Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins nr. 86/1988 á þskj. 154. Efni þessa frv. er að opna fyrir möguleika í félagslegum kaupleiguíbúðum á leigu með kaupum á eignarhluta í íbúð sem tryggi fólki öruggan afnotarétt af íbúðinni, en hér er um að ræða sama fyrirkomulag og gildir í almennum kaupleiguíbúðum. Með þessu fyrirkomulagi geta leigjendur í félagslegum kaupleiguíbúðum átt þess kost að kaupa sér 15% hlutareign í íbúðinni sem veiti ótímabundinn afnotarétt af henni.
Á síðasta þingi var samþykkt breyting á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins um kaupleiguíbúðir. Þar var komið á fót nýjum valkosti í húsnæðismálum, kaupleiguíbúðum. Með kaupleigufyrirkomulaginu var verið að auka sveigjanleika í húsnæðislánakerfinu með hliðsjón af mismunandi þörfum fólks eftir aldri, búsetu og félagslegum þörfum og að stuðla að auknu framboði leiguhúsnæðis og meiri jöfnuði milli séreignar og leiguhúsnæðis.
Eitt af grundvallaratriðum í kaupleigunni er að íbúar eigi kost á að velja um leigu eða kaup með jöfnum mánaðarlegum greiðslum. Veigamikill þáttur í kaupleiguíbúðum var að opna möguleika í húsnæðiskerfinu fyrir almannasamtök eða félagasamtök sem starfa að húsnæðismálum með það að markmiði að koma á fót húsnæði og sjá um rekstur þess í þágu félagsmanna sinna. Við undirbúning frv. um kaupleiguíbúðir á síðasta þingi komu fram óskir frá nokkrum félagasamtökum sem starfa að húsnæðismálum um að bæta við einum möguleika í félagslegum kaupleiguíbúðum, þ.e. sölu á hlutareign gegn afnotarétti af íbúðinni. Þetta eru átta félagasamtök sem starfa að húsnæðismálum en aðild að þeim eiga m.a. Öryrkjabandalag Íslands, Sjálfsbjörg, Landssamband fatlaðra, Landssamtökin Þroskahjálp, Samtök aldraðra, stúdentaráð Háskóla Íslands, Bandalag ísl. sérskólanema, Leigjendasamtökin og Búseti, landssamband húsnæðissamvinnufélaga.
Þessi ósk félagasamtakanna náði að hluta fram að ganga á síðasta þingi. Í almennum kaupleiguíbúðum er heimilt að bjóða íbúðir á þeim forsendum að leigjendur kaupi skuldabréf framkvæmdaaðila og eignist 30% hluta í íbúðinni. Þegar um er að ræða aldraða eða öryrkja er heimilt að selja 15% hluta í eigninni. Hlutareign var hins vegar ekki lögfest í félagslega hluta kaupleigukerfisins. Það á sér þá skýringu að ekki náðist samstaða milli þáverandi stjórnarflokka um þá tilhögun.
Nú hafa húsnæðissamvinnufélög og ýmis félagasamtök sem ég áður greindi frá, sem starfa að húsnæðismálum með það að markmið að eiga og reka leiguhúsnæði í þágu félagsmanna sinna, óskað eftir því við stjórnvöld að heimilað verði að leigjendur í félagslegum kaupleiguíbúðum eigi þess kost að kaupa sér 15% hlutareign í þeim íbúðum sem veiti ótímabundinn afnotarétt af íbúðinni. Skilyrði væri að þeir sem gætu nýtt sér 15% hlutareign væru innan tekjumarka sem nú gilda í félagslegum
kaupleiguíbúðum og í verkamannabústaðakerfinu. Húsnæðissamvinnufélagið Búseti hefur m.a. eindregið farið þess á leit að slíku fyrirkomulagi verði komið á, en Búseti hefur reist fjölbýlishús í Grafarvogi. Það mundi henta félagsmönnum vel að slíku hlutareignarfyrirkomulagi yrði komið á innan félagslegra kaupleiguíbúða líkt og nú er innan almennu kaupleiguíbúðanna sem fjármagnaðar eru úr Byggingarsjóði ríkisins.
Í þessu sambandi vil ég taka fram að félagsmenn í húsnæðissamvinnufélaginu Búseta, sem eiga kost á að kaupa hlutareign í því fjölbýlishúsi sem Búseti hefur nú reist, falla allir innan þeirra tekjumarka sem lög um félagslegar kaupleiguíbúðir heimila að lánað sé til í gegnum Byggingarsjóð verkamanna.
Þótt æskilegt hefði verið að slík breyting, sem hér er nú gerð tillaga um, hefði fylgt heildarendurskoðun á félagslega hluta húsnæðislánakerfisins, sem nú stendur fyrir dyrum, vil ég vænta þess að sú breyting sem hér er lögð til nái fram að ganga, enda mikið í húfi fyrir húsnæðissamvinnufélagið Búseta að svo geti orðið.
Um 1. gr. er það að segja að hér er um viðbót að ræða við þá tvo valkosti sem nú eru fyrir í félagslegum kaupleiguíbúðum, þ.e að auk möguleika á að kaupa íbúð eða leigja íbúð með kauprétti er hér opnað fyrir þriðja valkostinn, þ.e. leigu með kaupum á eignarhluta í íbúð sem tryggi fólki öruggan afnotarétt af íbúðinni.
Um 2. gr. frv. er það að segja að hún er hliðstæð þeirri grein sem nú gildir í lögum um almennar kaupleiguíbúðir og fjallar um réttindi og skyldur sem fylgja kaupum á eignarhluta í íbúð. Um það er helst að segja að framkvæmdaaðili félagslegra kaupleiguíbúða getur selt leigutaka eignarhluta í íbúð til tryggingar á ótímabundnum afnotarétti af íbúð með tilteknum kvöðum um afnotarétt og endurgreiðslu. Meginreglan er sú að leigutaki getur samkvæmt þessari grein tryggt sér ótímabundinn afnotarétt af íbúðinni og leigusamningur verður því óuppsegjanlegur af hálfu framkvæmdaaðila, með þeirri undantekningu þó að verði um verulegar vanefndir hjá leigutaka að ræða er hægt að rifta slíkum samningi. Afnotaréttur leigutaka sem kaupir eignarhluta er persónulegur og geta því ekki aðrir notfært sér þann rétt. Falli leigutaki frá eða hætti afnotum af íbúð skal eignarhlutinn endurgreiddur með fullum verðbótum samkvæmt
lánskjaravísitölu en án vaxta. Heimilt er þó að veita undantekningar frá þessari meginreglu þegar um hjón er að ræða ef annað fellur frá, þau skilja, gera kaupmála eða annað hjóna situr í óskiptu búi.
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta frv. fleiri orð. Ég vil þó í lokin nefna að þessa dagana er ég að fá í hendur skýrslu nefndar sem unnið hefur að undirbúningi heildarendurskoðunar á félagslega hluta húsnæðislánakerfisins. Í kjölfar þessarar skýrslu verður skipuð nefnd sem fær það verkefni að gera tillögur um endurbætur á félagslega húsnæðislánakerfinu. Ég vil í þessu sambandi segja að
með kaupleiguíbúðum voru gerðar vissar endurbætur á félagslega íbúðalánakerfinu og má í því sambandi benda sérstaklega á ákvæði um endurskoðun vaxtakjara með hliðsjón af tekjuþróun einstaklinga.
Áfangaskýrslan sem ég fæ í hendur næstu daga hefur að geyma heildaryfirlit yfir félagslegar íbúðabyggingar á Íslandi. Þar kemur fram hvernig uppbyggingu þeirra hefur verið háttað og þróun almennt í félagslega húsnæðislánakerfinu á Íslandi. Þar eru dregnir fram ókostir á núverandi fyrirkomulagi og hvaða leiðir þarf að fara til að félagslega íbúðalánakerfið nái markmiði sínu.
Ég taldi mjög mikilvægt að vinna slíka skýrslu til undirbúnings þeirri endurskoðun sem nú stendur fyrir dyrum því að ég tel að með slíkum vinnubrögðum verði öll endurskoðun á félagslega kerfinu miklu markvissari en ella. Vænti ég þess einnig að í þessari skýrslu komi fram ábendingar um valkosti og leiðir um framtíðarskipan félagslega íbúðalánakerfisins. Ég hygg að þess verði varla að vænta að niðurstaða slíkrar endurskoðunar liggi fyrir á yfirstandandi þingi því hér er bæði um tímafrekt og vandasamt mál að ræða. Ég met það þó svo að það sé mjög brýnt að efla möguleika félagasamtaka sem að húsnæðismálum starfa til að koma á fót leiguhúsnæði með hlutareign í félagslega kerfinu sem gagnist láglaunafólki og því er nauðsynlegt að gera strax þær breytingar sem frv. mælir fyrir um.
Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. félmn.