Hækkun póstburðargjalda
Fimmtudaginn 08. desember 1988

     Fyrirspyrjandi (Málmfríður Sigurðardóttir):
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svar hans og upplýsingar, en eins og menn heyrðu eru rökin fyrir þessari hækkun fyrst og fremst fjárhagsvandræði Pósts og síma og þá um leið sennilega viðleitni ríkissjóðs að koma í veg fyrir að hann þurfi að bera kostnað af því, þá er fjárhagsvandanum vísað yfir á neytendur. Hækkunin er í rauninni aðeins ákvörðun ríkisstjórnarinnar og menn geta velt því fyrir sér hvort þeim finnst hún réttlætanleg eða ekki.
    Nú búum við við svokallaða verðstöðvun ásamt launafrystingu og samt verðum við áþreifanlega vör við að verðlag fer hækkandi á ýmsum varningi því að það er nefnilega hægt í mörgum tilvikum að fara í kringum verðstöðvunarlögin og það nýta ýmsir sér. Það er hins vegar hart að þurfa að una því að hæstv. ríkisstjórn gangi gegn þeim líka.