Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Hv. 2. þm. Norðurl. v. bar fram á sínum tíma mjög eðlileg tilmæli þegar hann óskaði eftir því að tekjuöflunarfrv. ríkisstjórnarinnar yrðu komin fram fyrir 2. umr. fjárlaga. Hins vegar veit maður ekki hvaðan úr veröldinni hv. 1. þm. Reykv. er að koma. Það er eins og í þeim þingflokki, Sjálfstfl., sé ekki enn ræðst við. Hann telur að nú þurfi að veita sérstaka aðför hv. 2. þm. Norðurl. v., hann hefði ekki staðið í stykki sínu með að fylgja eftir óskum fyrir hönd flokksins um hvernig standa bæri að fjárlagaafgreiðslu þó að ég viti ekki betur en hann sé hinn hæfasti fulltrúi sem þeir hafa í fjvn. ásamt öðrum ágætum manni sem vissulega á allt gott skilið einnig, hv. 4. þm. Austurl.
    Það vekur undrun að jafnþingreyndur maður og hv. 1. þm. Reykv. skuli ekki manna sig upp í að flytja vantraust á ríkisstjórnina ef hann telur að hún hafi ekki stuðning á þinginu. Það er hin hefðbundna aðferð og væri honum nær að kveðja sér hljóðs strax og óska eftir því að flytja vantraustið. En hugrekkið er nú ekki meira en svo að hingað er helst sniglast upp í ræðustól til að tala um þingsköp og þá einhverja þvælu út í loftið sem fyrst og fremst yrði til þess að rugla öllum störfum þingsins fram að jólum. Ég hvet hv. 1. þm. Reykv. eindregið til að reyna að ná samstöðu innan Sjálfstfl. um það hvaða óskir eru bornar fram og ég tel að það sé eðlilegt að Alþingi Íslendinga geri sér grein fyrir þeim hefðbundnu vinnubrögðum, sem hér hafa gilt, að menn afgreiði fjárlög og taki þátt í því með atkvæðagreiðslu á hefðbundinn hátt. Auðvitað munu þeir, sem ekki vilja að aflað verði tekna og hér verði rekin fjárlög með halla eins og verið hefur, leggjast gegn allri tekjuöflun og að sjálfsögðu munu þeir greiða atkvæði líka gegn fjárlögunum. Það er rökrétt, en það er þá líka rétt að það komi í ljós hvaða liðir það eru sem þeir vilja að verði skornir niður.