Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 09. desember 1988

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Herra forseti. Ég hef sagt það í þessum ræðustól að ég hef lagt ákveðna tillögu fyrir ríkisstjórnina um hvernig leysa eigi það mál sem hv. þm. nefndi. Ég vænti þess að ríkisstjórnin taki á næstu dögum ákvörðun um hvernig það verður gert.