Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 09. desember 1988

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Herra forseti. Að því er varðar fyrirspurn hv. síðasta ræðumanns vil ég segja að þetta mál er á forgangslista ríkisstjórnarinnar um afgreiðslu fyrir jólaleyfi og ég hef ekki áður heyrt um neinn fyrirvara af hendi framsóknarmanna að því er þetta mál varðar. ( ÞP: Það kom fram í ræðu hv. 1. þm. Vesturl.) Ég er að segja að það er í fyrsta skipti sem ég heyri að einhver ágreiningur sé. Ég heyrði nú aldrei að hv. þm. nefndi að þeir hefðu einhvern fyrirvara um frv. Ég heyrði hann einungis segja að hann teldi þetta ekki vera forgangsmál.
    Að því er varðar frv. um vörugjald og hv. þm. nefndi þá er ég stuðningsmaður þess frv. Alþfl. stendur að því og ég geri það einnig.
    Að því er varðar greiðsluerfiðleikalánin þá er í stjórnarsáttmálanum ekkert tímasett hvenær þau kæmu til framkvæmda en ég hef lýst því hér yfir að við þau verður staðið. Ég hef lagt fram ákveðna tillögu í ríkisstjórninni og eftir henni verður gengið.