Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Hæstv. forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu mikið. Ég ætla aðeins að ítreka nokkur atriði sem hér hafa komið fram hjá hv. þingmönnum sem tekið hafa til máls og í upphafi nefndi hv. 3. þm. Vestf. að sér hefði heyrst á mínum upphafsorðum í svari mínu að ég væri í einhverjum vafa um það. Ég sagði þar aðeins að ég ætlaði ekki að gerast neinn dómari í því hér eða nú hvort um mistök kynni að vera að ræða hjá heilbrigðisstéttum í störfum sínum. Það væri ekki vettvangur til þess hér og tel ég hann ekki vera. Ég greindi hins vegar frá því að í heilbrrn. væru nú ýmis mál uppi og umræða hefði verið mikið meiri um hugsanleg mistök að undanförnu en áður. Það er auðvitað rétt hjá hv. fyrirspyrjanda að landlækni er best kunnugt um þessi mál og þau koma upp á borð hjá honum og kannski er þessi tillaga hans um tryggingasjóð sjúklinga til komin þess vegna og vafalaust er það svo.
Fyrirspyrjandi taldi að kvörtunarnefndin, sem til er samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, hefði ekki skilað þeim árangri sem af henni var vænst og það kann líka að vera rétt. E.t.v. hafa henni ekki verið búin nægilega góð skilyrði til starfa. Sú nefnd hefur komið til mín og rætt sín mál og það er rétt að ef niðurstaðan verður að koma á einhvers konar tryggingasjóði þarf að sjálfsögðu að skoða störf og starfssvið þessarar kvörtunarnefndar, kannski er þá líka rétt að leggja hana niður, en ella að gera hennar starfsvettvang og hennar starfsskilyrði nokkru betri en þau hafa verið.
Hjá öðrum þingmönnum hafa einnig yfirleitt komið upp þær skoðanir að rétt sé og nauðsynlegt að taka á þessum málum þó að menn séu vissulega með svolítið skiptar skoðanir um það hvernig það beri að gera, hvernig beri að taka á málinu, og það er einmitt það sem ég reyndi að lýsa í mínu svari. Við erum að skoða þessar hugmyndir sem fram hafa komið. Það er ljóst að menn eru ekki allir á eitt sáttir með þær. Það hef ég þegar heyrt og reyndar séð í því eina áliti sem þegar er komið af þeim þremur sem beðið var um, en þegar þau hafa öll borist munum við að sjálfsögðu setjast að málinu og reyna að finna þá leið sem skynsamlegust er talin.
Reynsla hjá nágrönnum okkar í þessu efni er misjöfn og við verðum að huga að því sem þar hefur gerst og hvernig mál hafa farið fram þar áður en við setjum okkar reglur endanlega niður. Ég vil því taka undir með hv. 3. þm. Reykv. sem hér talaði síðast að skoða þarf það mjög ítarlega hvaða form á að vera á slíku tryggingafyrirkomulagi ef það verður tekið upp. Aðalatriðið er það, eins og fram hefur komið hjá hv. þingmönnum og sérstaklega hjá hv. fyrirspyrjanda, að reynt sé að mæta erfiðleikum þess fólks sem orðið hefur fyrir varanlegu heilsutjóni vegna læknisaðgerða og auðvitað að aðstoða það við að ná sínum rétti, eigi það hann. Okkur er það ljóst að þetta fólk er oft á tíðum, eins og ég reyndar sagði í upphafi, ekki best til þess fallið að leita réttar síns í gegnum hið
hefðbundna dómskerfi, en þá verðum við líka að gæta þess að þær reglur sem upp verða teknar þýði ekki þriðja dómsstigið sem gæti gert þeirra göngu enn lengri og erfiðari en hún þó er í dag.