Dagskrárgerðarsjóður Evrópuráðsins
Fimmtudaginn 08. desember 1988

     Fyrirspyrjandi (Júlíus Sólnes):
    Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir greið og góð svör og jákvæðar undirtektir við þessari fsp. Ég er sammála því að með aðild Íslendinga að Kvikmyndasjóði Evrópuráðsins opnast nýjar leiðir fyrir samstarfi okkar við menningarþjóðir Evrópu um þáttagerð fyrir sjónvarp og kvikmyndagerð með fjárstuðningi úr þessum sjóði.
    Í því sambandi má t.d. minna á ágætt samstarf sem við höfum átt við Þjóðverja um kvikmyndagerð. Má ætla að með þátttöku okkar í þessum sjóði væri hægt að styrkja það samstarf enn frekar.