Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 09. desember 1988

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Herra forseti. Ég hafði fengið upplýsingar um að gera hefði átt hlé á fundum á milli hálffjögur og hálffimm vegna þingflokksfunda og því var ég hérna niðri í þingflokksherbergi.
    Vegna þessarar fyrirspurnar þá hefur forgangslistanum verið dreift og var hann einfaldlega unninn þannig að viðkomandi ráðherrar voru spurðir um þau mál sem knýjandi væri að yrðu afgreidd fyrir jólaleyfi með venjubundnum hætti og þessi listi var settur upp. Hann var kynntur á fundum forseta og þingflokksformanna í morgun. Hér er um mál að ræða sem er á þessum forgangslista og það þýðir að óskir eru um að þetta mál verði afgreitt fyrir jólaleyfi. Hitt er svo annað mál að ekki hefur enn þá náðst samkomulag um það í þinginu eins og endranær hvað unnt verður að afgreiða. Ég verð að viðurkenna að ég þekki ekki þau orðaskipti sem hér hafa orðið og það sem hv. þm. Alexander Stefánsson kann að hafa sagt. Mér er ekki kunnugt um það og get því ekkert um það sagt.