Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég hlýt að upplýsa það hér að í gær var haldinn fundur með þingforsetum og formönnum þingflokka þar sem þinghaldið var rætt. Sá fundur fór fram í mikilli vinsemd og menn tóku vel í það að leita til þess leiða að þinghaldi gæti lokið fyrir jól. Þetta hlýt ég að upplýsa vegna þess að sjútvrh., sem nú er starfandi forsrh., gat ekki setið fundinn og ég hygg að þessi boð hafi ekki borist honum vegna fjarveru nokkurra þingflokksformanna.
    Ég bið nú hv. þingheim að reyna að sjá svo til að við getum farið að snúa okkur að dagskrá.