Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil ekki lengja þessa umræðu, en vildi aðeins leggja á það áherslu að ég tel nauðsynlegt að þingflokksformenn og þingforsetar ásamt fulltrúa ríkisstjórnar eigi fund um framgang mála í þinginu hið allra fyrsta með sama hætti og venja hefur verið í þingsögunni. Mér þykir ólíklegt að það sé auðvelt að koma slíkum fundi við í dag, en ég vildi leggja það til að slíkum fundi verði komið á á morgun þegar það hentar aðilum. Ég tel það alveg nauðsynlegt í ljósi þeirra umræðna sem hér hafa farið fram og ég á ekki von á að það hafi mikið að segja að halda þeim lengi áfram, en vænti þess að hægt sé að fallast á að það verði komið saman til fundar til að ræða þessi mál hið allra fyrsta á morgun.