fyrir sig af fullri ábyrgð og það viljum við gera.
Það er þó vissulega sérkennilegt þingmál sem hér er á ferðinni. Það er aðeins ár liðið síðan ráðherrar og stjórnarþingmenn töluðu fyrir einföldun nánast eins og trúaratriði. Ein skattaprósenta var heilög kýr, eitt vörugjald stórkostlegt framfaraskref í túlkun þeirra sem þá réðu. Og þeir ráða reyndar margir enn þá. En nýliðinn á stjórnarheimilinu sópar öllum slíkum kenningum um einföldun út af borðinu og býður nú upp á úrval álagningarprósenta og einföldunardýrkendur kyngja öllum fyrri trúarsetningum. Það er kannski engin furða þótt hæstv. utanrrh. sé hvergi nærri þegar þetta mál er til umræðu. En hvað með aðra ráðherra? Treysta þeir sér ekki til að standa við hlið hæstv. fjmrh. og verja þessi stórkostlegu sinnaskipti? Það er auðvitað ágætt að etja hæstv. fjmrh. --- ég vil kannski ekki segja á foraðið en fram með þessi mál þar sem hann var ekki einu sinni viðstaddur þessa umræðu í fyrra og man ekki jafnvel eftir samhengi allra tekjuöflunarfrv. eins og við skildum það og það var túlkað þá svo sem fram kom í umræðunni í gær. Við kvennalistakonur gátum og getum vel fallist á gagnsemi einföldunar, en við minntum reyndar í umræðum í fyrra oftar en einu sinni á þann sannleika að þau frægu orð og títtnefndu í þeirri umræðu, einföldun, skilvirkni og réttlæti, færu ekki endilega alltaf saman.
Það er kannski ekki gustuk að vera að rifja upp alla þá umræðu sem hér fór fram, en svolítið finnst mér þeir eiga bágt nú sem vasklegast gengu fram í þessum málum fyrir ári. Það er raunar afar athyglisvert hvað forustumenn
stjórnarflokkanna eru ótrúir stefnumálum sínum í þessu stjórnarsamstarfi og hvað það virðist valda þeim litlu hugarangri. Það er í rauninni alveg makalaust hvernig hæstv. utanrrh., fyrrv. fjmrh., hreinlega afber það að horfa upp á núv. hæstv. fjmrh. rótast um í fjmrn. eins og ref í hænsnabúi og rífa upp verkin sem hann, þ.e. fyrrv. fjmrh., hafði lagt metnað sinn í eða svo skildist manni í þá tíð. Nú verður ekki einu sinni vart gremju. Kannski fylgist hann ekki of vel með úr fílabeinsturninum.
Hæstv. forsrh. er að vísu svolítið leiður, hann mun nú vera erlendis líka eins og hæstv. utanrrh., yfir sporgöngumanni sínum í utanrrn. sem breytir afstöðu frá fyrri tíð án alls samráðs við sér reyndari menn.
Og hæstv. fjmrh. sættir sig furðuvel við allt sem hann áður gagnrýndi og hlær manna hæst og mest að vinsælum og margsinnis upprifjuðum ummælum sem hann viðhafði sjálfur um fyrirrennara sinn í embætti þar sem hann dæmdi hann brennimerktan mann eða hvað það nú var, hv. 1. þm. Reykv. kann þá sögu mjög vel, en þá einkunn fékk hann hjá núv. hæstv. fjmrh. fyrir framgöngu sína varðandi matarskattinn. Og hann og félagar hans voru ekki lengi að læra hina hefðbundnu rullu um ástandið sem því miður leyfði ekki að staðið væri að málum eins og þeir e.t.v. helst vildu. Nú er bara spurningin hvort þessi ríkisstjórn tollir saman svo lengi að við fáum að vita hver kyngir hverju í sambandi við t.d. álversdrauminn.
En svo að ég snúi mér aftur að því frv. sem hér er á dagskrá er boðið upp á úrval prósenta, þ.e. 10%, 20% og 25% vörugjald fyrir utan alla þá liði sem hafa ekkert vörugjald og getur það varla mikið fjölbreyttara verið. Herlegheitin eiga svo að gefa ríkissjóði vel á annan milljarð í tekjur. Skilst mér þá að ekki sé reiknað með neinum áhrifum á neyslu eða notkun þeirra vörutegunda sem um ræðir, hversu varlegt sem það nú er. Hæstv. ráðherra benti á það sjálfur í umræðunni í gær í sínu máli að vegna samdráttar í neyslu hefði þetta gjald ekki skilað sér í þeim mæli sem ætlað var. Skyldi það ekki geta gerst áfram og jafnvel í enn ríkari mæli þar sem samdrátturinn er ekki á neinu undanhaldi mér vitanlega?
Mér þykir rétt að það komi fram strax að við kvennalistakonur styðjum ekki þetta frv. í heild sinni og það létum við koma fram strax og það var kynnt fyrir okkur. Að sjálfsögðu er eftir að fjalla um málið í nefnd og fá nánari skýringar og allar tölur á bak við þau númer sem hér eru í dálkum, en ég hef ekki trú á að þær upplýsingar breyti neinu frá okkar fyrstu viðbrögðum sem hafa verið hin sömu hjá öllum sem við höfum náð að ráðfæra okkur við innan Kvennalistans.
Við höfum sagt að við gætum hugsanlega stutt hækkun vörugjalds á flesta liði sem nefndir eru í a-lið 1. gr. og eiga við gos og sælgæti. Sú afstaða er í samræmi við afstöðu okkar á síðasta þingi þegar unnið var að víðtækum breytingum á tollalöggjöfinni, en þá fluttum við brtt. bæði við tollalögin og vörugjaldsfrv. sem lutu að því að skattleggja vörur af þessu tagi fyrst og fremst með manneldissjónarmið í huga. Slíkum tillögum var algjörlega hafnað á þeim tíma, en af þessum ástæðum hlutum við að lýsa okkur fúsar til að athuga þessar tillögur ríkisstjórnarinnar gaumgæfilega.
Hv. 1. þm. Reykv., sem hér er nú reyndar ekki viðstaddur, þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af skilningi eða misskilningi okkar kvennalistakvenna varðandi þetta atriði, en það heyrðist mér í máli hans í gær. Við gerðum okkur strax fyllilega ljóst hver tilgangur frv. er. Það hvarflar ekkert að okkur að hæstv. ráðherrar hafi sest niður yfirkomnir af umhyggju fyrir heilsufari Íslendinga og leitað leiða til að bæta það og svo hafi bara viljað svo vel til að sú
leið sem þeir duttu niður á hefði í för með sér tekjuauka fyrir ríkissjóð. Auðvitað er markmiðið okkur ljóst eins og öðrum, en við hljótum sjálfar að leita eftir forsendum fyrir okkar afstöðu. Það má vel vera að við gerum einhverjar tillögur til breytinga á þessum lið, okkur hefur hreinlega ekki gefist ráðrúm til að kanna það ítarlega, en þarna er ekki um að ræða sömu númer og við vorum með í okkar brtt. í fyrra nema að hluta. Ég mundi a.m.k. vilja kanna hvort ekki má ná sama tekjuöflunarmarkmiði með því einfaldlega að fara að tillögum okkar frá því í fyrra og leggja þá 14% vörugjaldið á fleiri liði í þessum kafla í stað þess að hækka liðina. Hæstv. utanrrh., sem ég sakna nú hér á hverri mínútu, styddi okkur áreiðanlega frekar í því núna að leggja 14% vörugjald á nokkur númer í hinum sykursæta XVII. kafla sem nú bera ekkert vörugjald ef hann slyppi þar með við að sjá einföldunarkenningu sína fótum troðna. Þetta verður allt að kanna rækilega og það ætlum við okkur að gera og reyna að ná samstöðu við aðra um slíkar tillögur.
Ég ætla rétt að vona að menn skilji hvað ég er að segja, en á það hefur nokkuð skort og okkur kvennalistakonum jafnvel gerð upp afstaða í málum, bæði í umræðum hér á Alþingi og í fjölmiðlum. Það minnir mig e.t.v. á það að við verðum stundum undrandi á fréttaflutningi af bæði samræðum, fundum og umræðum hér á Alþingi. Þar sem ég var á ferðinni í hádeginu í bílnum mínum heyrði ég fréttir á Bylgjunni þar sem sagt var frá vinnu við öll þau þingmál sem hér eru ýmist nýkomin fram til umræðu eða rétt ókomin. Þar var komist svo að orði, ef ég man rétt, að samráð við stjórnarandstöðuna gengi mjög vel. Ég kom af
fjöllum þarna á leiðinni. Ég þekki ekki til þess samráðs sem þarna er verið að ræða eða var minnst á og held ég sagt að samkvæmt heimildum gengi þetta mjög vel. Ég kannast satt að segja ekki við að neitt frekara samráð eða neitt samráð yfirleitt hafi verið haft. Það hefur verið um kynningarstarf að ræða. Samráð hefur ekki farið fram hvað þá að það gengi vel. Þannig hlýt ég að leita upplýsinga um hvað hér er átt við, hvort einhverjir fundir eru í gangi með öðrum stjórnarandstöðuþingflokkum þannig að það sé alveg ljóst.
En við kvennalistakonur erum að sjálfsögðu algjörlega óbundnar um afstöðu til þessa máls og ég tek undir með hv. 5. þm. Vesturl., sem talaði hér í gær, að við hljótum að fá eðlilegt ráðrúm og tíma til nefndarstarfa svo við megum átta okkur á forsendum og afleiðingum þessara tillagna.
Ég hlýt að endurtaka að við leggjum ekki alla liði að jöfnu. Við kvennalistakonur létum strax við fyrstu athugun í ljós algjöra andstöðu við hækkun flestra ef ekki allra þeirra vöruflokka sem falla undir númerin í b- og c-lið þessa frv. Þetta kom fram í samtölum við hæstv. ráðherra. Sú skattlagning eða þær hugmyndir vekja í rauninni furðu. Hæstv. ríkisstjórn hefur e.t.v. gleymt því að launafólk býr við launastöðvun og samningsbann. Um verðstöðvun er
kannski best að segja sem minnst. Það er engin verðstöðvun raunverulega í gildi heldur er nær að tala um aðhald og það aðhald virðist vera býsna teygjanlegt. Það er auðvitað spurning hvort nokkrar hækkanir af þessu tagi, sem hér hljóta að koma fram sem afleiðingar af frv., eru löglegar. Kannki eru þær það, en þær eru þá alla vega siðlausar. Jafnvel þótt launafrystingu væri aflétt væri ráðstöfun af þessu tagi í hæsta máta varhugaverð.
Ég get tekið undir margt sem hv. 3. þm. Reykv. sagði í gær um mikilvægi heimilistækjanna og hverja þýðingu það hefur að halda verði þeirra í skefjum. Hv. þm. höfðaði sérstaklega til hinna ungu og minna reyndu kvenna á Alþingi. Ég var ekki alveg viss um hvort ég ætti að taka það til mín, alla vega ekki þetta með aldurinn, en ég get fullvissað hana um að okkur þarf ekkert að brýna í þessu efni og það ætti ekki að þurfa að brýna nokkra einustu manneskju sem yfirleitt kemur eitthvað nálægt heimilishaldi. Þessi tæki, sem eru hugmyndir um að skattleggja aukalega, eru bráðnauðsynleg í heimilishaldi vel flest og þau á að láta í friði og það á allra síst að fara að hækka þau í þeirri launastöðvun sem nú ríkir.
Jafnmikilvægt er að ekki verði auknar álögur á byggingarvörur, en allt þetta hefur áhrif á byggingarkostnaðinn og vísitölur, er sem sagt kostnaðaraukandi og verðbólguhvetjandi --- og er nú þörf á því.
Þessar tillögur vekja satt að segja undrun. Hæstv. ríkisstjórn telur það hugsanlega til réttmætra forsenda, án þess ég hafi nú heyrt hæstv. ráðherra nefna það í máli sínu í gær, að það sé þensla í byggingariðnaði sem ástæða sé til að slá á. Sú forsenda á ekki við nú. Hún hefði e.t.v. verið gild fyrir ári, en það er hafinn samdráttur í þessari grein sem annars staðar. Og til að gera langt mál stutt þá styðjum við þetta ekki.
En hæstv. forseti. Ég þarf ekki að hafa fleiri orð um þetta frv. Ég endurtek að Kvennalistinn styður það ekki í heild sinni, en hugsanlega einstaka liði þess eða breytingar á a-lið 1. gr. Og það er auðvitað hugsanlegt að það megi finna fleiri liði í tollalöggjöfinni sem gætu borið vörugjald án þess að varpað væri fyrir róða eðlilegu tilliti til aðstæðna, en til þess hefur hæstv. ríkisstjórn e.t.v. ekki tíma eða þá að ráðherrar hennar hafa ekki náð saman um slíkt frekar en margt annað sem þeim virðist reynast erfitt að ná saman um. En ég ítreka spurningar mínar um þetta samráð sem við könnumst ekki við í Kvennalistanum.