Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Hæstv. forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vil taka undir með hv. 3. þm. Reykv. að tilkoma tannverndarsjóðs og það verkefni sem unnið er fyrir hans tilstuðlan og á vegum tannverndarráðs sem starfar á vegum ráðuneytisins er mikilvægt forvarnarstarf. Við munum reyna að halda áfram að vinna á þeirri braut. Við sjáum það eða þykjumst sjá það á tölulegum upplýsingum að nokkur árangur hefur orðið, en það verður að segjast að það er ekki bara betur sem þarf að gera, heldur mikið betur sem þarf að gera svo að við nálgumst það sem tekist hefur að gera í nágrannalöndum okkar hvað varðar tannvernd svo að við komumst á það stig með tannheilsu hjá íslenskri þjóð og sérstaklega íslenskum ungmennum að við séum jafnfætis nágrönnum okkar.
Það er sjálfsagt rétt sem hv. þm. benti á að e.t.v. verður eitthvað auðveldara að sækja styrk í sjóðinn til hæstv. fjmrh. þó að ég geri mér ekki vonir um að fá allan sykurskattinn í þann sjóð einan og tel reyndar kannski ekki að hv. þm. hafi ætlast til þess.
Ég undirstrika hins vegar að þetta er mikilvægt verkefni sem þarna er unnið. Og ég vil fullvissa bæði þennan hv. þingmann, hv. fyrirspyrjanda og aðra hv. þingmenn um það að ráðuneytið mun halda áfram að beita sér að þessum málum sem eru mjög mikilvæg og reyna að beita sér á því sviði sem hér er sérstaklega spurst fyrir um þó svo það sé ekki í verkahring ráðuneytisins að setja reglurnar. Við munum hins vegar að sjálfsögðu reyna að hafa áhrif á það framvegis eins og við höfum verið að reyna að gera hingað til.