Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Virðulegi forseti. Út af fyrirspurnum hv. 1. þm. Suðurl. vil ég segja að að sjálfsögðu er gert ráð fyrir því að ræða nú við stjórnarandstöðu og fulltrúa þingflokka um meðferð þingmála til jólahlés eða áramóta, það sem þarf að afgreiða af frumvörpum fyrir áramót. Á ríkisstjórnarfundi í morgun voru þessi mál sérstaklega til umræðu og farið yfir þann málalista sem fyrir liggur og hvaða mál þyrftu nauðsynlega að hljóta afgreiðslu.
Ég tel ekki ástæðu til að fara yfir þann lista hér eða nú. Það verður gert formlega af hálfu hæstv. sjútvrh. sem nú gegnir störfum fyrir hæstv. forsrh. á fundi með fulltrúum þingflokkanna. En út af fyrirspurnum tveimur frá hv. málshefjanda hér, annars vegar um frv. til l. um verðbréfasjóði og verðbréfaviðskipti, er rétt að það eru mál sem við höfum einmitt rætt um og ræddum um í morgun að mjög brýnt væri að taka á og æskilegt að koma í gegnum þing fyrir áramót. En áherslan verður að sjálfsögðu fyrst og fremst lögð á fjárlög og tekjuöflunarmál sem fjárlögum tengjast og talið er nauðsynlegt að fá afgreidd, svo og nokkur önnur lög sem m.a. vegna gildisákvæða þyrfti einnig að afgreiða fyrir áramótin.
Varðandi seinni fyrirspurn málshefjanda, hv. 1. þm. Suðurl., um ráðstafanir í þágu sjávarútvegs, þá hefur nýlega verið hér alllöng og ítarleg umræða utan dagskrár í þinginu um atvinnumál og ég leyfi mér að vísa til þeirrar umræðu, en auðvitað tengist þeim málum og stöðu sjávarútvegsins afgreiðsla bráðabirgðalaga sem nú eru til meðferðar í Ed. og ég vænti þess að menn muni leggja sig fram um að reyna að koma þeim áleiðis í gegnum þingið.
Ég vona að þetta svari fyrirspurnum sem sérstaklega var beint til ríkisstjórnarinnar, en ítreka að það verður alveg þessa dagana, hvort það verður í dag eða á morgun eða næstu daga, rætt, að sjálfsögðu formlega, við stjórnarandstöðu og fulltrúa þingflokka allra um meðferð þingmála og hvaða mál það eru sem ríkisstjórnin telur brýnt og nauðsynlegt að koma í gegnum Alþingi fyrir áramót.