Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 09. desember 1988

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Herra forseti. Ég þakka þær umræður sem hafa orðið um þetta mál. Ég tel að það megi segja að þær hafi, a.m.k. hjá flestum ræðumönnum sem hér hafa talað, verið fremur jákvæðar þó að vissulega hafi komið fram hjá ræðumönnum að þeir hafi viljað sjá hér heildarendurskoðun á félagslega kerfinu. A.m.k. gat ég ekki fundið að þetta frv. mætti hér andstöðu og menn áskildu sér rétt til að skoða þetta í nefnd.
    Það var komið hér víða við í umræðunni og spurt ýmissa spurninga bæði að því er varðar félagslega kerfið og þá endurskoðun sem nú stendur yfir á almenna kerfinu. Ég vil fyrst svara í örfáum orðum þeim spurningum sem snúa beint að því frv. sem hér er til umfjöllunar.
    Hv. þm. Hreggviður Jónsson spurði hvort frv. væri fyrir hálaunafólk eða fyrir láglaunafólk. Því er til að svara að það er fyrir láglaunafólk.
    Að því er varðar fyrirspurn hv. þm. Geirs H. Haarde um hvort, ef þetta frv. yrði að lögum, það yrði viðmiðun við sömu tekjumörk og eru í verkamannabústöðunum, þá er svarið við því einnig já. Það er skilyrði að þeir sem fá rétt samkvæmt þessu séu undir þeim tekjumörkum sem eru í verkamannabústaðakerfinu og að þeir lúti því líka að það verði endurskoðun á vaxtakjörunum sem eru í þessu kerfi með hliðsjón af tekjum viðkomandi.
    Hv. þm. spurði einnig hvort allir uppfylltu þau skilyrði sem fengju inni í þeim íbúðum sem Búseti hefur verið að reisa. Já, allir þeir sem fá inni í búsetuíbúðunum verða að uppfylla þessi skilyrði. Ef þetta frv. nær ekki fram að ganga að því er varðar aðra en aldraða, öryrkja og námsmenn yrðu þessir hópar, jafnvel þó að þeir yrðu undir tekjumörkunum, að fara inn undir ákvæði um almennu kaupleiguíbúðirnar þar sem fyrir er heimild til þess að veita hlutareign eða búseturétt, en þá verður viðkomandi að greiða 30% af íbúðarverðinu.
    Ég vona að þetta hafi svarað þeim spurningum sem lúta að frv. sem hér er til umræðu. Að því er varðar endurskoðun á félagslega kerfinu kom bæði fram fyrirspurn frá hv. þm. Geir Haarde og Kristínu Einarsdóttur. Ég kom inn á það í minni framsöguræðu að það hefur um nokkurra mánaða skeið verið í gangi á vegum félmrn. úttekt á félagslega kerfinu, en sú skýrsla sem verður afhent hér innan nokkurra daga á að vera undirstöðugagn fyrir þá nefnd sem væntanlega á allra næstu dögum verður skipuð til að endurskoða félagslega kerfið. Ég mun sjá til þess þegar þessi skýrsla liggur fyrir að stjórnarandstaðan fái hana einnig í hendur.
    Að því er varðar breytingu á almenna kerfinu, þá hefur sú endurskoðun staðið yfir í nokkurn tíma. Ég hef lagt áherslu á að það næðist breið samstaða um þá endurskoðun. Í þeirri nefnd sem er núna að fjalla um almenna hluta húsnæðiskerfisins eiga sæti fulltrúar allra flokka, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu, þannig að hv. þm. hefur átt aðgang að því að fylgjast með þessu nefndarstarfi og hvað því miðar.
    Ég vænti þess að lokafundur þessarar nefndar verði

í næstu viku og hún muni þá skila mér sínu áliti. Ég hafði vonast til þess að hægt væri að ná því máli inn á Alþingi svo tímanlega og að um það gæti orðið umræða í þinginu og að frv. næði því að fara í nefnd fyrir jólaleyfi þingmanna. Ég veit út af fyrir sig ekki hvort svo getur orðið. Ég get ekki um það sagt. Ég veit raunverulega ekki hver niðurstaða nefndarinnar verður eða hver samstaða næst í þeirri nefnd. ( GHH: Hefur ráðherrann byggt upp frumvarpið í andstöðu við ASÍ?) Ég mun leggja mat á þetta frv. eða þau frumvarpsdrög þegar ég fæ þau í hendur. Fulltrúi ASÍ á sæti í nefndinni. Ég hef ekki séð hans álit, hvort hann skilar séráliti eða hvort hann fylgir þeim frumvarpsdrögum sem nefndin skilar af sér. Ég vil bíða með að svara hv. þm. þangað til ég sé hvaða afstöðu fulltrúi ASÍ hefur í nefndinni.
    Það var spurt um reynsluna af kaupleigukerfinu. Út af fyrir sig er kannski ekki hægt að svara því enn. Ég tel þó að það hafi komið fram mjög mikill áhugi hjá sveitarfélögunum fyrir þessu formi sem birtist í miklum umsóknafjölda að því er varðar kaupleiguíbúðir. Umsóknir sem liggja fyrir um félagslegar íbúðir eru 1200, en 800 af þeim eru vegna kaupleiguíbúðanna.
    Að því er varðar greiðsluerfiðleikalánin sem hv. þm. nefndi, þá er það rétt að í stjórnarsáttmála þessarar ríkisstjórnar er gert ráð fyrir að veittar verði 150 millj. kr. í greiðsluerfiðleikalán og við það mun ríkisstjórnin standa. Ég hef lagt ákveðna tillögu fyrir ríkisstjórnina að því er varðar fjármögnun, um að það komi 75 millj. fyrir áramótin og 75 millj. í janúar. Sú tillaga liggur fyrir ríkisstjórninni og ég fylgi því auðvitað fast eftir að hún nái fram að ganga. Það mun að vísu ekki leysa nema hluta af erfiðleikum þessa fólks því að sú niðurstaða sem ég hef frá ráðgjafarstöð Húsnæðisstofnunar ríkisins er að væntanlega þurfi um 200--300 millj. kr. til viðbótar á næsta ári til þess að koma til móts við fólk í greiðsluerfiðleikum. Það hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun af ríkisstjórninni um hvernig fjár til þess verður aflað. Það eru margvíslegar aðrar leiðir sem félmrn. hefur verið að skoða til að koma til móts við þetta fólk bæði að því er varðar
breytt vinnubrögð hjá bankastofnunum, hjá Húsnæðisstofnun og með því að skoða hvernig hægt er að breyta fyrirkomulagi á nauðungarsölu þannig að réttur fólksins verði þar betur tryggður. Það er alveg ljóst að ef vinnubrögðum verður ekki breytt munum við sitja uppi með þessa hópa og fjárþörf til þeirra á hverju einasta ári. Ég hef því lagt áherslu á að á þessu verði gerð grundvallarbreyting og tillögur sem ég hef lagt fram þar að lútandi hafa verið samþykktar í ríkisstjórninni og eftir þeim er verið að vinna.
    Að því er varðar fjárhagsstöðu byggingarsjóðanna, þ.e. að þeir séu í hættu eins og hv. þm. nefndi, þá er ég honum alveg sammála. Það stefnir auðvitað í óefni ef ekkert verður í því máli gert. Hann talar um fjáraustur í þennan málaflokk. Miðað við þá sjálfvirkni sem við búum við í þessu kerfi þá kallar hún á mikið af fjármagni inn í kerfið og því er verið að reyna að

breyta. Reynt var að breyta því á síðasta þingi en erfiðlega gekk að ná þeirri breytingu í gegn. Þó að margir teldu breytinguna ekki stórvægilega hefur hún þó gert það að verkum að við höfum ekki bundið kerfið nema fyrir næsta ár. Að öðrum kosti hefðum við verið búin að binda fjármagn þessa kerfis fram til 1991, það liggur alveg ljóst fyrir. Ég tel að það sé útilokað annað en að breyting verði gerð á húsnæðislánakerfinu á þessu þingi og um það náist samstaða. Ég mun því leggja mjög fast að stjórnarflokkunum að það náist samstaða um endurskipulagningu á húsnæðiskerfinu og ítreka að ég tel útilokað annað en að ná fram breytingu og endurskipulagningu á húsnæðislánakerfinu á yfirstandandi þingi.
    Að því er varðar vaxtaniðurgreiðslurnar hygg ég að hv. þm. viti að það er einmitt verið að vinna að breytingum á formi vaxtaniðurgreiðslna í þessari endurskoðunarnefnd. Núna fara sennilega 1200--1500 millj. kr. í vaxtaniðurgreiðslur og þá á ég við bæði í gegnum vaxtaniðurgreiðslur í húsnæðiskerfinu og í skattkerfinu. Hugmyndin er að þessi upphæð verði nýtt með öðrum hætti og stýrt til þeirra sem helst þurfa á því að halda. Þetta fari fyrst og fremst í gegnum skattakerfið og þeir sem fá þessar vaxtaniðurgreiðslur eða vaxtabætur í gegnum skattakerfið verði þeir sem helst þyrftu á því að halda vegna þess að viðmiðunin væri tekju- og eignatengd.
    Lokaspurning hv. þm. var hvort ég legði áherslu á að þetta mál næði fram að ganga fyrir jól. Já, ég legg áherslu á það þrátt fyrir það sem kom fram hér hjá hv. 1. þm. Vesturl. Ég tel að hér sé ekki um flókið mál að ræða þannig að ekki ætti að vera svo erfitt að taka afstöðu til þeirra breytinga sem hér liggja fyrir. Ég veit að það er hópur af fólki sem réttarins mundi njóta samkvæmt þessu frv. verði það að lögum. Það bíður eftir afgreiðslu þessa máls einmitt í tengslum við búseturéttaríbúðir sem reistar hafa verið. Ég tel því mikilvægt að þetta nái fram að ganga fyrir jól. Auðvitað hafa tekjuöflunarfrv. og fjárlög forgang en ég tel að ef samstaða væri um þessa litlu breytingu sem hér er lögð til ætti hún ekki að þurfa að tefja þingstörfin.