Norðurlandasamningar um starfsréttindi kennara
Mánudaginn 12. desember 1988

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Hæstv. forseti. Ég tel rétt að það komi fram í þessum ræðustól að menntmrn. hefur farið yfir þá tillögu sem hér liggur fyrir og fellst á hana. Ég tel nauðsynlegt að það sé skýrt þegar Alþingi fjallar um mál af þessu tagi að ekki einasta utanrrn. heldur einnig fagráðuneytin hafi fjallað um málið fyrir sitt leyti og fallist á þau þó hér sé um stjórnartillögu að ræða. Þess vegna kveð ég mér hér hljóðs, hæstv. forseti.