Þorsteinn Pálsson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins inna hæstv. fjmrh. eftir því hvort hann hefur haft tóm til þess að ráðgast við samstarfsflokka sína um þá endurskoðun á virðisaukaskattslögunum sem hér hefur komið til umræðu og fyrir dyrum stendur og ítreka enn einu sinni fyrirspurn mína til hæstv. ráðherra um það hvort hann sé reiðubúinn að gefa yfirlýsingu um með hvaða hætti hann ætlar að standa að endurskoðun frv. og hvort hann er reiðubúinn að skipa í það nefnd með fulltrúum allra flokka í þinginu.