Fyrirspyrjandi (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Tannskemmdir Íslendinga, og þó sérstaklega íslenskra barna, eru algengari en gengur og gerist á meðal annarra þjóða, eða a.m.k. á meðal okkar nágrannaþjóða, og það er eðlilegt að leitað sé skýringa. Ein af ástæðunum gæti verið sú staðreynd að hér á landi virðist sælgæti hafa forgang fram yfir allar vörur í verslunum. Þá er staðsetning söluturna og kvöldsölustaða með þeim hætti að nánast alls staðar þar sem börn og unglingar eiga oftast leið um, svo sem við skóla, sundlaugar og aðra samkomustaði æskufólks, er þennan, mér liggur við að segja ófögnuð að finna. Í matvöruverslunum og stórmörkuðum hér á landi er það nánast regla að sælgæti sé stillt upp nálægt greiðslukössum sem hlýtur að vera gagnrýni vert. Ein aðferðin til að draga úr sælgætisáti, sem veldur ekki bara tannskemmdum, heldur einnig offitu og æðasjúkdómum, hlýtur að vera að takmarka aðgengi. Þess vegna hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. heilbrmrh. á þskj. 130 sem er svohljóðandi:
,,1. Mun ráðherra beita sér fyrir því að lagafyrirmæli og reglugerðir um söluturna og kvöldsölustaði verði endurskoðuð með heilbrigðissjónarmið í huga og að spornað verði við slíkri sölustarfsemi í námunda við skóla og aðra samkomustaði æskufólks?
2. Er fyrirhugað að setja reglur hér á landi um hvar heimilt sé að stilla upp sælgæti og sætum drykkjum í verslunum?``